Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2016, Page 29

Náttúrufræðingurinn - 2016, Page 29
101 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags var um svæði vaxin ungu birki sem ekki voru á kortum frá fyrri úttektum. Hluti vandans lá í að tilfærsla þeirra frá loftmyndum yfir á flatarmálsrétt landakort og þaðan yfir á stafrænt form hafði oft í för með sér hliðrunarskekkju á birkiskógakortinu. Gerð var tilraun til að leiðrétta þessa skekkju með því að hliðra birkisvæðum.38 Stuðst var við myndgrunn sem gerður var úr nýjum SPOT 5-gervitunglamyndum. Þrátt fyrir þessar lagfæringar reyndust kortin sem byggðust á gömlu birkikortlagningunni ekki nógu nákvæm. Þau sýndu ekki nógu vel rétta stærð, lögun og legu alls birkilendis á Íslandi og nýttust því ekki sem áreiðanlegt úrtaksþýði fyrir úrtaksúttektina. Því var ákveðið sumarið 2010 að hefjast handa við endurkortlagningu allra náttúrulegra birkiskóga og birkikjarrs í landinu og ljúka því verki á fimm árum. Markmið hennar voru að • útbúa nýtt og uppfært kort af birkiskógum og birkikjarri á Íslandi og þá í betra samræmi en áður við alþjóðlegar skil- greiningar á skógi og öðru viði vöxnu landi, • kanna hvort breytingar hefðu orðið á flatarmáli birkiskóga og birkikjarrs frá síðustu birki- úttekt, árin 1987–91, og • athuga hvort hægt væri að tengja breytingar í flatarmáli birkis við breytt sumarhitastig eða breytingar á sauðfjárhaldi síðustu áratuga. Hér verður gerð grein fyrir þessari úttekt. AÐFERÐIR Önnur kortlagning á birki sem var nýtt við úrvinnslu Til að koma í veg fyrir tvíverknað var kannað áður en kortlagningin hófst hvort aðrar stofnanir hefðu nýlega unnið að kortlagningu birkis með einum eða öðrum hætti. Auk Skógræktar ríkisins hefur Náttúrufræðistofnun Íslands (NÍ) unnið að kortlagningu birkis, og slík kortlagning var einnig hluti doktorsverkefnis við Háskóla Íslands. Var þessi kortlagning nýtt í úttekt okkar. NÍ hefur staðið að gróður kort- lagningu um árabil og þar hafa m.a. verið skráðar upplýsingar um útbreiðslu birkis. Sú skráning felur fyrst og fremst í sér að kortleggja jaðra birkifláka en frekari upplýsingar um eiginleika birkis eru takmarkaðar. Það kom því í hlut starfsmanna Skógræktar ríkisins að lýsa frekar þessum kortlögðu svæðum og var lögð áhersla á að skrá hæð, þekju og aldur birkis. Birkikortlagningar NÍ eru misgamlar og eru sumar þeirra komnar nokkuð til ára sinna. Það þýddi að skoða þurfti hvort birki hefði breiðst út fyrir kortlagða jaðra. Í ljós kom að það hafði gerst í nokkrum tilfellum, til að mynda á Mýrum, og var farið þangað í sérstakar vettvangsferðir til að greina aukna útbreiðslu. Flatarmál kortlagðra birkireita á vegum NÍ nam 8% af heildarflatarmáli kortlagðra birkisvæða. Friðþór Sófus Sigurmundsson doktorsnemi við Háskóla Íslands kortlagði birki í tengslum við doktorsverkefni sitt og lét hann í té kort af birkisvæðum með skráningu hæðar, þekju og aldurs. Þessi gögn nýttust beint inn í gagnagrunn Skógræktarinnar og þurfti ekki frekar að skoða þau svæði eða heimsækja. Flatarmál kortlagðra birkireita hjá Friðriki Sófusi nam 2% af heildarflatarmáli kortlagðra birkisvæða. Kortlagning Fjarkönnun með hjálp gervi hnatta- gagna er vel þekkt og viðurkennd aðferð sem hefur rutt sér til rúms á síðustu áratugum og hentar m.a. vel við kortlagningu gróðurs. Þó eru á henni nokkrir annmarkar sem koma helst í ljós þegar trjáplöntur eru smáar og þéttleiki þeirra lítill. Við slíkar aðstæður er skóglendið sem slíkt ekki fjarkannað heldur einungis ríkjandi gróðurlendi þar sem smáplönturnar vaxa. Því var tekin sú ákvörðun að notast ekki við fjarkönnun heldur kort- leggja á vettvangi ofan á SPOT 5-gervitunglamyndir sem teknar voru á tímabilinu 2002 til 2009. Myndirnar voru teknar úr 832 km hæð og nær hver mynd yfir 60×60 km sem nemur 3.600 km2. Þær eru teknar á fjórum böndum, þremur litböndum með 10 m greinihæfni og einu svarthvítu bandi með 2,5 m greinihæfni. Það er notað til að skerpa litaframsetningu myndanna. Tilbúið blátt band er notað til að útbúa myndir í raunlitum og er staðsetningarnákvæmni þeirra um 5 m.39 Upplausn og gæði SPOT-myndanna hentuðu ágæt- lega markmiði um nákvæmni kortalagningar, um þann tíma sem settur var til að ljúka kortlagningunni og þeim mannskap og fjármunum sem áætlaðir voru til verksins. Vettvangsvinnuna unnu starfs- menn með þjálfun og þekkingu á vettvangskortagerð. Sérfræðingar á Rannsóknastöðinni á Mógilsá kortlögðu öll skóglendi á Vest- fjörðum, Vesturlandi og Suður landi, og tók sænskur skóg fræðingur að auki þátt í vettvangsvinnu eitt sumarið. Ráðunautar Skógræktar ríkisins á Norðurlandi og Austur- landi sáu um kortlagningu hver í sínum landshluta. ArcGIS-landupplýsinga hug- búnaður var notaður við alla kortlagningu og eftirvinnslu, sem og við uppbyggingu landfræðilegs gagnagrunns. Kortlagningin fór öll fram í vettvangstölvum þar sem GPS-staðsetningartæki var tengt við tölvuna til að gefa staðsetningu þess sem kortlagði, en einnig til að sýna þá jaðra birkisins sem gengnir voru. Línur voru dregnar ofan á SPOT-myndirnar til að ákvarða jaðra birkisvæðanna og til að skipta svæðum upp í fláka ef mikilvægar breytur voru ólíkar. Mest áhersla var lögð á að flokka skógana í hæðarflokka fullvaxta skógar til að hægt væri að meta alþjóðleg gildi fyrir skóglendi og annað viði vaxið land á Íslandi.6 Þrír hæðaflokkar

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.