Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2016, Blaðsíða 27

Náttúrufræðingurinn - 2016, Blaðsíða 27
99 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags Á öldinni sem leið skapaðist lífleg og oft hatrömm umræða um orsakir og ástæður fyrir slæmu ástandi skóga og annars gróðurlendis. Ábúð og örtröð nefnist tímamótagrein Hákonar Bjarnasonar fyrrverandi skógræktarstjóra.21 Hákon lýsir þar lélegu ástandi gróðurs og fer ekki í grafgötur um að rekja megi meginorsakir hnignunar og eyðingar gróðurlendis til ósjálf - bærrar nýtingar landsins í aldanna rás. Ekki síst olli stjórnlítil sauðfjárbeit skógareyðingu þar sem beitin hélt niðri náttúrulegri endurnýjun skóganna. Hákon byggði sína grein á athugunum sem hann gerði á nokkrum stöðum á landinu og bendir í niðurlagi greinarinnar á að til þess að fá heildarmynd um stöðu gróðurfars verði að fara fram kortlagning og mat á ástandi þess á landinu öllu. Um miðbik sjötta áratugarins hefjast svo rannsóknir og síðar kortlagning á gróðurfari landsins.22 Hæð og aldur birkis á Íslandi Hæð, stærð og ævilengd birkis er afar misjöfn. Hávaxna birkiskóga er helst að finna inn til landsins á Norðaustur- og Austurlandi. Í Vaglaskógi í Fnjóskadal stendur hæsta villta birkitré sem mælt hefur verið (1. mynd). Það var 14,2 m haustið 2016. Til eru hávaxnir birkiskógar en íslenska birkið telst þó hægvaxta, er oftast lágvaxið og verður ekki mjög gamalt. Árið 1989 var gerð úrtaksrannsókn um hæð, vöxt og aldur birkitrjáa og náði hún til landsins alls. Meðalaldur í kjarri (tré undir 2 m) reyndist 36 ár, í lágvöxnum skógi (2–4 m) 47 ár, og í hávöxnum skógi (tré yfir 4 metrum) 59 ár.23 Greind hafa verið mun eldri tré. Elsta birkið sem borkjarni hefur verið tekinn úr til árhringjarannsókna stendur í Hallormsstaðaskógi og reyndist 180 ára gamalt.24 Við rannsóknir á árhringjavexti birkis á Norðurlandi (Vaglaskógi) kom í ljós að jákvæð fylgni er á milli árhringjabreiddar og mánaðar meðalhita í júní og júlí.25 Í sams konar árhringjarannsókn á Suðurlandi (Bæjarstaðarskógi) sást að meðalhiti yfir alla sumar- mánuðina (júní–ágúst) hafði háa fylgni við árhringjavöxt.26 Fyrri skógarúttektir Árið 1971 tóku Skógrækt ríkisins og Skógræktarfélag Íslands höndum saman við að undirbúa úttekt á útbreiðslu og ástandi birkileifa í landinu í tengslum við gerð lands- áætlunar um skógrækt. Fyrsta vettvangsúttektin fór fram sumrin 1972 til 1975 undir stjórn Hauks Jörundarsonar búfræðings hjá Búnaðarfélagi Íslands.27 Beitt var nýjustu tækni þess tíma við vettvangskortlagningu, það er loft- ljósmyndun sem þá var að ryðja 1. mynd. Hæsta náttúrulega birkitréð sem mælt hefur verið á Íslandi stendur í Vaglaskógi í Fnjóskadal. Haustið 2016 mældist það 14,2 m hátt. – The highest natural birch tree measured in Iceland was 14.2 m in autumn 2016. It grows in Vaglaskógur forest in North Iceland. Ljósm./Photo: Rúnar Ísleifsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.