Orð og tunga - 01.06.2014, Page 123
Ari Páll og Haraldur: íslenska og enska í háskólastarfi
111
til erlendra sérfræðinga og í reglum bæði Verkfræði- og náttúruvís-
indasviðs og Hugvísindasviðs er beinlínis ætlast til þess að fenginn
sé sérfræðingur frá erlendri rannsóknastofnun sé þess kostur. Þessi
ákvæði um andmælendur setja tungumáli ritgerðar og doktorsvarnar
nokkrar skorður þar sem á mörgum sviðum getur reynst torvelt að fá
utanaðkomandi andmælendur sem læsir eru á íslensku.
4 Kennslumál
4.1 Yfirlit
íslenska er aðalkennslumál allra íslenskra háskóla. Við Háskóla ís-
lands er mikil kennsla í erlendum tungumálum sem fer eðlilega að
miklu leyti fram á viðkomandi erlendu máli. Kennsla í erlendum
málum er óveruleg eða engin við aðra háskóla. Við flesta háskólana
fer kennsla að einhverju leyti fram á ensku. A mynd 11 eru sýndar
hlutfallstölur byggðar á fjölda námskeiða skólaárið 2011-2012 (en
reyndar 2010-2011 fyrir Háskóla íslands og Háskólann á Bifröst).6
Við Landbúnaðarháskóla íslands fór öll kennsla fram á íslensku
skólaárið 2011-2012 en við Hólaskóla eru 3,8% námskeiðanna á
ensku og við Listaháskóla íslands 5,6%. Kennsla á ensku er meiri við
hina skólana, frá 11,7% við Háskóla íslands til 23% við Háskólann í
Reykjavík.
6 Upplýsingar um námskeið í Háskóla íslands frá Sveini Klausen (í tölvupósti í mars
2012), námskeið í Háskólanum í Reykjavík frá Steini Jóhannssyni (í tölvupósti í
apríl 2012), námskeið í Háskólanum á Akureyri frá Steinunni Aðalbjamardóttur
og Stefáni Jóhannssyni (í tölvupósti í apríl 2012), námskeið í Listaháskóla íslands
frá Björgu Jónu Birgisdóttur (í tölvupósti í apríl 2012), námskeið í Landbúnaðar-
háskóla Islands frá Þórunni Eddu Bjamadóttur (í tölvupósti í apríl 2012), í Hóla-
skóla frá Hjördísi Císladóttur (í tölvupósti í apríl 2012). Upplýsingar um námskeið
við Háskólann á Bifröst eru fengnar úr Kennsluskrá Háskólans á Bifröst skólaárið
2010-2011. Grunnnám í öllum deildum og Kennsluskrá Háskólans á Bifröst skólaárið
2010-2011. Meistaranám í öllum deildum.