Náttúrufræðingurinn - 2016, Page 7
79
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
sögulegum tíma. Einnig komu
fram vísbendingar um eldvirkni
á Öskjusvæðinu á 14. og 16. öld.29
Við kortlagningarvinnu Íslenskra
orkurannsókna (ÍSOR) á árunum
2011 til 2014 í Norðurgosbeltinu
fengust miklar upplýsingar um
aldur hrauna í Öskjukerfinu.5,6,30
Við aldursgreiningu hraunanna var
sem fyrr stuðst við gjóskutímatal,
einkum ljósu Heklulögin (1. tafla). Í
ljós kom að norðan Dyngjufjalla eru
gjóskulög mun betur varðveitt en
sunnan þeirra og fékkst því allgóð
mynd af aldursdreifingu hrauna þar,
bæði sprungu- og dyngjuhrauna.
Rannsóknir hafa skýrt margt í
gossögu Öskjukerfisins en þó er
mikið verk óunnið, einkum hvað
varðar fyrri hluta hólósens. Helst
torveldar rannsóknir á svæðinu
hversu víðfeðmt og torfært það er,
og mikil jarðvegseyðing á stórum
svæðum.
Fremur fá gjóskulög eru þekkt
með upptök í Öskjukerfinu utan
staðbundin gjalllög með litla
útbreiðslu. Auk vikursins frá 1875
eru þekkt þrjú ljós gjóskulög sem
eiga þar upptök. Elsta lagið er
nefnt Askja-S, S-lagið eða Skolli
(2. mynd), og lýsti Guðmundur E.
Sigvaldason því fyrstur manna.24
Í grein hans eru tilgreindir sjö
fundarstaðir í Dyngjufjöllum og
nokkrir til viðbótar á Norður- og
Austurlandi. Samkvæmt einfölduðu
útbreiðslukorti sem þar er birt liggur
ás mestu þykktar til NNA frá Öskju,
um Langanes. Rúmmál gjóskunnar
telur Guðmundur vera um 1,5 km3
(reiknað sem berg). Í jarðvegi og
setlögum kemur lagið fyrir á milli
Saksunarvatns-gjóskunnar (um
10.300 ára) og Vedde-gjóskulagsins
(um 12.100 ára). Aldursgreiningar
með geislakoli (C-14) benda til
að lagið sé um 10.800–11.000 ára
gamalt.25,26 Á síðustu árum hefur
gjóska frá þessu gosi fundist í
setlögum í Norður-Evrópu, s.s. í
Færeyjum,31 Suður-Svíþjóð25,32 og
Norður-Noregi.33 Einnig er gjóskuna
að finna í Mið- og Vestur-Evrópu,
s.s. á Írlandi og í Sviss.34–37 Gjóskan
hefur jafnframt greinst í sjávarseti
norður af Íslandi.38 Næstelsta lagið
er um 9.400 ára gamalt, nefnt Askja
L, og hefur til þessa aðeins fundist
í botnseti Lagarfljóts og í jarðvegi
við Snæfell.39 Yngsta gjóskulagið
er um 2.000 ára gamalt og dreifðist
einkum til suðurs.40 Útbreiðsla þess
hefur ekki verið kortlögð enn sem
komið er.
Sveina- og Randarhóla-
gígaröðin – Staðhættir
Eitt af þeim hraunum sem
runnið hafa frá sprungusveimi
Öskjukerfisins er svonefnt Sveina-
hraun. Það rann frá um 75 km langri
gígaröð sem kennd er við gígana
Sveina og Randarhóla (3. mynd).
Syðstu gígarnir eru um 55 km
norðan Öskju, suðaustur af Austari
Skógarmannafjöllum, en þeir nyrstu
á Öxarfjarðarheiði. Sveinahraun er í
raun samheiti um allmarga aðskilda
hraunflekki sem sumir hverjir bera
sín eigin nöfn. Stærsti flekkurinn er
Kerlingarhraun á Öxarfjarðarheiði
og Melrakkasléttu. Gígaröðin
hefur hlotið nokkra athygli sökum
3. mynd. Sveinahraun (fjólublátt). Gígar eru sýndir rauðir. Vegir með bundnu slitlagi eru
sýndir (rauðar línur). Einfaldað frá jarðfræðikorti Kristjáns Sæmundssonar o.fl.5 – The map
shows the areal extent of the Sveinahraun lava (violet) and the setting of the Sveinar-
Randarhólar crater row (red dots). The main roads are shown with red lines.