Morgunblaðið - 25.02.2016, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 25.02.2016, Blaðsíða 36
36 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2016 SVIÐSLJÓS Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Sextán ára gömul stúlka í Kvenna- skólanum í Reykjavík, Þóra Mjöll Jósepsdóttir, ber demantshring sem enskur aðalsmaður, dóttursonur By- rons lávarðar, sendi Guðnýju Hall- dórsdóttur á Grenjaðarstað árið 1862. Hann hafði beðið Guðnýjar þegar hann var hér á ferð nokkrum mánuðum áður, en hún var þá trú- lofuð öðrum. Hringurinn hefur varðveist sem erfðagripur í fjöl- skyldu Þóru. Eins og fram kom í grein hér í blaðinu fyrir hálf- um mánuði kom Ralph Gordon King Noel, þá 22 ára gamall, hingað einsamall sumarið 1861. Hafði hann lesið sér til um íslenska sögu og forn- bókmenntir, hrifist af og vildi kynn- ast landi og þjóð. Hann hafði þá reyndar tekið upp nafnið Milbanke úr móðurfjölskyldu sinni. Erlendir ferðamenn voru sjaldséðnir og heim- sóknar hans var því getið í helsta blaði landsins, Þjóðólfi. Var hann sagður ungur vísindamaður sem lært hefði við háskólann í Öxnafurðu (Ox- ford) og legði mikinn hug á að læra íslensku. „Vér fulltreystum því, að landsmenn taki þessum göfuga unga útlendingi þar sem hann kemur og leiðbeini ferðum hans með þeim vel- vilja og alúð sem þeim er svo eig- inleg,“ sagði blaðið. Milbanke lærbrotnaði á ferðalagi í Þingeyjarsýslu síðsumars og var fluttur til umönnunar að Grenj- aðarstað í Aðaldal. Presturinn þar, séra Jón Jónsson, hafði læknisleyfi. Gesturinn féll fyrir heimasætunni, 16 ára sonardóttur séra Jóns, Guðnýju Halldórsdóttur, og vildi ólmur eiga hana. En hún var þá heitbundin pilti af næsta bæ, Benedikt Jónssyni, og vildi ekki rjúfa heitin. Milbanke ákvað að framlengja dvölina á Grenj- aðarstað í von um að Guðnýju snerist hugur og dvaldi þar allan veturinn. Guðný var ósveigjanleg og hélt von- biðillinn heim á leið sumarið eftir konulaus. Silkiklútar og skartgripir Nú hefur komið á daginn að sam- skiptunum lauk ekki með brottför Milbanke. Þá hefur ennfremur komið í ljós að til eru bréf sem sýna að nokkurt uppnám varð í fjölskyldu Guðnýjar vegna málsins og að hún sjálf íhugaði um tíma að játast Mil- banke. Hefði það gengið eftir hefði hún orðið greifynja á enskum herra- garði. Eftir að Milbanke var kominn heim til Englands tók hann upp á því að senda Guðnýju og öðru heim- ilisfólki á Grenjaðarstað pakka með ýmsum gjöfum. Þar á meðal voru skartgripir og silkiklútar. Einnig hef- ur varðveist söngljóðabók með nót- um sem hann sendi. Heimildir eru fyrir því að þessar sendingar hafi verið að berast á nokkru árabili. Tvo skartgripi sendi Milbanke sem hann vildi að Guðný bæri, demants- skreyttan hring og brjóstnælu. Það hefur líklega ekki verið talið viðeig- andi að Guðný bæri hringinn svo að úr varð að Ingibjörg frænka hennar, þremur árum yngri, dóttir séra Magnúsar, arftaka Jóns á Grenj- aðarstað, fékk hann til eignar. Hring- urinn hefur síðan verið erfðagripur í þeirri fjölskyldu. Áður en Þóra Mjöll fékk hringinn fyrr á þessu ári var hann í fórum ömmu hennar, Þóru Elfu Björnsson, en Ingibjörg á Grenjaðarstað er langamma hennar. Brjóstnælan gekk hins vegar til Guðnýjar. „Þá sögn kann hins vegar dótturdóttir Guðnýjar, Sigríður Bjarklind, að amma hennar átti enn brjóstnæluna góðu eftir að þau Bene- dikt voru gift hjón á Auðnum. Eitt sinn taldi Benedikt sig standa í mik- illi þakkarskuld við Elínborgu, konu séra Benedikts Kristjánssonar í Múla. Þegjandi og hljóðalaust hafði hann þá tekið næluna að konu sinni fornspurðri og gefið hana prest- frúnni. Hafði Guðnýju sárnað þessi gjörð manns síns ákaflega,“ skrifar Sveinn Skorri Höskuldsson í grein í Árbók Þingeyinga 1983. „Mig hefur stórum angrað ...“ Fjölskyldubréf sem varðveist hafa sýna að fóstra Guðnýjar og föð- ursystir, Hildur Johnsen, var í fyrstu mjög ósátt við að hún skyldi hrygg- brjóta Milbanke. „Mig hefur stórum angrað að þú ei hafðir vit til að sjá hvað þér var í veitt með þessu til- boði,“ skrifaði hún Guðnýju frá Kaupmannahöfn í ágúst 1862. Í öðru bréfi frá því í febrúar 1863 er Hildur farin að sætta sig við niðurstöðuna eftir að Guðný hefur útskýrt afstöðu sína: „Þú gjörðir rétt; ekki að lofa tryggð og elsku þeim manni sem þú ekki gast elskað.“ Nokkrum árum seinna er eins og bónorðið standi enn og Guðný sé á báðum áttum. Hefur hún þá verið að hugleiða að taka boðinu ef það geti orðið föður hennar að liði í bágum kjörum hans. Ekki varð af því. Í bréfi sem Hildur sendir Guðnýju sumarið 1876 segir hún fréttir af Milbanke sem kvænst hafði í millitíðinni og skilið síðan vegna ótryggðar eig- inkonu sinnar. Sagt væri að „hann væri oft hálfgeggjaður á vitinu. Ekki er allt gull sem glóir. Ég þakkaði guði í huga mínum að allt fór sem fór.“ Með hring frá aðalsmanni  Fóstra Guðnýjar á Grenjaðarstað vildi að hún tæki bónorði dóttursonar Byrons en snerist svo hugur  Sextán ára Kvennaskólastúlka ber hringinn sem hann sendi Guðnýju  Erfðagripur í fjölskyldunni Morgunblaðið/Árni Sæberg Með ættargripinn Þóra Mjöll Jósepsdóttir, 16 ára Kvennaskólastúlka, ber nú demantshringinn (á innfelldu mynd- inni til hægri) sem Ralph Milbanke sendi Guðnýju Halldórsdóttur á Grenjaðarstað fyrir meira en 150 árum. Hjón Guðný með Benedikt Jónssyni sem hún giftist. Morgunblaðið/Árni Sæberg Ralph Milbanke „Hann var sá furðulegasti maður sem ég hafði séð á ævi minni,“ skrifar Bandaríkjamaðurinn J. Ross Browne um Ralph Milbanke í ferðabók frá Íslandi 1862. Þeir hittust á prestssetrinu á Þingvöllum þegar Milbanke var á heimleið. Gerir Browne stólpagrín að dóttursyni Byrons lávarðar í bókinni, talar um ein- kennilegar upphrópanir hans og birtir skopmynd af honum. „Ég hitti hann í gestaherberginu þar sem hann var umkringdur ruglingslegu safni af kössum, pokum, bókum og íslenskum furðuhlutum, sem hann var að reyna að koma reglu á. Ef mér hefði ekki verið sagt að hann væri Englendingar hefði mér aldrei dottið það í hug. Hvorki útlit hans né hátterni bentu til þess. ... Það var engin leið að segja til um það hvort hann væri ung- ur eða gamall – hann gat jafnt verið tuttugu og fimm ára og fimmtugur. Hann var óhreinn og slettóttur úr ferðinni og annars dökkur yfirlitum með gulleita bletti í andliti. Hann hafði reglulega og næstum kvenlega andlitsdrætti, dökkbrún augu og hárið, sem var nærri því svart, náði niður á herðar og var sólbrunnið og kal- ið í endann. Á höfðinu hafði hann háan, keilulagaðan ullarhatt, grænan að lit, með grænu bandi og slaufu.“ Aldrei áður séð slíkan furðufugl Á Þingvöllum Teikning Ross Browne af þeim Milbanke. Eftir að Morgunblaðið sagði sögu Guðnýjar Halldórsdóttur á Grenjaðarstað og vonbiðils hennar, aðalsmannsins Ralph Milbanke, fyrir hálfum mánuði, hafa blaðinu borist nýjar upp- lýsingar um samskipti þeirra og dvöl Milbanke á Íslandi frá 1861 til 1862. Í fjölskyldum sem eiga rætur á Grenjaðarstað hafa varðveist ýmsar sagnir um þessa óvenjulegu ástarsögu. Þá kannaði Sveinn Skorri Hösk- uldsson heitinn, prófessor, heimildir um málið fyrir um þremur áratugum og birti í Ár- bók Þingeyinga 1983, auk þess sem hann gerði sögunni nokkur skil í bókinni Benedikt á Auðn- um árið 1993. Frásögn af Mil- banke á Íslandi er einnig að finna í bókinni Íslandsferð J. Ross Browne 1862 sem kom út 1976. Ættarsögur og bækur NÝJAR UPPLÝSINGAR STÓRAR STELPUR tískuvöruverslun Hverfisgötu 105 www.storarstelpur.is Munið bílastæði á bak við hús Nýjar vörur Við erum á facebook
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.