Morgunblaðið - 25.02.2016, Side 84

Morgunblaðið - 25.02.2016, Side 84
84 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2016 • AMT eru hágæða pönnur úr 9 mm þykku áli • Allar pönnur mega fara inn í ofn við allt að 240° hita • 3 ára ábyrgð á verpingu • Ný byltingakennd viðloðunarfrí húð sem er sterkari en Teflon og án eiturefna • Nothæf fyrir allar eldavélar • Má setja í uppþvottavél • Kokkalands- liðið notar AMT potta og pönnur Úlfar Finnbjörnsson notar AMT potta og pönnur WORLD’S BESTPAN „ “ * “The world‘s best pan”according to VKD, largest German Chefs Association * Allir velkomnir Progastro | Ögurhvarfi 2, Kópavogi Sími 540 3550 | progastro.is Opið alla virka daga kl. 9–18. Allt fyrir eldhúsið Þýskar hágæða pönnur frá AMT THE Ný sending Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Þetta er fyrsti íslenski diskurinn með frumsömdu efni fyrir fagott,“ segir Kristín Mjöll Jakobsdóttir um geisladiskinn Ferðalag sem hún ný- verið sendi frá sér. „Fagott er al- mennt lítt þekkt sem einleiks- hljóðfæri, en á 20. öld jókst áhugi tónskálda á að semja fyrir hljóðfæri sem áður höfðu notið takmarkaðrar athygli. Tónlistin á diskinum spannar 44 ára tímabil, en fyrsta íslenska ein- leiksverkið fyrir fagott, Fönsun IV, samdi Atli Heimir Sveinsson árið 1968, skömmu eftir að hann sneri heim frá námi í Þýska- landi. Verkið skrifaði hann á óhefðbundinn hátt og í anda Stockhausen vildi hann að flytjandinn hefði veruleg áhrif á sköpunarferlið,“ segir Kristín Mjöll, en verkið tileinkaði Atli Heimir Sigurði Markússyni fagottleikara sem var fyrsti fagottkennari Krist- ínar Mjallar og kenndi henni við Tón- listarskólann í Reykjavík á árunum 1980 til 1987. „Líkt og fleiri verk frá þessum tíma var það aldrei flutt, enda mjög krefjandi. Atli Heimir bauð mér að endurrita verkið þegar ég leitaði til hans og ég frumflutti það á tónleikum í Norræna húsinu í mars 2008, fjörutíu árum eftir að það hafði verið samið.“ Pantaði tvö ný verk Aðspurð segir Kristín Mjöll útgáf- una eiga sér langan aðdraganda. „Enda töluverð vinna að taka þessi verk saman, hljóðrita þau og setja á disk. Í raun má segja að það hafi ver- ið dálítið afrek að hljóðrita öll þessi verk og koma út, en það er mjög gaman að hafa getað gefið þennan disk út. Árið 2007 voru mér veitt sex mánaða starfslaun til þess að taka upp og flytja á tónleikum íslenska fa- gotttónlist. Fyrst einbeitti ég mér að flutningi kammerverka fyrir fagott og strengi, en sneri mér síðan að ein- leiksverkum og verkum sömdum fyr- ir fagott og sembal,“ segir Kristín Mjöll, sem hélt fyrrnefnda tónleika í mars 2008 þar sem hluti þeirra verka sem á diskinn rötuðu hljómuðu. Í kjölfarið fór hún að taka upp þau verk sem ekki höfðu áður verið hljóðrituð. „Þegar ég byrjaði á þessu verkefni sló það mig að það hafði ekkert nýtt efni verið skrifað fyrir fagott frá því fyrir aldamót. Mér fannst það ómögulegt og nauðsynlegt að ráða bót á því,“ segir Kristín Mjöll, sem í framhaldinu pantaði einleiksverkið Hugleiðingu hjá Önnu Þorvalds- dóttur árið 2007. „Ég hélt áfram með verkefnið 2009, en fannst að mig vantaði meira efni,“ segir Kristín Mjöll, en þegar hún hlaut starfslán aftur árið 2012 pantaði hún af því til- efni eitt verk til viðbótar hjá Hafdísi Bjarnadóttur sem samdi Já! fyrir fa- gott og rafhljóð. Frumflutt 30 árum síðar Auk einleiksverkanna þriggja má á geisladiskinum finna verk fyrir fagott og sembal. „Bæði verkin eru frá árinu 1976. Annars vegar er það Úr rímum af Rollant eftir Þorkel Sigurbjörns- son sem hann samdi fyrir Björn Th. Árnason fagottleikara og Elínu Guð- mundsdóttur semballeikara og þau frumflutti í maí sama ár. Hins vegar er það Sónata XII eftir Jónas Tómasson sem hann skrifaði innblásinn af tónleikum Helgu Ing- ólfsdóttur semballeikara,“ segir Kristín Mjöll og tekur fram að verkið hafi hins vegar ekki verið frumflutt fyrr en 30 árum síðar þegar Kristín Mjöll frumflutti það sjálf ásamt Guð- rúnu Óskarsdóttur semballeikara síðla árs 2006, en Guðrún leikur einn- ig með henni á diskinum. „Fagottsónata eftir Ríkarð Örn Pálsson kórónar útgáfuna en hún er eina íslenska sónatan fyrir fagott og píanó sem samin hefur verið til þessa. Sónötuna samdi Ríkarður fyrir Rún- ar H. Vilbergsson fagottleikara árið 1996, en þeir höfðu verið skólafélagar í Tónlistarskólanum í Reykjavík á áttunda áratugnum og tekist með þeim vinátta. Rúnar frumflutti són- ötuna á tónleikum í apríl 1998 ásamt Guðríði St. Sigurðardóttur píanóleik- ara og hefur hún margoft verið flutt síðan,“ segir Kristín Mjöll, en með- leikari hennar á diskinum í umræddu verki er Jón Sigurðsson píanóleikari. Til að undirstrika sögulegt sam- hengi segist Kristín Mjöll hafa valið að hefja diskinn á hinu þekkta Lilju- lagi sem fannst í handriti frá 14. öld. „Það er eina lagið á diskinum sem ekki er frumsamið sérstaklega fyrir fagottið. Mér fannst svo heillandi áskorun að spila verkið vel, auk þess sem það tengist tónlistarmótun okkar Íslendinga mjög sterkt.“ Gert á löngum tíma Að sögn Kristínar Mjallar kláraði hún að taka upp diskinn í upphafi árs 2013 og varði rúmlega tveimur árum í að klippa efnið. „Þetta gerist á mjög löngum tíma vegna þess að maður er að grípa í þetta meðfram öðru,“ segir Kristín Mjöll sem sinnt hefur spila- mennsku, kennslu og verkefna- stjórnun síðan hún flutti heim til Ís- lands að framhaldsnámi loknu. Sem fyrr segir nam hún fagottleik við Tónlistarskólann í Reykjavík hjá Sig- urði Markússyni áður en hún hélt til framhaldsnáms í Bandaríkjunum. Hún lauk meistaragráðu frá Yale University School of Music vorið 1989 þar sem hún lærði hjá Arthur Weis- berg. Hún bætti við sig námsári í Hollandi hjá Joep Terwey við Sweel- inck Conservatorium Amsterdam en sneri svo aftur til Bandaríkjanna þar sem hún lærði hjá William Winstead við Cincinnati College-Conservatory of Music. Á árunum 1991 til 1998 var Kristín Mjöll búsett og starfandi í Hong Kong, þar af var hún fastráðin við Fílharmóníusveitina í Hong Kong í eitt ár. Hún var einnig meðlimur í kammerhópnum I fiati dolci og Hong Kong Chamber Orchestra. Hérlendis hefur Kristín Mjöll leik- ið reglulega með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Íslensku óperunni, Kamm- ersveit Reykjavíkur, Blásaraoktett- inum Hnúkaþey og ýmsum kamm- erhópum, auk þess að starfa við kennslu á flautu, klarinett og fagott. Hún hefur haldið fjölda einleiks- tónleika á Íslandi, í Hong Kong og Bandaríkjunum. Kristín Mjöll var formaður Félags íslenskra tónlistar- manna 2008 til 2012. Hún hefur starf- að við fjármögnun og verkefnastjórn í tónlistarlífinu síðan 2003. Fannst vanta nýtt efni fyrir fagott  Kristín Mjöll Jakobsdóttir sendir frá sér disk með íslenskri fagotttónlist Ljósmynd/Hörður Sveinsson Afrek „Í raun má segja að það hafi verið dálítið afrek að hljóðrita öll þessi verk og koma út,“ segir Kristín Mjöll. „Júlíana – hátíð sögu og bóka“ hefst í fjórða sinn í Stykkishólmi í dag, fimmtudag, og stendur fram á sunnudag. Þema hátíðarinnar að þessu sinni er „En hvað það er skrít- ið“. Dagskráin verður fjölbreytt eins og fyrri ár og hefst formlega með opnun í Vatnasafninu í dag. Á morgun, föstudag, verður dag- skrá víðsvegar um bæinn. Nem- endur í Grunnskóla Stykkishólms eru að vinna að sýningu sem tengist persónum í bókinni Mamma klikk eftir Gunnar Helgason. Höfund- urinn verður einn af gestum hátíð- arinnar og mun hitta nemendur í gömlu kirkjunni. Sýningin verður i Amtsbókasafninu og hefst kl. 15. Þá verður upplestur í Bókaverzlun Breiðafjarðar og boðið upp á sögu- stund í tveimur heimahúsum um kvöldið. Dagskrá föstudagsins endar svo með sögugerð á Hótel Egilsen. Samkvæmt tilkynningu hefur hópur fólks lesið af kappi verðlauna- bók Einars Más Guðmundssonar, Hundadaga, undir stjórn Ólafs K. Ólafssonar. Eftir hádegi á laug- ardeginum munu þeir Einar Már og Sigmundur Ernir Rúnarsson fjalla um verk sín í gömlu kirkjunni. Hrafnhildur Schram mun fjalla um bók sína um Nínu Sæmundsson í Vatnasafninu. Verk þeirra allra byggjast á frásögnum um fólk sem ekki hefur bundið bagga sína sömu hnútum og aðrir. Á laugardags- kvöldið verður svo leiklestur í Norska húsinu. Fjölbreytileg dag- skrá í Hólminum  Júlíönu-hátíð sögu og bóka hefst Einar Már Guðmundsson Hrafnhildur Schram Sigmundur Ernir Rúnarsson Gunnar Helgason

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.