Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.03.2016, Page 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.3. 2016
Margir hófsamir kjósendur
eru í öngum sínum yfir fram-
gangi Trumps. Auðkýfing-
urinn Michael Bloomberg,
fyrrverandi borgarstjóri í
New York, veltir því fyrir sér
að bjóða sig fram til forseta.
Ef, öllum á óvart, atkvæði
skiptust þannig að enginn
hlyti tilskilinn fjölda kjör-
manna, 270, fengi full-
trúadeild þingsins það hlut-
verk að kjósa forseta. Þar
hafa repúblikanar öfl-
ugan meirihluta og
nokkuð ljóst að þeir
myndu ekki
kjósa
Trump.
Fyrir nokkrum árum mislíkaðiforsetaframbjóðanda flokksgræningja í Kólumbíu við hóp
háskólanema sem mótmæltu stefnu
hans. Hann brást við með því að sýna
þeim beran bossann, stundum yrði að
nota óvenjulegar aðferðir, sagði
hann. Svo langt hefur Donald Trump
ekki enn gengið í sinni baráttu í
Bandaríkjunum. En hann hikar aldr-
ei við að ganga fram af andstæð-
ingum sínum ef það dugar til að ein-
oka fréttir fjölmiðla. Og kaffærir þá.
Trump virðist hafa tileinkað sér
allar skoðanir sem fyrirfinnast, notar
þær eftir hentugleikum. Og oft er
grunnt á ofbeldishugsun og grimmd,
hann notar hálfkveðnar vísur, klárar
ekki setningar en allir vita hvað hann
er að hugsa. Duflað er við rasisma,
múslímahatur. Og rætt um yfirgang
ríkja sem Trump segir að hafi stöðugt
misnotað sér veiklyndi Obama og
annarra bandarískra leiðtoga, þ.á m. í
alþjóðaviðskiptum. Trump lofar að
snúa við blaðinu.
„Við ætlum að vera gráðug fyrir
Bandaríkin. Við munum hrifsa,
hrifsa, hrifsa!“ sagði Trump nýlega á
kosningafundi. Hann spilar mjög á
strengi þeirra sem finnst að eitthvað
mikið hljóti að vera að þegar Banda-
ríkin eru ekki lengur með sömu yfir-
burði í efnahagsmálum og þau hafa
haft óslitið í meira en öld. Og tapa
stöðugt styrjöldum í löndum sem
venjulegt fólk vestra hefur aldrei
heyrt um. Hann segist ætla að hætta
öllu slíku. En efla samt herinn.
Tortryggni í garð þingsins er mikil
vestra í báðum flokkum, innan við
15% treysta þingmönnum. Flestir
segja þá spillta sérhagsmunaseggi.
Bölsýni er útbreidd. Margir hvítir
Bandaríkjamenn í lægri millistétt sjá
ekki lengur fram á að gamli, ameríski
draumurinn um endalaus tækifæri og
hagsæld muni rætast fyrir þá. Þeim
sem hafa ekki lokið nema skyldu-
námi, sem horfa á störf flutt úr landi,
sjá innflytjendum og afkomendum
þeirra veitt aukin réttindi og jafnvel
umsvifalaus aðgangur að bótakerfum
ríkisins finnst þeir skildir eftir. Og
hvers vegna er það allt einu orðið
skammarlegt í huga og tali margra
stjórnmálamanna, fjölmiðla- og
menntamanna að vera hvítur karl-
maður í Bandaríkjunum, spyrja þeir.
Er það sanngjarnt?
Trump höfðar mjög til þessara
kjósenda en hann er líka með mest
fylgi allra forsetaefna repúblikana
hjá nánast öllum hópum. Körlum,
konum, hvítum, svörtum, trúhneigð-
um og lítt trúuðum, menntuðum og
ómenntuðum, efnuðum og fátækum.
En rauði þráðurinn er að stuðnings-
mönnum hans finnst þeir ekki hafa
haft nein áhrif. Þeir séu hunsaðir af
ráðandi öflum, traðkað á þeim. Flokk-
urinn hafi svikið þá. Svo mikil eru
bræðin og vonbrigðin að þeir vilja
mann sem beinlínis hampar því að
hann vilji vera grimmur og illur fant-
ur. Auðmýkt, mildi og siðfágun eru
ekki lengur eiginleikar sem þetta fólk
vill sjá í forseta sínum.
Ráðvillt flokksforysta
Engu virðist skipta þótt fjármála-
furstar eins og hinir frægu Koch-
bræður, Sheldon Adelson og aðrir
auðkýfingar beiti sér gegn Trump,
stór hluti flokksins hlustar alls ekki
lengur á þá.
Flokksforysta repúblikana hefur
aldrei fengið aðra eins útreið. For-
ystumennirnir eru í losti, sumir segj-
ast ætla að kjósa demókrata frekar
en Trump. En þeir munu vafalaust
halda fyrir nefið og sameinast um
Trump ef hann verður útnefndur.
Allt er betra en Clinton
í þeirra augum.
David Frum, ritstjóri
hins þekkta tímarits The
Atlantic, var í eina tíð ná-
inn ráðgjafi George W.
Bush forseta og ræðuskrifari hans.
Frum segir að uppgangur Trumps sé
merki um hrein og klár stéttaátök
innan repúblikanaflokksins. Flokk-
urinn verði að átta sig á einu:
Óbreyttir flokksmenn séu ekki í
reynd hlynntir því að skera niður vel-
ferðarkerfið, það gagnist þeim of vel.
Og repúblikanar eigi að hætta að
berjast gegn almennum heilbrigð-
istryggingum Obama en lagfæra
kerfið í staðinn.
„Lækkið hæstu skattana minna og
notið peningana til að hækka bætur
til vinnandi fólks í millitekjuhópum,“
segir Frum. „Mótið innflytjenda-
stefnu sem eflir launin en grefur ekki
undan þeim. Hafið meiri áhyggjur af
reglum sem auka við auðæfi þeirra
sem þegar eiga mikið en minni
áhyggjur af reglum sem minnka svig-
rúm til að stunda fjármálabrask.“
Frum er talinn hægrisinnaður
repúblikani. En hann segir flokks-
systkinum sínum að horfa til þess
hvernig margir nýir hægriflokkar í
Evrópu, sem kenndir eru við lýð-
skrum, leggi nánast allir áherslu á
stuðning við velferðarkerfið.
„Munum
hrifsa, hrifsa,
hrifsa!“
Donald Trump er að sigra forystu repúblikana.
Hann hefur tryggt sér stuðning óbreyttra flokks-
manna í innri stéttabaráttu í flokknum.
Michael
Bloomberg
Ef enginn
sigrar …
AFP
Aðdáendur Trumps í borginni Madison í Alabama bíða eftir að hann komi á kosningafund sem haldinn var á íþrótta-
leikvangi í lok febrúar. Trump sigraði síðan með yfirburðum í forkosningunum í sambandsríkinu 1. mars.
’
Bandaríkin eru stórkostlegasta tilraun mannkynsins en
ég óttast að hún muni ekki enda vel.
Sigmund Freud, austurrískur sálfræðingur.
ERLENT
KRISTJÁN JÓNSSON
kjon@mbl.is
BANDARÍKIN
DETROIT Hart var deilt
í sjónvarpskappræðum
frambjóðenda repúblikana
á fimmtudagskvöld en
einnig þótti mörgum sem
tal þeirra um meinta stærð
getnaðarlims Donalds Trumps
væri fyrir neðan virðingu
þeirra.Trump var sigurvegari
ofurþriðjudagsins í vikunni,
vann í sjö af alls 11 ríkjum.
Hillary Clinton
þykir nánast
hafa tryggt
sér útnefningu
demókrata en
hún sigraði
einnig í sjö
ríkjum.
GRIKKLAND
ÞENU Forseti
ðtogaráðs Evrópu-lei
s, Donald Tusk,nsambandsi
vikunni nokkurimsótti í
ríki á Balkanskaga og að lokum Tyrkland til að
ræða lausn á vanda farand- og flóttamanna sem
streyma nú til Evrópu um Grikkland.Tusk varaði
farandfólk við að reyna að komast til Evrópu og
sagði að Schengen-svæðið yrði endurreist.
NORÐUR-
KÓREA
PJONGJANG
Öryggisráð Sameinuðu
þjóðanna hefur
samþykkt einum rómi
mjög hertar refsi-
aðgerðir gegn Norður-
Kóreumönnum
vegna kjarnorku- og
eldflaugatilrauna
þeirra. Kim Jong-un,
leiðtogi N-Kóreu,
svaraði daginn eftir
með því að láta skjóta
upp sex eldflaugum og
setja kjarnorkuvopn í
viðbragðsstöðu.
Hassan Rouhani, forseti Írans, þykir
a styrkt stöðu sína í þingkosningunum í liðinni
u en ljóst er að umbótasinnar hafa hlotið
eirihluta þingsæta.
Raunveruleg völd eru
þó að mestu í höndum
klerkaráðsins og æðsta
manns þess, ajatollah
Khameneis.