Náttúrufræðingurinn - 2016, Page 8
Náttúrufræðingurinn
80
lengdar sinnar og einnig vegna
þess að gossprungan þveraði farveg
Jökulsár á Fjöllum í Jökulsárgljúfrum,
nánar tiltekið við Hafragilsfoss.
Í eystri gljúfurveggnum má sjá
lóðrétta bergganga liggja upp í
gígana.41
Suðurmörk Sveina- og Randar-
hólagígaraðarinnar markast af
tveimur gjallhólum sem standa upp
úr hraunum frá Fremrinámum í
svokölluðum Taglabruna. Heitir
sá syðri Rauðhóll. Vera má að
gígaröðin hafi náð sunnar þótt þess
sjáist ekki merki. Um 1,5 km norðan
gjallhólanna taka við Rauðuborgir
sem er nokkuð samfelld gígaröð,
tæplega 8 km löng (3. og 4. mynd).
Stærstu gígarnir í Rauðuborgum
eru Kofaborg, sem er syðst, þá
Stóra-Rauðka og síðan Langa-
Rauðka nyrst. Af þessum gígum
er Langa-Rauðka langsamlega
stærstur. Útbreiðsla hrauns frá
Rauðuborgum er óljós þar sem yngri
hraun liggja víða að gígaröðinni.
Næst sunnan við þjóðveginn um
Mývatnsöræfi (hringveginn) eru
gjall- og klepragígar sem nefnast
Vegasveinar. Norðan þjóðvegar
heita gígarnir Sveinar. Þar eru
m.a. Stóri-Sveinn og Litli-Sveinn
og enn norðar Ytrisveinar eða
4. mynd. Gígar nyrst í Rauðuborgum (sjá 3. mynd), í baksýn eru Skógamannafjöll og
Búrfell (lengst til hægri). – The northernmost craters of the Rauðuborgir crater row, viewed
towards the South. Ljósm./Photo: Magnús Á. Sigurgeirsson.
Norðmelsborgir. Þessir gígar
sitja í sigdalnum Norðmelsgjá
og fylgja honum. Gígaröðin
liggur síðan áfram til norðurs að
Jökulsárgljúfrum. Næst sunnan
gljúfursins heitir Hraundalur.
Rauðhóll er myndarlegur gjallgígur
á gljúfurbrúninni. Gígaröðin
heldur síðan áfram austan Jökuls-
ár. Sjónnípa er rofinn gígur á
eystri gljúfurbarminum og er góður
útsýnisstaður yfir gljúfrin (5. mynd).
Þá taka við Randarhólar, Syðsti-
Randarhóll og Mið- og Ystu-
Randarhólar. Norðan þeirra eru
stórir gjallgígar sem heita Rauðhólar
og Kvensöðull. Þaðan heldur
gígaröðin síðan áfram slitrótt til
norðurs. Á Öxarfjarðarheiði eru
allmiklir gígar sem heita Rauðhólar
og er hraunið frá þeim almennt
nefnt Kerlingarhraun. Hér á eftir
verður það hraun talið nyrsti
hluti Sveinahrauns. Stuðst er við
rit þeirra Sigurvins Elíassonar,43
Theodórs Gunnlaugssonar44 og
Péturs Jónssonar (örnefnaskrá).45
Að sjá er Sveinahraun heldur
veðrað og máð og ber með sér
að vera gamalt. Ýmsir hafa gert
tilraunir til að áætla aldur hraunsins
og gígaraðarinnar. Samkvæmt
rannsóknum Sigurðar Þórarins-
sonar41,46 er Sveina- og Randar-
hólagígaröðin meira en 6.000 ára
gömul. Rauðhóla- og Hljóða kletta-
gígaröðina í Vesturdal, um 9 km
vestar, telur hann vera meira en
8.000 ára gamla. Þeir gígar eru mjög
vatnsrofnir og máðir enda í farvegi
Jökulsár. Hraunið frá gígunum er
jafnframt mjög rofið og sundurslitið.
Þessi gígaröð hefur verið talin á
líkum aldri eða lítillega eldri en
Sveina- og Randarhólagígaröðin.
Bendir flest til þess að hún tilheyri
fremur Fremrinámakerfinu en
Öskjukerfinu.7,47 Sigurvin Elías son43
telur hraunin í Randarhólum og
Rauðhólum vera allt að 9.000 ára
gömul með hliðsjón af gjóskulögum.
Halldór G. Pétursson48 telur að á
Kerlingarhrauni á Öxarfjarðarheiði
sé að finna Saksunarvatnsgjóskuna,
sem er um 10.300 ára gömul. Í
hand- og ferðabókum frá síðustu
árum er Sveina- og Randar-
hólagossprungan ýmist talin um
6.000, 8.000 eða 9.000 ára gömul.49–
51 Aldur hraunsins hefur því lengi
verið talsvert á reiki.
Aðferðir
Fyrir útgáfu nýs jarðfræðikorts
hjá Íslenskum orkurannsóknum
(ÍSOR) af Norðurgosbelti var lagt
í talsverða kortlagningarvinnu og
fór fyrri áfangi þess verks fram árin
2011 og 2012. Unnið var á svæði sem
markast af Herðubreiðarfjöllum í
suðri og Melrakkasléttu í norðri.
Eitt af markmiðunum var að bæta
tímasetningar á hraunum með
því að nota gjóskulagatímatal.
Jarðvegssnið voru grafin fram í
moldarbörðum og í hraunbollum
þar sem taldar voru líkur á að
finna gjóskulög.30 Verkfæri við
þessa iðju eru einföld að gerð,
skófla og múrskeið. Í sniðunum
var dýpi niður á gjóskulögin
mælt og síðan lýst hverju lagi.
Þau einkenni sem helst er leitað
eftir eru þykkt, litur, kornastærð
og kornagerð. Einnig er mikilvægt
að lýsa jarðvegsgerð og hvort
merki eru um rof í sniðunum. Sýni
voru tekin úr helstu gjóskulögum
til frekari athugunar. Snið voru