Náttúrufræðingurinn - 2016, Síða 32
Náttúrufræðingurinn
104
Þegar borin er saman núverandi
hæð og hæð fullvaxta kemur í ljós
að um það bil helmingur birkis sem
nú er undir 2 m verður hærra en 2
m fullvaxta. Gera má ráð fyrir að
fimmtungur birkis sem nú er lægra
en 5 m nái þeirri hæð fullvaxta.
Töluverður munur var á sjónrænu
aldursmati og aldri samkvæmt
árhringjatalningu á sýnum. Aldurinn
var bæði vanmetinn og ofmetinn en
ofmat aldurs var mun algengara, og
að meðaltali um 37%. Það þýðir að
skóglendi sem var sjónrænt metið
40 ára var að jafnaði 15 árum yngra.
Frá árinu 1989 hefur flatarmál
náttúrulegs birkilendis aukist um alls
130 km2, sem er um 9% flatarmáls -
aukning (3. tafla). Aukningin jafn-
gildir samanlögðu flatarmáli Þing-
valla vatns og Lagarfljóts.
Mikill munur var á nýliðun
birkis á milli landshluta. Mest var
nýliðunin á Vestfjörðum, 44 km2,
sem er 14% flatarmálsaukning
frá árinu 1989. Á Suðurlandi var
aukningin 43 km2 (13%) og 28
km2 (7%) á Vesturlandi. Minnst
var nýliðunin á Norðurlandi, 8
km2, en þar hefur orðið 3% flatar-
máls aukning frá árinu 1989. Á
Austurlandi nam aukningin 7 km2
(4%). Á 8. mynd eru sýnd svæði á
Suðurlandi þar sem mikil breyting
hefur orðið á útbreiðslu birkis
með landnámi þess á skóglausum
svæðum. Aftur á móti má á 9.
mynd sjá svæði á Norðurlandi þar
sem lítil sem engin breyting hefur
orðið á flatarmáli birkis. Í því tilviki
hefur samt sem áður orðið töluverð
breyting á staðsetningu og útlínum
birkilendisins sem skýrist að hluta
til með nýliðun.
Töluverður munur var á sumar-
hita milli landshluta. Sumarhiti
var 2,1°C hærri innan birkilendis
en meðaltal sumarhita fyrir landið
allt. Það þýðir að birkið er að
vaxa á svæðum þar sem sumar-
hiti er að meðaltali hærri en á
landinu öllu. Jákvætt samband, en
þó ekki marktækt, var á milli hita-
stigshækkunar og hlutfallslegrar
aukningar á flatarmáli birkis í
hverjum landshluta (aðhvarf;
r2=0,68, N=5; P=0,09). Sambandið
milli fækkunar sauðfjár og nýliðunar
birkis var einnig jákvætt en heldur
ekki marktækt (aðhvarf; r2=0,55,
N=5, P=015).
UMRÆÐUR
Útbreiðsla náttúrulegs birkis á
Íslandi hefur verið metin með
ýmsum hætti frá því fyrstu tilraunir
til þess voru gerðar í upphafi 20.
aldar. Oft er erfitt að bera saman
mismunandi niðurstöður þar
sem forsendur kortlagningar
6. mynd. Mat á útbreiðslu birkiskóga og birkikjarrs á Íslandi miðað við fullvaxta birki
samkvæmt nýrri kortlagningu frá árunum 2010–2014. – Distribution of natural birch
woodland in Iceland. The distribution is classified by three height classes at maturity;
shrubland (<2 m) (yellow), woodland (2–5 m) (brown) and forest (>5 m) (red). Black lines
show the border of the five regions defined in this paper. Mynd/Fig.: Björn Traustason 2016.
Landshluti
Region
Kjarrskógur <2 m
Shrubland < 2 m
Lágskógur 2–5 m
Woodland 2–5 m
Háskógur >5 m
Forest >5 m
Allir flokkar
Sum classes
km2 %* km2 %* km2 %* km2 %**
Vesturland 104 27 270 69 17 4 391 26
Suðurland 99 30 210 63 23 7 332 22
Vestfirðir 229 74 80 26 0 0 309 21
Norðurland 68 24 179 62 41 14 288 19
Austurland 50 27 103 55 33 18 186 12
Allt landið 550 37 842 56 114 8 1506 100
1. tafla. Birkilendi á Íslandi flokkað eftir hæð fullvaxta og landshlutum. – Distribution of natural birch in Iceland, classified by height at
maturity and by regions.
* Hlutfall hæðarflokks af heildarflatarmáli í landshluta – Ratio of forest class in each region.
** Hlutfall í landshluta af heildarflatarmáli – Ratio in region of total in country.