Orð og tunga - 01.06.2014, Page 112
100
Orð og tunga
íslenskuna sem kennslumál í grunnnáminu en í framhaldsnámi. Sem
dæmi má taka umfjöllun um þetta atriði í málstefnu HÍ en hliðstæð
umfjöllun er hjá hinum skólunum:
[...] kennslaogpróf til fyrstu háskólagráðu fara aðmestu fram
á íslensku. Víkja má frá þessari meginreglu ef sérstök ástæða
er til, svo sem við kennslu í erlendum málum, ef kennari er
erlendur eða kennsla er einnig ætluð útlendingum. Rann-
sóknum og framhaldsnámi fylgja erlend samskipti og fleiri
mál en íslenska eru notuð í því starfi, einkum enska. Megin
kennslumál í framhaldsnámi er þó íslenska, eftir því sem við
verður komið [...] Deildir Háskólans geta boðið upp á heilar
námsleiðir í framhaldsnámi eða einstök námskeið á erlendum
málum, eftir því sem aðstæður leyfa.
Skólarnir sex leggja ríka áherslu á málrækt, íslenskan íðorðaforða og
nauðsyn þess að nemendur og kennarar geti fjallað um sérgreinar
sínar á íslensku. Orðalag um þessi atriði er svolítið mismunandi en
textinn er alls staðar fremur ýtarlegur. Hér skal látið nægja að birta
klausu úr málstefnu LBHÍ sem dæmi:
Háskólinn skal með ákveðnum hætti hvetja starfsmenn til að
sinna málrækt, t.d. með því taka saman fagorðasöfn og birta
rannsóknir á íslensku jafnt sem ensku eða öðrum erlendum
málum. Kennarar eru sérstaklega hvattir til að leiðbeina nem-
endum um málnotkun eftir því sem við verður komið, auk
venjubundinna faglegra leiðbeininga. Landbúnaðarháskólinn
leggur áherslu á að vinna að varðveislu orðaforða sem og ný-
orðasmíð á þeim fræðasviðum sem skólinn sinnir. Þannig
tekur skólinn virkan þátt í nýsköpun, viðhaldi og þróun ís-
lenskrar tungu.
Þessu til viðbótar leggja Háskólinn á Akureyri, Háskólinn á Bifröst og
Hólaskóli — Háskólinn á Hólum áherslu á nauðsyn þess að kennarar
og nemendur séu færir í ensku og öðrum erlendum málum og er
hvatt til vandaðrar málnotkunar hvert svo sem tungumálið er. Sem
dæmi má taka málstefnu HB en þar segir:
Gerðar eru ríkar kröfur um vandað málfar í kennslu á erlend-
um málum, rétt eins og í íslensku.
Háskóli íslands og Háskólinn á Akureyri tilgreina sérstaklega fram-
boð á námskeiðum á ensku handa erlendum skiptinemum sem skilja