Morgunblaðið - 25.02.2016, Qupperneq 78
78 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2016
Það er allt að gerast, við erum nýbyrjuð að æfa með hljómsveit-inni, það er gríðarlegt stuð hérna og allir mjög spenntir fyrirfrumsýningunni,“ segir Maríanna Clara Lúthersdóttir leik-
kona sem tekur þátt í uppfærslu Borgarleikhússins á söngleiknum
Mamma Mia!. Frumsýningin verður 11. mars. Maríanna leikur Rosie,
sem Julie Walters lék í samnefndri kvikmynd. „Það hlutverk hentar
mér vel því ég er hvorki söngkona né dansari og flýt því á kómíkinni
einni saman.“
Síðast lék Maríanna í Línu langsokk og Sókrates en sýningum er
nýlokið á báðum þeim verkum. „Ég fékk því tvær stórkostlegar frí-
helgar sem ég var mjög þakklát fyrir því þá get ég gert eitthvað
skemmtilegt með fjölskyldunni áður en ég kveð hana aftur til skamms
tíma,“ en áætlaðar eru 78 sýningar á Mamma Mia! áður en farið er í
sumarfrí í lok júní. „Það er því eins gott að það sé svona gaman í
vinnunni en ég er að vinna með svo skemmtilegu fólki að það er bein-
línis vandræðalegt og enginn er orðinn leiður á ABBA-lögunum. Það
er eins og við séum sjálf í skemmtilegri bíómynd.
Það er ekkert gríðarlegur tími fyrir önnur áhugamál en leiklist, en
ég er í ritnefnd tímaritstins Börn og menning og sit í stjórn IBBY, sem
eru alþjóðleg samtök um barnamenningu og gefa blaðið út. Þegar
sýningar hefjast á Mamma Mia! hef ég meiri tíma á daginn og þá
stefni ég á að skrifa um bækur en ég hef verið að skrifa á blogginu
Druslubækur og doðrantar.“
Eiginmaður Maríönnu er Ólafur Björn Ólafsson tónlistarmaður og
sonur þeirra er Dýri Ólafsson 4 ára.
Morgunblaðið/Eggert
Fer með hlutverk Rosie Maríanna er ekki sú eina í hópnum sem á af-
mæli í dag því tónlistarstjóri sýningarinnar, Jón Ólafsson, er 53 ára.
Æfingar á Mamma
Mia! í fullum gangi
Maríanna Clara Lúthersdóttir er 39 ára
F
innbogi fæddist á Ísa-
firði 25.2. 1966 en ólst
upp í Bolungavík: „
Toppurinn á æskuár-
unum fólst í því að
stússast á bryggjunni við veiðar eða
aðstoða trillukallana.“
Finnbogi var í grunnskóla Bol-
ungavíkur, lauk stúdentsprófi frá MÍ
1986, sótti nám í eðlis- og stærðfræði,
lauk flugradíóprófi við AFIS þjón-
ustu, var flugradíómaður á Ísafjarð-
arflugvelli og afgreiðslustjóri hjá
Flugleiðum og síðar Flugfélagi Ís-
lands til ársins 2007. Hann hefur sótt
fjölda námskeiða um stjórnun og fé-
lagsstörf. Réttindamál á vinnumark-
aði hafa lengi verið hluti af umsýslu
Finnboga enda hefur hann sinnt fjöl-
breyttum verkamannastörfum, svo
sem við ræstingar, fiskvinnslu, bygg-
ingarvinnu og þjónustustörf.
Finnbogi Sveinbjörnsson, form. Verk Vest – 50 ára
Börnin hans Finnboga Hér má sjá Matthías, Jónbjörn, Stellu og Ísak Atla, uppábúin, á leið í einhverja fína veislu.
Félagsmálamaður
með nokkur áhugamál
Kátir karlar Gleðipinnar Finnboga gera alltaf eitthvað af sér í Grunnavík.
Reykjavík Hilmar Freyr
Þorsteinsson fæddist
8. október 2015. For-
eldrar hans eru Júlía
Dögg Haraldsdóttir og
Þorsteinn Heiðberg
Guðmundsson.
Nýir borgarar
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Síðumúla 11 - Sími 568-6899 - Opið virka daga: 8 til 18; Laugardaga 10 til 14 - www.vfs.is
21.990
Verð
Hjólatjakkur 3T
Stöðugur hjólatjakkur sem lyftir 52cm,
lægsta staða 14,5cm.
Burðarþol 3 tonn.
TJ T83001
Þvottakar 20 Gallon
Þvottakar sem hentar vel fyrir þrif á varahlutum
og verkfærum.
TJ TRG4001-20
Til í fleiri stærðum
Sandblásturskassi
Flottur sandblásturskassi sem hentar vel á
verkstæðið. Vinnupláss: 60x84x63cm.
TJ TRG4222
Til í fleiri stærðum
22.990
Verð
69.900
Verð
Kapaltromla 25m
Lengd 25m, leiðir 3G1,5 H05VV-F
BR 1099150027
6.990
Verð
Digital rennimál
150mm, 0,02mm skekkja
TO YT7201
4.990
Verð
Vélagálgi 1 Tonn
Hámarkshæð 2000mm,
lægstahæð 25mm.
Burður 1 Tonn
TJ T31002
Til í fleiri stærðum
49.900
Verð
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is