Náttúrufræðingurinn - 2016, Page 14
Náttúrufræðingurinn
86
í Sveinagjá, um 40–65 km norðan
Öskju, og í mars sama ár varð mikið
sprengigos í Öskju. Gosið í Sveinagjá
hefur verið tengt kvikuhlaupum
norður eftir sprungusveimi Öskju.13
Um það eru þó deildar meiningar.
Talið er að öskjusigið sem fylgdi
þessum atburðum, þ.e. myndun
Öskjuvatns, hafi að mestu orðið á
fyrsta ári umbrotanna en þó varað
í nokkra áratugi.14 Óvíst er um
öskjumyndun fyrir 11 þúsund árum
en ekki er ólíklegt að öskjusig hafi
orðið. Hefur sá möguleiki verið
reifaður meðal jarðfræðinga og
bæði Askja og Norðuraskja nefndar
í því sambandi.9,24 Úr þessu hefur
ekki fengist skorið enn sem komið
er. Í 3. töflu er líkleg atburðarás
goshrinunnar fyrir um 11.000 árum
borin saman við Öskjueldana á
19. öld. Hraun frá 20. öld eru
einnig tiltekin þótt hæpið sé að þau
tilheyri sömu eldum. Samkvæmt
útreikningum hefur komið upp
um fimm sinnum meira af kviku í
hrinunni fyrir 11 þúsund árum en í
umbrotunum á 19. öld, þ.e. 3,5 km3
á móti um 0,66 km3.14
Samantekt
Ein meginniðurstaða þessara
athugana er sú að fengist
hefur áreiðanleg tíma setning
á Sveinahraun. Einnig kom í
ljós að hraunið og gjóskulagið
Askja-S eru samtíma myndanir,
mynduð í sömu umbrotahrinunni
í Öskjukerfinu fyrir um 11 þúsund
árum. Út frá fyrirliggjandi gögnum
er mögulegt að draga upp mynd
af framvindu umbrotanna. Upphaf
þeirra markast af myndun Sveina-
hrauns sem rann frá 75 km langri
gossprungu, kenndri við Sveina
og Randarhóla, á norðurhluta
Öskjukerfisins. Um svipað leyti varð
basískt þeytigos í Dyngjufjöllum
sem skildi eftir sig þykka öskustabba
þar um slóðir. Næst gerist það
að plínískt sprengigos verður í
megineldstöð Öskjukerfisins og
dreifir ljósum vikri til norðurs langt
á haf út. Gjóskulagið er kallað
Askja-S (Skolli) og lagðist m.a. yfir
Sveina- og Randarhólagígaröðina.
Líklegt er að öskjusig hafi orðið
samfara gosinu en ekki hafi fundist
þess ótvíræð merki. Eftir nokkurt hlé
gaus aftur á stuttri gígaröð við
Randarhóla. Í því gosi rann svolítil
hrauntunga til suðurs og gjall
dreifðist um næsta nágrenni.
Mögulegt er að basískt þeytigos hafi
orðið í Dyngjufjöllum um líkt leyti
því að þar má finna basaltösku
ofan á Öskju-S. Hvort Rauðhóla-
og Hljóðaklettagígaröðin tilheyrir
þessari sömu umbrotahrinu er ekki
vitað en ýmislegt bendir þó til að
svo hafi verið. Eins og ljóst má vera
eru ýmsir þættir umbrotanna fyrir
um 11 þúsund árum enn í móðu en
þó má segja að fengist hafi sæmileg
heildarmynd sem byggja má á við
frekari rannsóknir.
Gosvirkni, fasar
Type of activity
Öskjukerfi á 19. og 20. öld
Activity in the 19th to 20th century
Öskjukerfi fyrir 11 þúsund árum
Activity 11.000 years ago
Basaltgos, gjóskugos og hraungos.
– Basalt eruptions, explosive and effusive
activity.
1874–75, gjóskugos og einnig mögulega
hraungos.
– Volcanic activity in 1874–75.
Gjóskugos í Öskju, gjóska undir Öskju-S.
Óvíst með hraun.
– Explosive activity in the Askja region.
Plínísk virkni (kísilrík/súr kvika).
– Plinian eruption, silicic tephra.
Sprungugos á sama tíma.
– Contemporaneous fissure eruption.
Í mars 1875. Öskjuvikur (0,32 km3
reiknað sem berg)14
– Plinian eruption in March 1875.
Gos í Sveinagjá (Nýjahraun) í febrúar
1875, 40–65 km norðan Öskju (um 0,34
km3).14
– Fissure eruption in February 1875 in
Sveinagjá 40–65 km north of Askja.
Gjóskulagið Askja-S myndast (um 1,5
km3 reiknað sem berg).24
– Formation of the Askja-S tephra.
Sveinahraun rennur, 55–130 km norðan
Öskju (um 2 km3).
Rauðhólar -Hljóðaklettar?
–Formation of the Sveinahraun lava 55–130
km north of Askja.
Basaltgos, sprungugos (eftirhreytur).
– Fissure eruptions, the waning phase.
Gos í Sveinagjá (Nýjahraun) í apríl til
október 1875 með hléum. Sprungugos
í Öskju, 1921–29 (0,24 km3)14 og aftur
1961 (0,1 km3).12,14
– Fissure eruption in Sveinagjá in April
to October 1875. Basalt eruptions in Askja
and vicinity in 1921–29 and again in 1961.
Seinni gosfasi í Randarhólum. Gjóskugos
í Öskju, basaltaska leggst yfir Öskju-S.
Óvíst um hraun.
– A minor fissure eruption in the Randarhó-
lar crater row and an explosive eruption in
the Askja region.
Öskjumyndun.
– Formation of a caldera.
Öskjuvatn myndast.
– Formation of the Öskjuvatn caldera.
Askja/Norðuraskja?
– Possible formation of the Askja caldera or
the Norðuraskja caldera.
3. tafla. Samanburður á umbrotahrinum í Öskjukerfi á 19. og 20. öld og fyrir um 11 þúsund árum. – Comparison of the Askja Fires in the
19th–20th century with the volcanic activity in the Askja volcanic system about 11.000 years ago.