Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2016, Blaðsíða 35

Náttúrufræðingurinn - 2016, Blaðsíða 35
107 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags af birki, fjalldrapa og blendingi þessara tegunda í mólögum sýna að útbreiðsla birkis hefur verið óstöðug frá síðustu ísöld og fram að landnámi og fylgt náið hitafarsbreytingum á tímabilinu.3 Rannsóknir á land námi birkis við skógarmörk í Norður- Noregi og á Kólaskaga samhliða auknum sumarhita gáfu svipaða niðurstöðu.43 Beitarálagið hafði þó meiri áhrif á aukna útbreiðslu birkisins en aukinn sumarhiti. Á því rannsóknarsvæði þar sem beitar álagið var mest lækkuðu skógarmörk. Á þremur rannsóknar- svæðum öðrum stóðu þau í stað en hækkuðu á tveimur svæðum. Þetta gerðist þrátt fyrir að aukning sumarhita væri svipuð á öllum rannsóknarsvæðunum og reynt hafi verið að velja svæði sem voru landfræðilega lík. Fleiri þættir stýra landnámi birkis en beit og sumarhiti. Þetta hefur komið fram í rannsóknum á landnámssvæðum birkis á Skeiðar - ársandi þar sem fræuppsprettur eru í töluverðri fjarlægð. Fræframleiðsla og spírun fræs eru hitaháðir ferlar og góðum fræárum getur fylgt öflugt landnám birkis, eins og gerst hefur á Skeiðarársandi á síðustu áratugum. Það landnám virðist helst skýrast af því að saman fóru góð fræár með miklu magni af þroskuðu fræi, hagstæð spírunarskilyrði og lítið beitarálag sem allt lagði grunninn að fyrstu kynslóð birkis á sandinum í byrjun tíunda áratugar síðustu aldar.48 Slík skilyrði geta verið tímabundin og tilviljunarkennd. Það kom í ljós á Skeiðarársandi þar sem nýliðun dróst mjög saman eftir 1998. Í ungskóginum eru ungplönturnar byrjaðar að framleiða töluvert af fræi en spírunargeta þess er hins vegar afar lítil miðað við spírunargetu fræs í eldri skógum í Skaftafelli og Morsárdal og í jaðri þeirra.49 Lífeðlisfræðilega er þessi munur óútskýrður en böndin berast að gæðum og magni frjókorna. Þessi hindrun hægir á landnámi birkis til lengri tíma litið. Setgerðin þar sem fræið spírar og smáplantan vex upp hefur einnig mikil áhrif á landnám birkis og vaxtarhraða þess.50 Á landgerðum þar sem frosthreyfingar eru miklar eða svarðgróður þykkur og raki í jarðvegi sveiflugjarn eru skilyrði léleg fyrir landnám birkis þótt fræregn sé nægjanlegt og fræin spírunarhæf. Fjarkönnun á gróðri á norður- slóðum, þar sem athugaður var munur á blaðgrænu gróðurs á árabilinu 1982 til 2010, leiddi í ljós að aukningin var mest á vestari helmingi landsins og minnkaði eftir því sem austar dró.51 Þetta er í samræmi við landshlutamun á nýliðun birkis sem hér hefur verið lýst. Almennt var mest aukning á blaðgrænu á árunum 1982–89, nokkuð minni á tímabilinu 1990–99, en minnst aukning var á árabilinu 2000–2010. Wöll11 safnaði sýnum úr íslensku birki til aldurs- og vaxtargreininga og komst að þeirri niðurstöðu að birki hefði á tímabilinu 1997-2006 aukið þvermálsvöxt miðað við tímabilið 1987–1996. Það styrkir þá kenningu að aukna útbreiðslu birkis megi að nokkru leyti rekja til samspils hækkandi sumarhita á Íslandi vegna veðurfarsbreytinga 9. mynd. Birkiskógurinn í Aðaldalshrauni í Aðaldal, Suður-Þingeyjarsýslu hefur aftur á móti lítið breyst frá síðustu úttekt. Kortið til vinstri sýnir eldri kortlagninguna frá 1987–91 en kortið hægra megin nýju kortlagninguna frá 2010–14. Á það kort hafa verið dregnar útlínur eldri kortlagningarinnar til að sýna muninn á lögun skógarins. Ljóst er að eldri kortlagningin er að hluta til mun grófari en sú yngri en það hafa líka orðið breytingar á útbreiðslu birkis, t.d. í vegsvæði þjóðvegarins sem sker landið. Með samanburði við eldri kortlagninguna sést vel að birki frá síðustu áratugum nær nú alveg upp að vegöxlum. – The figure shows the mapped birch woodland in the 1987–91 inventory (left) compared with the same area mapped in the inventory presented in this paper (right). Two height classes, higher than 2 m (brown) and lower than 2 m (yellow) are shown on the map from 1987–91. On the map from 2010–14 the height at maturity is shown; shrubland (<2 m) (yellow), woodland (2–5 m) (brown) and forest (>5 m) (red).The black line denotes the border of the mapped area in 1987–91. The area, the Aðaldalshraun lava-field in North Iceland, is a typical site where the distribution of birch has not changed much since the last inventory. Nevertheless, there are some changes that can be observed on the main road strip through the woodland, now grown with newgrowth of birch up to the road. Mynd/Fig.: Björn Traustason 2016.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.