Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2016, Síða 13

Náttúrufræðingurinn - 2016, Síða 13
85 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags í hraunið nema þau sem koma fram í Jökulsárgljúfrum. Á vesturbakka Jökulsár við Hafragilsfoss voru boraðar allmargar holur í hraunið á árunum 1962–74 vegna fyrirhugaðra virkjunarframkvæmda á þessum slóðum. Í skýrslu um þær boranir55 má sjá að í 17 borholum í gegnum hraunið reyndist meðalþykktin vera um 13 m. Fram kemur í gögnunum að hraunið er mjög misþykkt og fyllti meðal annars upp í þáverandi farveg Jökulsár, sem var allt að 50 m djúpur (hraunþykktum þar var sleppt við útreikning á meðalþykkt). Til samanburðar mætti nefna áætlaða þykkt vel þekktra sprungu - hrauna í nágrenninu. Meðalþykkt Nýjahrauns frá 1875 er talin 10–12 m14 og hrauna sem runnu í Mývatnseldum 1724–29 og Staður Sampling site SiO2 TiO2 Al2O3 FeOt MnO MgO CaO Na2O K2O P2O5 Samtals Total Randarhólar 74,39 0,29 12,17 2,64 0,09 0,24 1,53 4,16 2,55 0,05 98,20 0,41 0,03 0,12 0,08 0,02 0,02 0,06 0,20 0,06 0,03 Vegasveinar 75,05 0,30 12,11 2,67 0,09 0,23 1,56 4,00 2,52 0,04 98,58 0,45 0,02 0,18 0,09 0,02 0,01 0,05 0,13 0,04 0,04 Kollur 74,46 0,32 12,08 2,62 0,09 0,24 1,59 4,08 2,49 0,04 98,01 0,45 0,03 0,09 0,06 0,02 0,01 0,06 0,37 0,06 0,03 2. tafla. Efnagreining á gjóskulaginu Öskju-S. Sýni voru tekin úr laginu í Randarhólum, Vegasveinum og Kolli í Dyngjufjöllum. Sýnd eru meðaltöl og staðalfrávik. Einstakar greiningar má sjá í 1. viðauka. – Microprobe analysis of the Askja-S tephra (mean and standard deviation). Samples were collected from Randarhólar, Vegasveinar and Kollur in Dyngjufjöll. Supplementary data given in Appendix 1. Kröflueldum 1975–84 rúmir 7 m.56 Miðað við að meðalþykkt Sveinahrauns sé 10–11 m reiknast rúmmál þess nærri 2 km3. Önnur rúmmálsgildi mætti fá út, hærri eða lægri, en ljóst er að skekkjumörkin verða alltaf veruleg. Rúmmál gjóskulagsins Öskju-S, reiknað sem fast berg, hefur verið talið um 1,5 rúmkílómetrar.24 Margt er líkt með skyldum Tenging Sveina- og Randarhóla- gossins og myndunar Öskju-S fyrir tæpum 11.000 árum gefur nýja mynd af gosvirkni í Öskjukerfinu við ísaldarlokin. Þótt atburðarásin sé ekki þekkt í smáatriðum er ljóst að um umbrotahrinu í Öskjukerfinu er að ræða þar sem bæði varð sprungugos á sprungu- sveiminum og plínískt sprengigos í megineldstöðinni í Dyngjufjöllum. Víst má telja að mikil skjálftavirkni hafi fylgt þessum atburðum. Aðrar umbrotahrinur í Öskjukerfinu frá forsögulegum tíma eru ekki þekktar og eftir að land byggðist eru heimildir um eldgos óljósar þar til kemur fram á 19. og 20. öld. Þá koma til sögunnar lýsingar sjónarvotta á eldgosum, jarðhræringum sem þeim fylgdu og landbreytingum. Fróðlegt er að bera saman atburðarás þessara seinnitíma umbrota við mögulega atburðarás í hrinunni fyrir um 11.000 árum. Virðast þar vera mikil líkindi. Á tímabilinu frá febrúar til október 1875 varð sprungugos 11. mynd. Efnagreining á ljósri gjósku frá Vegasveinum og Randarhólum. Til saman- burðar eru greiningar sem hafa verið birtar (Askja-S,31,33,34,35,37,53 Hekla-5,33,38 Vedde gjóska54). Eins og sjá má er talsverður munur á efnasamsetningu Vedde-gjóskunar frá Kötlu og Öskju-S. – Binary diagram showing CaO vs. FeO (total) of the Askja-S (red diamonds) and Hekla-5 (blue dia- monds) tephra layers. For a reference some previously published analyses are shown (in grey) (Askja-S,31,33,34,35,37,53 Hekla-5).33,38 Also the composition of the 12 ka Vedde tephra is shown for comparison54 (black crosses).
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.