Morgunblaðið - 25.02.2016, Page 22

Morgunblaðið - 25.02.2016, Page 22
22 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2016 Sérhæfum okkur í innflutningi á silkitrjám og silkiblómum í hæsta gæðaflokki fyrir hótel, veitingastaði, skrifstofuna, fundarsali og heimili. Einnig blómaker, blómavasar, gjafavara, vinylgólfmottur frá Ísrael. Ný verslun í Listhúsinu við Engjateig Listhúsinu við Engjateig, 105 Reykjavík, sími 551 2050 Opið virka daga kl. 11-18, laugardaga kl. 11-16. SVIÐSLJÓS Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is „Við vonumst eftir því að fá sérstaka sýn á þær áskoranir sem eru fram- undan í björgunar- og leitarmálum á norðurslóðum,“ segir Odd Jarl Borch, prófessor í sjávarhagfræði við háskólann í Nordland í Bodø, en hann mun flytja meginfyrir- lesturinn á sér- stakri ráðstefnu um öryggismál á norðurslóðum sem haldin verður í dag á Þjóðminja- safninu. Ráðstefnan er liður í þriggja ára verkefni rannsóknarstofnanna í Nor- egi, Norður-Rússlandi, Danmörku, á Íslandi og Grænlandi, sem nefnist Maritime Preparedness and Int- ernational Partnership in the High North, skammstafað MARPART. Verkefnið snýst um að kortleggja ör- yggisviðbúnað og viðbragðsgetu á hafsvæðinu milli þessara landa með tilliti til aukinna efnahags- og við- skiptaumsvifa og annarra áhættu- þátta á norðurslóðum. Síaukið mikilvægi norðurslóða Borch segir mikilvægi norðurslóða hafa færst í aukana á síðustu árum, einkum vegna aukinnar nýtingar á þeim auðlindum sem heimskauta- svæðin hafa upp á að bjóða. Þá hafi skipaflutningar um svæðið stóraukist á síðustu árum. „Það á einkum við um norðurhluta Rússlands, en þaðan er verið að flytja meira af steinefnum, olíu og gasi, og hluti þess mun fara um hafsvæði hinna þjóðanna á norð- urslóðum.“ Borch segir að því sé mikilvægt að undirbúa sig fyrir möguleg slys og óhöpp sem geti komið upp á. Samvinna milli ríkja nauðsyn Eitt af því sem rannsóknin snertir á eru þau vandamál sem geta komið upp þegar slys eiga sér stað á haf- svæðum sem ná kannski yfir yf- irráðasvæði nokkurra ríkja. „Öll ríki norðurslóða hafa frekar takmörkuð úrræði miðað við þær fjarlægðir sem um er að ræða, sem gerir samvinnu yfir landamæri mjög mikilvæga þeg- ar slys ber að höndum.“ Borch segir því nauðsyn að ríkin læri meira um getu hvert annars til þess að bregðast við og hvernig kerfið virki í hverju landi fyrir sig. „Hvernig getum við gert það auðveldara að fá stuðning frá nágrannaríkinu? Hvaða getu hefur það til að bregðast við og getum við aukið skilvirknina okkar saman?“ segir Borch að séu á meðal þeirra spurninga sem þurfi að spyrja. Það sé meðal annars þess vegna sem áhersla sé sett á að bæta þjálfun við- bragðsaðila eins og til dæmis Land- helgisgæslunnar. MARPART- verkefnið geti stuðlað að því. Áhættan kortlögð En hvernig er hægt að bæta sam- starfið á milli þessara ríkja? „Eitt af því sem við erum að gera er að kort- leggja þá áhættu sem fylgir ólíkum hafsvæðum og líta á það hvaða geta sé til staðar hjá hverjum aðila fyrir sig,“ segir Borch. Þá sé einnig verið að reikna út hvernig skipaumferð næsta áratugar muni líta út til þess að hægt sé að sjá hvar mestu líkurnar séu á slysum og óhöppum. „Við ættum þannig að geta sam- hæft betur yfir landamæri til dæmis hvaða búnaður þurfi að vera til staðar á hverjum stað. Það er erfitt fyrir minni ríki eins og Ísland og Noreg að hafa allan þann búnað til staðar, þannig að kannski er hægt að deila þeim úrræðum á milli.“ Borch nefnir þar olíuleka sem sér- stakt áhyggjuefni, en sá búnaður sem þarf til þess að bregðast við slíku er mjög kostnaðarsamur. „Strand- gæsluyfirvöld ríkjanna þurfa að horfa mjög vandlega á það hvernig þau vilja bregðast við slíku og jafnvel íhuga það að koma upp sameiginlegu við- bragðsliði,“ segir Borch. Fyrirlestur Borchs mun einkum fjalla um samstarfið á milli fjögurra ríkja á norðurslóðum, Noregs, Ís- lands, Rússlands og Grænlands. Hann telur ástandið þar vera gott. „Það er mikið af formlegum sam- þykktum á milli ríkjanna, bæði tví- og fjölhliða, um það hvernig eigi að standa að þessum málum. Þá eru margar mikilvægar stofnanir sem stuðla að bættum samskiptum, eins og Norðurskautsráðið og nýstofn- aður samráðsvettvangur landhelgis- og strandgæsla á norðurslóðum.“ Borch segir að í gegnum þann vett- vang hafi til að mynda verið stund- aðar sameiginlegar björgunar- æfingar. „Þannig að þegar kemur að undirbúningi og öryggi, þá er sam- starfið mjög gott og allar samtals- rásir eru opnar, jafnvel þó að mikil spenna ríki á hinu pólitíska sviði.“ Hin erfiða staða í alþjóðamálum sem uppi hafi verið á síðustu árum hafi því ekki smitað út frá sér þegar kemur að öryggismálum á norðurslóðum. „Ástæðan er einfaldlega sú að við er- um öll stödd í sama bátnum. Ríkin hafa öll takmörkuð úrræði, þau þurfa öll að hjálpa hvert öðru þegar neyðar- ástand kemur upp á þessu svæði.“ Borch nefnir sem dæmi að norska strandgæslan hafi nokkrum sinnum þurft að koma rússneskum sjómönn- um til aðstoðar innan yfirráðasvæðis Rússa, og öfugt. Borch segir mikinn skilning ríkja á þörfinni fyrir þetta samstarf innan Rússlands. Þessi samvinna geti skipt sköpum eftir því sem norðurslóðir verða mik- ilvægari. „Við erum öll að læra hvern- ig við getum hjálpast að til þess að draga úr þeirri áhættu og þeim afleið- ingum sem neyðarástand getur skap- að þarna. Því meira sem við vitum, því betur getum við brugðist við,“ segir Odd Jarl Borch að lokum. „Við erum öll stödd á sama báti“  Ráðstefna um öryggismál á norðurslóðir verður haldin í dag  Góð samvinna á milli ríkja á norð- urslóðum þrátt fyrir stöðu alþjóðamála  Erfiðar aðstæður knýja á bætt samstarf við björgun AFP Norðurslóðir Odd Jarl Borch, prófessor, segir góða samvinnu vera á milli ríkjanna á norðurslóðum þrátt fyrir spennuna í alþjóðamálum. Odd Jarl Borch

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.