Morgunblaðið - 14.05.2016, Side 52
LAUGARDAGUR 14. MAÍ 135. DAGUR ÁRSINS 2016
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 888 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR.
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Ástin kviknaði á Íslandi
2. Mátt þú ferðast með barninu?
3. Ég festist í gervigrasinu
4. Fórnarlamb fékk að deyja
Rokksveitin Fufanu heldur tónleika
á Kex hosteli á morgun kl. 21 og
verða það fyrstu tónleikar hennar á
Íslandi frá því hún gaf út plötuna Few
More Days To Go.
Hljómsveitin hefur verið önnum
kafin við tónleikahald erlendis og
hefur ekki gefist tími til að leika á Ís-
landi frá því platan kom út í nóvem-
ber í fyrra. Platan hefur hlotið já-
kvæðar viðtökur erlendis hjá
tónlistargagnrýnendum og komst
m.a. á lista yfir bestu plötur ársins
hjá The Line of Best Fit, NME og
Guardian. Hljómsveitin a & e sounds
sér um upphitun á tónleikunum ann-
að kvöld.
Hvítasunnutónleikar
í boði Fufanu á Kex
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Vestlæg átt 3-10 m/s, en bætir í vind norðvestantil. Skýjað og úr-
komulítið um landið vestanvert. Skýjað með köflum eða bjartviðri í öðrum landshlutum.
Á sunnudag Vestlæg átt, 3-10 m/s, en suðvestan 8-15 norðvestantil. Víða bjartviðri, en
skýjað að mestu vestanlands. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast á SA-landi.
Á mánudag Snýst í norðaustanátt með rigningu, en dálítilli slyddu eða snjókomu fyrir
norðan. Hiti 3 til 9 stig, en um frostmark fyrir norðan.
Eygló Ósk Gústavsdóttir og Hrafn-
hildur Lúthersdóttir eiga raunhæfa
möguleika á verðlaunasæti á Evrópu-
mótinu í sundi í 50 metra laug sem
hefst í London á mánudaginn. Eygló
er með þriðja besta tíma allra þátt-
takenda í sinni aðalgrein og Hrafn-
hildur fjórða besta í sinni grein. Eygló
kveðst ekkert vera farin að skoða
keppendalistann. » 4
Raunhæfir möguleikar á
verðlaunum á EM
Stjarnan sneri við blaðinu í
rimmunni við Gróttu um Ís-
landsmeistaratitilinn í
handknattleik kvenna með
því að vinna þriðju viður-
eign liðanna, 22:20, á
heimavelli Gróttu í gær-
kvöldi. Stjarnan hefur þar
með náð einum vinningi
gegn tveimur vinningum
Gróttu. Næst leiða liðin
saman hesta sína á morgun.
»1,2
Stjarnan sneri við
blaðinu á Nesinu
„Hún er mjög vinnusöm og er ekki
þessi hefðbundni sóknarmaður sem
er alltaf inni í vítateig. Hún hleypur
mikið, sérstaklega miðað við fram-
herja, og mér finnst sá þáttur hjá
henni stundum vanmetinn. Harpa er
auk þess gríðarlega líkamlega sterk
og leggur almennt séð mikið af mörk-
um til liðsins,“ segir samherji Hörpu
Þorsteinsdóttur, markaskorara
knattspyrnuliðs Stjörn-
unnar og landsliðs-
konu. »4
Hún er ekki þessi hefð-
bundni sóknarmaður
Morgunblaðið kemur næst út þriðju-
daginn 17. maí. Fréttaþjónusta verð-
ur um hvítasunnuhelgina á fréttavef
Morgunblaðsins, mbl.is. Hægt er að
koma ábendingum um fréttir á net-
fangið netfrett@mbl.is.
Þjónustuver áskriftardeildar er
opið í dag, laugardag, frá kl. 8 til 12
en lokað er á hvítasunnudag og ann-
an í hvítasunnu. Þjónustuverið verð-
ur opnað aftur á þriðjudag kl. 7. Sími
þjónustuvers er 569-1122 og net-
fangið askrift@mbl.is.
Blaðberaþjónusta er opin í dag,
laugardag, frá kl. 6-12. Hún verður
opnuð á ný á þriðjudag kl. 5. Hægt
er að bóka dánartilkynningar á
mbl.is. Símanúmer Morgunblaðsins
er 569-1100.
Fréttaþjónusta
mbl.is um helgina
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Aflaklóin Þórhallur Gíslason, skip-
stjóri frá Syðsta-Koti í Sandgerði, oft
kallaður Dúddi Gísla, er 100 ára í dag.
„Það er allt í lagi að vera 100 ára ef
maður hefur góða heilsu og það hef
ég haft,“ segir Þórhallur.
Hann byrjaði sem unglingur á
trillu með föður sínum og fann sig
strax á sjónum. „Ég var í rúmlega 40
ár á sjó, þar af 34 vertíðir á síld, sam-
tals á 12 bátum, ef ég man rétt,“ rifjar
hann upp. Eftir að hann fór, 55 ára, í
land starfaði hann sem hafnarvörður
og lóðs í Sandgerði í 20 ár. „Ég þekkti
innsiglinguna vel og strandaði
aldrei,“ segir hann.
Veiðin aðalatriðið
Þórhallur tók vélstjórapróf áður en
hann náði sér í skipstjóraréttindi.
„Ég var vélstjóri í átta ár áður en ég
fór í stýrimanninn,“ segir Þórhallur,
sem var lengst af skipstjóri og fiskinn
mjög. Í tilefni 95 ára afmælis Þórhalls
lét Jónas, sonur hans, útbúa skjöld
með nöfnum aflakónga á vetrarvertíð
í Sandgerði 1939 til 1991. Þórhallur
var fjórum sinnum aflakóngur – á
Hamri GK 1961, Munin GK 1962 og
Sæunni GK 1963 og 1965. Afkom-
endur hans gáfu Sandgerðisbæ
skjöldinn, sem er varðveittur í Þekk-
ingarsetri Suðurnesja í Sandgerði.
„Ég hafði alltaf nóg að gera enda
snerist þetta fyrst og fremst um að
veiða nógu mikið,“ rifjar Þórhallur
upp. Segir margs að minnast frá sjón-
um en samt hafi verið kærkomið að
koma heim til fjölskyldunnar eftir
langa útiveru á síldveiðunum fyrir
norðan. „Fjarveran frá fjölskyldunni
var eins og gengur en það var gaman
að koma heim. Ég átti gott heimili en
það stendur upp úr að ég var alltaf á
toppskipunum og þau voru mörg.“
Lengi vel vann Þórhallur hjá öðr-
um en 1956 fór hann til Danmerkur
til þess að láta smíða bátinn Hamar,
sem hann átti í samvinnu við fjóra
aðra menn. Það var þá dýrasta skip,
sem hafði verið smíðað í Esbjerg og
var töluvert látið með það. „Ég reri
mikið á honum, 120 tonna bátnum, en
ætli Sæunn hafi ekki verið besti bát-
urinn, sem ég var með,“ segir Þór-
hallur.
Hann segir að þótt sjómennskan
hafi oft verið erfið, sérstaklega í
slæmu veðri, hafi hann alla tíð kunn-
að vel við sig úti á sjó. Aldurinn hafi
hins vegar sagt til sín og því hafi hann
farið í land. „Ég var orðinn það gam-
all að það voru síðustu forvöð að fá
einhverja vinnu í landi.“
Sonurinn Benóný, útgerðarmaður í
Grindavík, lét smíða bátinn Dúdda
Gísla GK sem hefur verið mikið afla-
skip. Nema hvað.
Í tilefni aldarafmælis Þórhalls efna
ættingjar hans til samsætis honum til
heiðurs í Vörðunni í Sandgerði frá
klukkan 14 til 16 í dag.
Veiðin skipti öllu máli
Þórhallur Gísla-
son aflakóngur frá
Sandgerði 100 ára
Morgunblaðið/RAX
Þórhallur Gíslason 100 ára Öldungurinn býr nú á Hrafnistu DAS Hlévangi í Reykjanesbæ.
Hjón Ástrún Jónasdóttir frá Súðavík og Þórhallur. Hún andaðist 1982.