Morgunblaðið - 25.02.2016, Blaðsíða 80
80 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2016
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Í stað þess að reyna að komast yfir
allt sem þú ætlaðir að gera í dag ættir þú
að spyrja þig að því hver þú ættir að vera í
dag. Viðtökur annarra koma á óvart.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú stendur eins og klettur í öllu því
róti sem í kringum þig er. Komandi tímar
munu reynast mikil prófraun.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Vandamálin hverfa ekki þó að þú
sópir þeim undir teppið svo það er eins gott
að ráðast strax á þau meðan þú hefur tæki-
færi til. Láttu það ekki fara í taugarnar á
þér.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú hefur góða tilfinningu fyrir tíma-
setningum. Nú gengur allt sem sagt að
óskum. Með því að gaumgæfa það tekur þú
jafnframt afstöðu til lífsskoðana þinna.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Nýir straumar eru að koma inn í líf
þitt og það ríður á miklu að þú mætir þeim
opnum huga. Mundu að hlutirnir gerast ekki
sjálfkrafa og þú þarft að hafa fyrir þeim.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það er eitt og annað sem þú ert að
kljást við þessa dagana, en með réttu
hugarfari ferðu létt með það. Leyfðu list-
hneigð þinni að njóta sín.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú færð tök á því að bæta stöðuna í
fasteignamálum verulega. Gættu þess bara
að láta ekkert koma þér á óvart í leit þinni.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Vinnan er þér leikur einn og þú
nýtur hverrar stundar svo að það hefur
hvetjandi áhrif á vinnufélagana. Seinna
muntu líta aftur til dagsins í dag og hugsa:
Gerðist þetta?
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er þér létt verk og löður-
mannlegt að kippa í liðinn þeim smáatriðum
sem hafa farið úrskeiðis. Ekki nota klisjuna:
„Við þurfum að tala saman“, notaðu frekar
innsæið og sjarmann.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú gætir fundið fyrir ráðríki
vegna hlutar þíns í einhverju sem á að deila
niður. Eitthvað meiriháttar gæti gerst ef þú
tekur þetta alvarlega.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú vinnur þér hlutina of erfiðlega
og það getur haft hinar verstu afleiðingar
fyrir þig. Byrjaðu á því að reyna að gera þér
grein fyrir stöðunni.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Ekki láta eigingirnina ná tökum á
þér. En best fer á því að sumir hlutir verði
aldrei skýrðir, því ekkert líf er án leynd-
ardóma.
Á mánudag birtust hér limrureftir Ólaf Stefánsson um fram-
kvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna
en þær höfðu áður birst á Leirnum.
Þær gáfu Bjarka Karlssyni tilefni
til þessara athugasemda: „Velkom-
inn í aðalritaralimrusmiðahópinn,
Ólafur, og komdu fagnandi. Ég lét
prenta eftirfarandi ósköp í október
2013 og svo gerðu nokkrir gár-
ungar rokklag við það sem kom út á
plötu 2014. Vonandi verður aðalrit-
aralimrugerð að þjóðaríþrótt.
Í Tromsø bjó Trygve Lie.
Tróð í sig sellerí
og gúrku og tómat,
sá góði diplómat,
svo fór hann á fyllerí.
Dag heitinn Hammarskjold
hugfanginn var af mold.
Á lirfum og mýi
lifði sá Svíi
uns genginn hann gaf þeim sitt hold.
Ítrekað át U Thant
(sá alræmdi kverúlant)
þjóðarrétt Búrma:
þránaðan súrmat,
auga úr elefant.
Helst vildi hann Waldheim, Kurt
volgra sér kálið súrt
með skóreimum, skurn, merg
og skólpi frá Nurnberg
blandað við berjajógúrt.
Frá Perú er Pérez de Cuéllar
pilta hann þráir og meyjar
framreidd af grilli
með fennel og dilli
- þá garmurinn de Cuéllar geyjar.
Bútros – minn – Bútros Ghali
borinn var Nílardal í.
Þar býr enginn Nings
því borða menn Sfinx
og falla af því flestir val í.
Í kofa bjó Kofi Annan.
Kofanum sínum ann’ann
en át hann af vana
(það er algengt í Ghana)
og keypti sér kofa annan.
Er banaði Ban Ki-moon
og borðaði pönduhún
var Kóreubúinn
rænunni rúinn
og hrópaði Garún! Garún!“
Fía á Sandi yrkir „heitari bjór-
limru“ í frostinu og snjónum:
Það hlýtur að fara að hlýna,
sögðu Hannes og drykkfellda Stína,
ölið er frosið
og ískalt er gosið.
Þau suðu loks bjórana sína.
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Rétt er að rifja upp
aðalritaralimrur
Í klípu
„VIÐ ERUM ALGJÖRLEGA STRAND.
KANNSKI ÞÚ ÆTTIR AÐ REYNA AÐ HUGSA
ÚT FYRIR KVIÐDÓMSKASSANN.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„REYNIR SLÁTRARI MUN SKERA
ÞENNAN Á MORGUN.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... í tísku.
MATUR! GÆTI EINHVER
VINSAMLEGAST HALLAÐ
HÚSINU Í ÞESSA ÁTT?
ÉG GÆTI UNNIÐ ÞIG MEÐ
ANNAN HANDLEGGINN BUNDINN
FYRIR AFTAN BAK!
LÁTTU HANN
HEYRA ÞAÐ,
STJÓRI!!
ÉG SKAL BINDA
HANDLEGGINN
Á HONUM!!
Þú ert allt of matvandur,“ er setn-ing sem Víkverji er vanur að
heyra í vinnunni. Hann viðurkennir
alveg að smekkur hans sé kannski
sértækari en flestra, en engu síður
kannast hann ekkert við það að hann
sé matvandari en annað fólk. Hann er
til dæmis sá eini sem hann þekkir
sem finnst gott að setja ansjósur á
pitsu.
x x x
Það var þó kannski erfiðara en ellafyrir Víkverja að réttlæta sig um
daginn, þegar mötuneytið ákvað í lok
erfiðs vinnudags að bjóða upp á dýr-
indis tebollur. Eini gallinn var sá að
þær innihéldu rúsínur. Víkverja
finnst rúsínur afskaplega vondar, en
hann getur ekki ákveðið sig, hvort
það er vegna þess að honum þyki
bragðið vont, eða vegna þess að hann
tengir þær alltaf við dauðar flugur
eftir að hafa horft á þættina um
Heilsubælið í Gervahverfi á sínum
tíma.
x x x
Þar sem Víkverji stóð og pikkaðirúsínurnar eina og eina úr teboll-
unum hvarflaði einnig að honum að
honum finnast hnetur frekar vondar
á bragðið. Stundum óskar Víkverji þó
þess hreinlega að hann væri með of-
næmi fyrir hnetum, því að „hnetu-
fólkinu“ finnst ekkert óskiljanlegra
en að einhverjum geti þótt hnetur
vondar á bragðið. Fyrir því er eina
löggilda afsökunin fyrir því að borða
ekki hnetur sú að vera með ofnæmi.
En Víkverji getur bara ekkert gert
að því að hann sé ekki með hnetu-
ofnæmi, að honum finnist hnetur í
raun og veru vondar á bragðið.
x x x
Málið vandast hins vegar þegarhonum er boðið súkkulaði. Vík-
verja finnst súkkulaði ágætt, eins og
sést á mittismáli hans. Engu að síður
virðast súkkulaðiguðirnir hafa ákveð-
ið að bæði hnetur og rúsínur séu nán-
ast nauðsynlegur fylgifiskur súkku-
laðisins. Í verstu tilfellunum kemur
súkkulaðið með hvoru tveggja, svona
eins og til að undirstrika það hvað
Víkverji eigi bágt. Víkverji hefur því
þurft að kyngja ansi mörgum rús-
ínum og hnetum, þegar hann hefur
fyrir slysni þegið kostaboð um súkku-
laði. víkverji@mbl.is
Víkverji
Biðjið, og yður mun gefast, leitið og
þér munuð finna, knýið á og fyrir yður
mun upp lokið verða. (Mt. 7:7)
NÝTT
BRAGÐ
!
Prófaðu
sítrónukre
m
á kökuna