Morgunblaðið - 25.02.2016, Qupperneq 57
UMRÆÐAN 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2016
Óheppilegt er fyrir
Dag B. Eggertsson að
gefa út ótímabærar og
fjarstæðukenndar yf-
irlýsingar um að lokun
SV-NA brautarinnar í
Vatnsmýri sé í sjón-
máli á þessu kjör-
tímabili eftir að lagt
var til að skoðaðir
yrðu möguleikar á
lagningu nýs flug-
vallar í Hvassahrauni.
Nú spyrja einhverjir hvort borg-
arstjóri Reykvíkinga standi í ill-
indum við Hafnfirðinga og Keflvík-
inga sem segjast eiga þetta svæði.
Engan flugvöll í 5 km fjarlægð frá
okkar íbúðarbyggð, segja Hafnfirð-
ingar sem tala aldrei á sömu nótum
og Dagur B. Hugmyndin um að
kanna möguleika á nýjum innan-
landsflugvelli í Hvassahrauni fellur í
grýttan jarðveg hjá yfirkennara
Flugskóla Íslands og þeim flug-
mönnum sem hafa alltaf staðið sig
vel og sinnt farþega- og sjúkraflug-
inu með góðum árangri. Engum
kemur á óvart að einkaflugmenn
telji það brjálæði gagnvart öllu flug-
öryggi að velja Hvassahraun fyrir
flugsamgöngur sem snerta alla
Reykvíkinga líkt og aðra landsmenn.
Óheppilegt er að samtökin Hjartað í
Vatnsmýri mæli með nýjum innan-
landsflugvelli á þessum stað án þess
að rannsakað verði hvort áhættu-
samt sé að hafa flugvöll í hrauni. Ég
spyr: Hvers vegna var ekki strax í
upphafi kannað vandlega hvort jarð-
fræðilegar aðstæður undir Hvassa-
hrauni væru góðar eða mjög slæmar
og hvað kostnaðurinn við að grafa
upp allt svæðið gæti orðið mikill ef
fyllingarefnum yrði komið þar fyrir?
Vegna umferðarteppunnar sem
eykst alltof mikið og hefur sprengt
vegakerfið á Reykjavíkursvæðinu er
óskynsamlegt og alltof áhættusamt
að hafa innanlandsflugvöll í 23 km
fjarlægð frá sjúkrahúsum höfuð-
borgarinnar þegar sjúkraflugvél
þarf að komast suður á sem stystum
tíma með fárveikan mann utan af
landi. Nú skal Alþingi hafa síðasta
orðið og stöðva atlögu borgarstjór-
ans að sjúkrafluginu sem er mann-
skemmandi og engum bjóðandi. Til-
efnislaus árás borgarstjórans á
sjúkraflugmenn Mýflugs og fjar-
stæðukenndar fullyrðingar um að
þeir hafi bara lent á neyðarbrautinni
til að vekja athygli á sér einkennast
af blindu landsbyggðarhatri, fáfræði
og fyrirlitningu borgarstjórnar-
meirihlutans á sjúkrafluginu. Svona
rangfærslur um þessa sjúkra-
flugmenn eru ótrúverðugar og til há-
borinnar skammar. Um síðustu ára-
mót urðu flugmennirnir að nota
neyðarbrautina vegna hliðarvinds
sem stóð þvert á hinar brautirnar.
Útilokað er að Dagur B. hafi heimild
til að ákveða að eigin geðþótta lokun
neyðarbrautarinnar í andstöðu við
Alþingi sem hefði fyrir löngu átt að
fá forræðið yfir Reykjavíkur-
flugvelli. Fullvíst þykir að óhjá-
kvæmilegt sé að taka skipulags-
valdið í Vatnsmýri af borgar-
stjórnarmeirihlutanum sem vinstri
öflin misnota í andstöðu við 73%
Reykvíkinga og alla landsmenn.
Krafan um nýja öryggisbraut í
Keflavík í stað SV-NA brautarinnar
í Vatnsmýri setur sjúkraflugið í
sjálfheldu og verður ávísun á enn
frekari vandræði sem íslenskir
skattgreiðendur geta aldrei borgað
fyrir. Dagur B. skal ekki treysta því
að hægt verði á næstu árum að
ákveða lagningu nýs flugvallar í
Hvassahrauni án þess að hraunavin-
ir rísi enn einu sinni upp og hóti
málaferlum sem þeir geta stofnað til
þegar í hart fer. Hvergi slaka þeir á
klónni til að sýna fram á hver tapi
orrustunni og sitji síðan uppi með
skömmina. Hér á landi er það vel
þekkt að hraunavinir og talsmenn
Náttúruvernd-
arsamtakanna hóti lög-
sókn og geti óhræddir
þvælst fyrir þegar þeir
setja verktökunum stól-
inn fyrir dyrnar til að
stöðva framkvæmdir
við samgöngu-
mannvirki sem stytta
vegalendir á milli lands-
hlutanna og tryggja ör-
yggi byggðanna. Ekki
hafa allir þingmenn
stjórnarflokkanna stað-
ið sig vel eftir að þing-
maður Norðausturkjördæmis,
Höskuldur Þórhallsson, flutti þings-
ályktunartillögu um að forræðið yfir
Reykjavíkurflugvelli yrði flutt frá
borginni til íslenska ríkisins sem enn
fleiri landsbyggðarþingmenn áttu
strax að sameinast um eftir stjórn-
arskiptin 2013. Verra er að ekki
skuli vera full samstaða í Sjálfstæð-
isflokknum um þessa tillögu sem 15
stjórnarþingmenn vilja strax koma í
gegnum þingið þó að fyrrverandi
innanríkisráðherra sé ekki sama
sinnis.
Árás borgarstjóra
á flugmenn Mýflugs
Eftir Guðmund
Karl Jónsson
»Krafan um nýja ör-
yggisbraut í Kefla-
vík í stað SV-NA braut-
arinnar í Vatnsmýri
setur sjúkraflugið í
sjálfheldu.
Höfundur er farandverkamaður.
Guðmundur Karl
Jónsson
Eitt af verkefnum
Rótarýhreyfing-
arinnar er ungmenn-
astarf. Í því er m.a.
lögð áhersla á að gefa
ungu fólki tækifæri til
að dvelja í öðru landi í
mislangan tíma í sum-
arbúðum, sem sum-
arskiptinemi eða
skiptinemi í heilt ár svo
eitthvað sé nefnt. Með
þessu ungmennastarfi er verið að
fylgja einu af markmiðum Rótarý að
auka „velvild og vinarhug“ eins og
segir í fjórprófi hreyfingarinnar. Að
gefa ungu fólki tækifæri til að kynn-
ast menningu, sögu og viðhorfum
annarra þjóða eykur víðsýni þess og
skilning, dregur úr fordómum og er
þannig eitt lítið lóð á vogarskál friðar
í heiminum.
Hér á Íslandi dvelja nú fjórir
skiptinemar á vegum Rótarý víðs-
vegar að úr heiminum. Síðastliðið
sumar tókum við fjölskyldan á móti
17 ára stúlku frá Ekvador og dvaldi
hún hjá okkur þar til um síðustu
mánaðamót þegar hún flutti til ann-
arrar fjölskyldu þar sem hún mun
dvelja fram á sumar er hún heldur
heim á leið. Við móttöku skiptinema
á vegum Rótarý er stefnt að því að
skiptinemarnir dvelji hjá a.m.k.
tveimur fjölskyldum þannig að þeir
fái sem mest út úr dvölinni en eru þó
í sama skólanum allan tímann. Það
getur verið krefjandi að taka óskyld-
an einstakling frá öðru menning-
arsvæði sem talar ekki tungumálið
inn á heimilið en það er líka mjög gef-
andi og lærdómsríkt. Þannig mynd-
ast tengsl og vinátta sem á eftir að
endast ævilangt, ekki
síst á milli skiptinemans
og yngra fólksins á
heimilinu. Það er líka
ánægjulegt að kynna
þeim land og þjóð,
hvernig við höfum það
hér á Íslandi í sam-
anburði við heima-
landið. Hún Enith okk-
ar hafði t.d. ekki séð
snjó áður en var þó fljót
að ná tökum á að renna
sér á skíðum. Erlendu
skiptinemarnir kynnast
líka vel innbyrðis og taka þátt í
skipulögðu starfi á vegum Rótarý.
Á sama tíma og við fengum Enith
fór dóttir okkar til ársdvalar í Maine-
fylki í Bandaríkjunum. Rótarýhreyf-
ingin er upprunnin þar í landi og
klúbbstarfið mjög öflugt. Þó svo að
íslenskir unglingar þekki bandaríska
dægurmenningu vel í gegnum tónlist
og margskonar miðla veit ég að fyrir
dóttur okkar opnaðist nýr heimur við
að kynnast bandarísku þjóðlífi og
menningu og svo öllum hinum skipti-
nemunum sem koma víða að. Skóla-
starfið er líka með allt öðru sniði þar
en hér. Í lok dvalar skipuleggur Rót-
arýsvæðið á austurströnd Bandaríkj-
anna tveggja vikna ferð fyrir alla
skiptinemana til vesturstrand-
arinnar.
Ég hvet alla áhugasama til að
kynna sér ungmennastarf Rótarý á
rotary.is. Að fara sem skiptinemi til
skemmri eða lengri dvalar er ómet-
anleg reynsla fyrir ungt fólk sem
geymist í minningabankanum ævi-
langt.
Að sjá snjó í fyrsta sinn
Eftir Sigurbjörn
Gunnarsson
Sigurbjörn Gunnarsson
»Með þessu ung-
mennastarfi er verið
að fylgja einu af mark-
miðum Rótarý að auka
„velvild og vinarhug“
eins og segir í fjórprófi
hreyfingarinnar.
Höfundur er félagi í Rótarýklúbbnum
Reykjavík-Breiðholt.
Hagasmári 1, 201 Kópavogur Sími : 512 8900 reginn@reginn. is
Stjórn Regins hf. boðar til hluthafafundar í félaginu og verður hann
haldinn í Hörpu tónlistar – og ráðstefnuhúsi, í fundarsalnum Rímu,
Austurbakka 2, 101 Reykjavík, þriðjudaginn 22. mars 2016 og hefst
stundvíslega kl. 17.00.
Dagskrá fundarins er svohljóðandi:
1. Tillaga um heimild til stjórnar til að hækka hlutafé félagsins
um allt að 126.600.000,- kr. að nafnvirði með breytingu á
samþykktum félagsins sem felst í eftirfarandi viðbót við 4. gr.
samþykkta félagsins:
„Stjórn félagsins er heimilt að hækka hlutafé félagsins um allt
að 126.600.000,- kr. að nafnvirði. Lögbundinn forgangsréttur
hluthafa gildir ekki um hið nýja hlutafé. Stjórninni skal ráðstafa
hlutafjárhækkuninni sem greiðslu fyrir hlutafé í CFV 1 ehf. og
Ósvör ehf. í samræmi við kaupsamning þar að lútandi á genginu
19,0 kr. á hlut. Hinir nýju hlutir skulu veita réttindi í félaginu frá
skráningardegi hlutafjárhækkunarinnar. Framangreind heimild
stjórnar Regins hf. rennur út þann 31. desember 2016.”
2.Tillaga um eftirfarandi breytingar á 22. gr. samþykkta
félagsins:
a) Eftirfarandi setning í 2. mgr. 22. gr. falli niður:
„Náist ekki viðhlítandi niðurstaða má samþykkja nauðsynlega
breytingu með nýrri ákvörðun hluthafafundar“.
b) Ný málsgrein sem verður 3. mgr. 22. gr. bætist við og hljóði svo:
„Ef ljóst er fimm dögum fyrir aðalfund að komandi stjórn mun
ekki uppfylla skilyrði um kynjahlutföll samkvæmt 2. mgr. 22. gr.
samþykkta þessa er sitjandi stjórn heimilt að leita eftir framboðum
einstaklinga af því kyni sem hallar á. Hafi frambjóðendur af því kyni
sem hallar á ekki boðið sig fram tveimur dögum fyrir aðalfund skal
stjórn boða til framhaldsaðalfundar 3-4 vikum eftir aðalfund og
auglýsa að nýju eftir framboðum. Skal boða til framhaldsaðalfundar
svo oft sem þörf krefur til þess að ná kynjahlutfalli skv. 2. mgr.
22. gr. og skal stjórn sitja þar til slíku kynjahlutfalli er náð.“
c) Ný málsgrein sem verður 4. mgr. 22. gr. bætist við og hljóði svo:
„Náist kynjahlutföll 2. mgr. 22. gr. ekki við kosningu stjórnar á
hluthafafundi skal sá er fékk flest atkvæði af þeim sem náðu ekki
kjöri, og er af því kyni sem hallar á, taka sæti þess er fæst atkvæði
fékk af þeim sem náðu kjöri, og er af fjölmennara kyninu. Hafi slík
kynjahlutföll ekki enn náðst skal sá er fékk næstflest atkvæði af þeim
sem náðu ekki kjöri, og er af því kyni sem hallar á, taka sæti þess er
næstfæst atkvæði fékk af þeim sem náðu kjöri, og er af fjölmennara
kyninu.“
3.Önnur mál
Hluthafi getur látið umboðsmann sækja hluthafafund fyrir sína hönd.
Umboðsmaður skal leggja fram skriflegt eða rafrænt umboð og skal
það dagsett. Umboð verða ekki afturkölluð svo gilt sé gagnvart félaginu
eftir að því hefur verið framvísað við afhendingu fundargagna eða eftir
setningu fundarins, hvort heldur sem fyrr er.
Hver hluthafi á rétt á að fá ákveðið mál tekið til meðferðar á hluthafa-
fundinum, ef hann gerir skriflega kröfu um það til stjórnar með það
löngum fyrirvara, að unnt sé samkvæmt samþykktum þessum að taka
málið á dagskrá fundarins. Nánar um heimildir hluthafa til að fá mál tekin
til meðferðar á fundinum vísast til samþykkta félagsins sem finna má á
heimasíðu þess.
Hluthafafundurinn er lögmætur ef löglega er til hans boðað, án tillits
til þess hversu margir sækja hann skv. 2. mgr. 16. gr. sbr. 14. gr.
samþykkta félagsins.
Dagskrá og endanlegar tillögur með greinargerð ásamt öðrum gögnum
sem tillögunni kunna að fylgja munu vera hluthöfum til sýnis á skrifstofu
félagsins í Smáralind, 3. hæð, Hagasmára 1, 201 Kópavogi, þremur vikum
fyrir hluthafafundinn. Dagskrá og endanlegar tillögur verða auk þess
aðgengilegar á heimasíðu félagsins, www.reginn.is.
Kópavogur, 23. febrúar 2016.
Stjórn Regins hf.
Hluthafafundur í Reginn hf.
verður haldinn 22. mars 2016
Endurbirt vegna rangrar dagsetningar í fyrri tilkynningu
Risaskor í Gullsmáranum
Spilað var á 10 borðum í Gull-
smára fimmtudaginn 18. febrúar.
Úrslit í N/S:
Birna Lárusd.-Sturlaugur Eyjólfsson 207
Guðm. Pálsson - Sveinn Símonarson 193
Guðlaugur Nielsen - Pétur Antonsson 192
Jón Bjarnar - Katarínus Jónsson 181
A/V:
Birgir Ísleifsson - Jóhann Ólafsson 240
Kristín G. Ísfeld - Óttar Guðmss. 201
Sigurður Gíslason - Reynir Bjarnason 197
Gunnar M. Hansson - Hjörtur Hanness. 192
Skor þeirra Birgis og Jóhanns er
rúmlega 71%. Mjög góð skor.
Íslandsmót
í tvímenningi
Íslandsmótið í tvímenningi fer
fram helgina 27.-28. febrúar og verð-
ur spilað í höfuðstöðvunum í Síðu-
múlanum.
Íslandsmeistarar frá 2015 eru þeir
Kristján Már Gunnarsson og
Gunnlaugur Sævarsson.
Skráningu lýkur kl. 12 föstudag-
inn 26. febrúar.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| brids@mbl.is