Morgunblaðið - 25.02.2016, Blaðsíða 42
42 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2016
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Danskir loðdýrabændur hafa byggt
upp mikið veldi í uppboðshúsi sínu,
Kopenhagen Fur sem staðsett er í
Glostrup rétt utan við Kaupmanna-
höfn. Uppboðshúsið er það stærsta í
heiminum í sölu minkaskinna og bæt-
ir stöðugt hlutdeild sína á heims-
markaðnum, ekki síst með öflugu
starfi í Kína. Asíumarkaðurinn hefur
leitt vöxtinn undanfarin ár sem varð
til þess að verð á minkaskinnum var
mjög hátt um tíma.
Öll minkaskinn sem framleidd eru
á Íslandi eru seld hjá Kopenhagen
Fur og er það eina framleiðslulandið
sem ekki skiptir sér á milli uppboðs-
húsa. Rúmlega 95% framleiðslu
danskra minkabúa eru seld hjá Ko-
penhagen Fur, hitt fer á önnur upp-
boð. Tage Pedersen, minkabóndi og
formaður stjórnar uppboðshússins,
sagði á fundi með gestum frá Íslandi
að það væri gott að danskir minka-
bændur hefðu frelsi til að skipta við
aðra því það veitti fyrirtækinu að-
hald. Það þyrfti að vera betra en önn-
ur uppboðshús til að fá viðskiptin.
Í gegn um uppboð fyrirtækisins
fara um 55-60% af þeim minkaskinn-
um sem framleidd eru í heiminum,
fyrir utan Kína. Kínverska fram-
leiðslan er ekki seld á uppboðum.
Þekkingin sótt til Danmerkur
Íslenskir minkabændur eru virtir
hjá danska uppboðshúsinu, umfram
fjölda skinna sem þeir framleiða.
„Samstarfið við Kopenhagen Fur er
okkur mikilvægt. Þetta er okkar leið
til að koma vörunni til kaupenda.
Þarna höfum við einnig aðgang að
bestu fáanlegu þekkingu á minka-
rækt, bæði í gegn um uppboðshúsið
og leiðbeininga- og rannsóknarþjón-
ustu dönsku loðdýraræktarsamtak-
anna,“ segir Björn Halldórsson, for-
maður Sambands íslenskra
loðdýrabænda, SÍL. Hann segir að ís-
lenskir minkabændur hafi byggt upp
innviði greinarinnar að danskri fyr-
irmynd og sæki þangað tækni, þekk-
ingu og erfðaefni.
Þetta hefur leitt til þess að með-
alverð íslenskra minkaskinna hefur
verið að nálgast dönsku verðin. Ís-
lensku skinnin eru nú talin næstbestu
skinnin á markaðnum.
Björn tekur undir þau orð að vissu-
lega komi ekki mörg skinn frá Ís-
landi, miðað við allan þann fjölda sem
fer í gegn hjá Kopenhagen Fur. „Það
skiptir þá örugglega máli að við send-
um öll okkar skinn til danska upp-
boðshússins. Þeir hampa því gjarnan
á fundum. Eins skiptir það uppboðs-
húsið máli að fá sem flest gæðaskinn
til að draga kaupendur að.“ Íslensku
skinnin fylla þann flokk.
Bændur geta lítið annað gert en
skilað sem bestum afurðum. Heims-
markaðurinn er hinn harði húsbóndi
og hann ræður verðinu og þar með af-
komu bændanna. Hún er ekki góð um
þessar mundir vegna verðlækkunar.
Fimm uppboð eru hjá Kopenhagen
Fur á sölutímabilinu sem er frá jan-
úar til september. Þá er verið að selja
framleiðslu ársins á undan.
Öll skinnin eru flokkuð nákvæm-
lega eftir stærð og gæðum. Þau eru
síðan boðin upp í kippum. Kaupend-
urnir hafa aðgang að sýnishornum til
að vega skinnin og meta. Á bak við
sýnishornin er fjöldi skinna sem á að
vera af nákvæmlega sömu gæðum.
Þetta er mikil nákvæmnisvinna og er
fjöldi fólks í flokkunarvinnu stóran
hluta ársins. Hjá Kopenhagen Fur
hafa verið þróaðar vélar til að auð-
velda flokkun og vélarnar munu
smám saman taka kúfinn af vinnunni
enda fljótvirkar og nákvæmar.
„Það er styrkur okkar að vera með
mismunandi gæði. Þetta er eina upp-
boðshúsið sem getur boðið alla gæða-
og stærðarflokka. Það dregur að
marga kaupendur og við fáum hærra
verð en aðrir,“ segir Tage.
Mikilvæg samvinna við Dani
Ísland er eina framleiðsluland minkaskinna sem selur öll sín skinn í danska uppboðshúsinu
Minkarækt á Íslandi er byggð upp að danskri fyrirmynd og gæðin nálgast bestu skinn heimsins
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Uppboð Lítil stemning hefur verið í uppboðssalnum hjá Kopenhagen Fur að undanförnu. Enn eru til birgðir úti á
mörkuðunum og offramboð hjá uppboðshúsunum. Heldur líflegra var á febrúaruppboði. Um 400 kaupendur mættu.
Þegar uppboð nálgast hjá Kopen-
hagen Fur drífur að fjölda erlendra
gesta. Flestir eru frá Kína sem hefur
verið mikilvægasti markaðurinn síð-
ustu árin. Byggingarnar iða af lífi í
hálfan mánuð, fyrir og á meðan upp-
boðið stendur yfir.
Kopenhagen Fur er með umtals-
verða starfsemi í Kína. Þar eru 25
starfsmenn á skrifstofu við að þjóna
viðskiptavinum og afla nýrra. Einn-
ig er hlutverk þeirra að kenna
starfsfólki stórmarkaða að meta
gæði minkaskinna svo það geti áttað
sig á þeim mun sem er á dönskum
skinnum og framleiðslunni í Kína.
Einnig styður Kopenhagen Fur
háskóla í Peking við rekstur hönn-
unardeildar. Tage Pedersen stjórn-
arformaður segir að nemendur sem
hafi áhuga á að vinna við loðskinn
fái hráefni frá uppboðshúsinu. „Við
leggjum mikla peninga í mennta-
málin í Kína. Tilgangurinn er að
selja meira af skinnum og á hærra
verði.“
Sem dæmi um magnið sem fer til
Kína má nefna að eftir febr-
úaruppboðið í Glostrup fara sautján
747-Júmbóþotur til Kína, fullar af
minkaskinnum. Þetta er gert til að
kaupendur fái skinnin fljótt. Þá
stendur fyrirtækið að byggingu
vöruhúsa í Kína, með öðrum fyr-
irtækjum, til að þjóna viðskiptavin-
um. Með því móti getur það komið
skinnum inn í landið á 3-4 dögum og
greitt af þeim tilskilin innflutnings-
gjöld en áður var mikið um það að
kaupendur þyrftu að bíða vikum eða
mánuðum saman eftir skinnunum og
jafnvel reiða sig á þjónustu fyr-
irtækja eða einstaklinga sem smygl-
uðu þeim inn í landið.
Uppboðshúsið vill helst að kaup-
endur komi í uppboðshúsið í Dan-
mörku, skoði skinnin og bjóði þar í.
Til greina hefur komið að hafa einn-
ig netuppboð, sérstaklega fyrir
smærri kaupendur sem ekki telja
svara kostnaði að fara alla þessa
leið. Það hefur ekki þótt vænlegt af
tæknilegum ástæðum, hvað sem
verður. Þó koma nú saman hópar í
Kína á vegum Kopenhagen Fur og
fylgjast með uppboðinu í fjarfund-
arbúnaði. Þeir geta síðan hringt í
fulltrúa sína í uppboðshúsinu og
beðið þá að bjóða í skinn, ef þeim svo
líst á.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Flokkun Skinn bíða uppboðs.
Sautján Júmbóþotur
með skinn til Kína
Danska uppboðshúsið Kopen-
hagen Fur er í eigu 1450 bænda.
Það er í Glostrup, utan við Kaup-
mannahöfn. Húseignir þess eru
um 120 þúsund fermetrar að
flatarmáli. Þar vinna mörg
hundruð starfsmenn í 450 árs-
störfum. Kopenhagen Fur hefur
verið að auka markaðshlutdeild
sína í sölu minkaskinna og er
langstærsti seljandinn. Umsetn-
ingin ræðst ekki aðeins af fjölda
skinna heldur ekki síður af
heimsmarkaðsverði. Fyrirtækið
velti í fyrra 10,5 milljörðum
danskra króna sem svarar til
200 milljarða íslenskra. Mest
hefur veltan orðið 14 milljarðar.
Reiknað er með 6 milljörðum í ár
vegna verðfalls og samdráttar.
Húsakynni á
12 hekturum
MIKIL UMSVIF
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Skoðun Gæðin eru margprófuð hjá uppboðshúsinu, áður en skinn eru boðin
upp. Minkabændur koma að því með starfsmönnum uppboðshússins.
fenix 3 sameinar glæsilega hönnun og fjölnota GPS snjallúr
Íþrótta- og útivistarfólk þarf ekki lengur að velja á milli – fenix 3 er bæði fullkomið íþróttaúr, útivistarúr,
snjallúr og úr sem þú notar daglega í vinnu og leik. Þú getur einnig sérsniðið úrið að þínum þörfum með
mismunandi upplýsingagluggum, forritum eða úraskífu með Connect IQ appinu frá Garmin.
Ögurhvarfi 2, 203 Kópavogur, sími 577 6000, garmin.is
toppaðu
gærdaginn