Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Náttúrufræðingurinn - 2016, Qupperneq 49

Náttúrufræðingurinn - 2016, Qupperneq 49
121 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags er kafli út af fyrir sig29,30 og þarfnast frekari umfjöllunar. Dag einn sumarið 1956 gerði Valgerður Stefáni manni sínum að sýna okkur börnunum Stefánshelli, mér og Ingibjörgu frænku minni, ári eldri. Stefán kveinkaði sér og varðist fyrirmælum Valgerðar: – Ég get ekki hugsað mér að fara þangað aftur, það er búið að skemma þar allt og eyðileggja. Nokkrum dögum síðar riðum við þrjú, Stefán, Ingibjörg frænka mín og ég, upp að Fiskivatni, silungsvatni neðarlega á Arnarvatnsheiði. Á heimleið vorum við skyndilega komin fram hjá hellunum. Ætlaði hann ekki að sýna okkur þá? Í örvæntingu kom mér almáttug Valgerður í hug, og herti upp hugann: – Við segjum Valgerði frá þessu! Stefán sneri hestinum við, ekki orð um það meir. Varða er við vesturbrún aðalops Stefánshellis, og fór hann með okkur þangað. Frá opinu liggja göng í allar áttir, þrenn víð, um hin opin þarf beygja sig töluvert eða skríða. Hann stóð þarna í hálfrökkrinu og leiðbeindi okkur: – Þið farið þarna og þarna, sjáið þetta og þetta, svo komið þið til baka. Þannig leiðbeindi hann okkur mislangt áleiðis um öll opin. Hann þekkti hellinn bókstaflega eins og lófann á sér. Það undraði mig hve áhugi okkar og spurningar kveiktu í honum. Hann var hins vegar með öllu ófáanlegur til að segja okkur hve háir dropsteinarnir höfðu verið eða dropstráin löng. – Svona löng, svona löng? spurðum við ítrekað. Engin viðbrögð. Þegar rigndi áttum við börnin til að heimsækja hellana. Ástæðan fyrir því að við völdum Stefánshelli voru orð Valgerðar, tiltölulega gott aðgengi, slétt gólfin, misvíðir gangar, stórir salir og hve flókinn hellirinn er. Ljósabúnaður var fábrotinn, kerti og tvö þriggja volta vasaljós. Rafhlöður voru dýrar og okkur gert að spara þær. Stefánshellir varð „leikvöllur“. Við fórum niður um eitthvert opið og „villtumst“ af ásettu ráði. Alltaf komumst við einhvers staðar upp. Fljót að átta okkur, jafnvel þótt þoka lægi yfir. – Hvergi var að finna dropstein yfir þremur cm á hæð. Brotna steina var hvergi að finna. Í meginrás Stefánshellis, á svæði u.þ.b. 50–100 m frá aðalopinu, voru á sjötta og fram á sjöunda áratuginn allmörg og óvenju stór hellahraundrýli. Misstórar hraunklessur eða strýtur, nokkrir tugir, allt að 70 cm í þvermál og upp í 50–60 cm háar. Ekki gerðum við okkur grein fyrir tilurð þeirra eða myndunarferli þá. Drýlin eða strýturnar voru „aðeins“ hluti af hellinum. Hellahraundrýli verða til við að froðukennt, gasríkt hraun vellur upp um hellisgólfið. Verða oft klessulegri en á yfirborði vegna þess að kvika storknar hægar í hita hellisins en á yfirborðinu. Drýlin litlu eru nú með öllu horfin. Brotsárin sjást, og gas- eða frauðrásin að neðan í miðju sumra þeirra. Löngu síðar gerði ég mér grein fyrir að þessi hraundrýlaþyrping var einstök í sinni röð. Þrátt fyrir viðbrögð Stefáns, eða réttara sagt viðbragðaleysi, við spurningum okkar, eða ef til vill vegna þeirra, hélt ég að Stefánshellir hefði aldrei verið mjög skreyttur. Að minnsta kosti ekkert í líkingu við Víðgelmi, sem ég heimsótti fyrst tveim-þrem árum síðar, 1959, í fylgd Kalmans, sonar Stefáns. Seint á tíunda áratugnum rakst ég á lýsingu Stefánshellis hjá Matthíasi Þórðarsyni frá 1920.18 Þar er ekkert minnst á dropsteinsmyndanir, og styrkti það þessa skoðun mína. Áður hafði ég lesið lýsingu Víðgelmis eftir Matthías frá 1910,17 þar sem myndanir hellisins bókstaflega gagntaka hann, og þótti mér samanburður þessara frásagna hníga í sömu átt. Samtölin við eldhúsborðið í Kalmanstungu á sjötta áratugnum eru enn fersk í minningunni. Sögur af því hvernig fólk bar sig að við að fjarlægja, taka, skemma og brjóta í hellunum, af óvitahætti eða viljandi. Þegar fréttir bárust af fundi dropsteinshella í Gullborgarhrauni sumarið 1957 staðhæfðu gömlu hjónin að það myndi ekki taka „þá“ langan tíma að skemma hellana. Hraunhellarnir vöktu hjá mér, fimm ára gömlum, áhuga sem ekki varð slökktur. Fréttir af skemmdum á Gullborgarhellum tóku að berast strax um og upp úr 1960 og áfram fram yfir miðjan áttunda áratuginn. Í ljósi staðhæfinga Stefáns og Valgerðar og fréttaflutningsins dró ég þá ályktun strax á áttunda áratugnum að búið væri að skemma allt sem hægt væri að skemma í Borgarhelli, lengsta og skreyttasta hellinum. Málið reyndist þó ekki svo einfalt. Veturinn 1983–1984 rakst ég í gögnum Náttúruverndarráðs á myndir af dropsteinsmyndunum í botni Borgarhellis frá Cork-hellafélaginu á Írlandi, frá sumrinu áður eða þar áður, dropsteinsmyndunum sem ég hafði ályktað af tveggja áratuga fréttaflutningi að væru löngu horfnar. Ári síðar heimsóttu höfundar Borgarhelli og ljósmynduðu og skjalfestu það sem þá var enn eftir af dropsteinsmyndunum. Smám saman gerðum við okkur grein fyrir því að Sigurður Þórarinsson31 og finnandi hellanna, Guðmundur Albertsson á Heggstöðum, höfðu gert allt sem í þeirra valdi stóð til að koma í veg fyrir skemmdir eða draga úr þeim, Sigurður á vettvangi Náttúruverndarráðs og Guðmundur sem heimamaður og „hliðvörður“ hellanna. Gullborgarhellar voru ekki: „ ... ekki lengi að skemmast.“ Þeir voru einmitt lengi að skemmast. Aðgerðir Sigurðar og Guðmundar hægðu á. Nú er hinsvegar búið að brjóta og fjarlægja flest sem hægt er í Borgarhelli. Þannig eru nánast allir frístandandi dropsteinar hellisins, 84 talsins, horfnir (Árni B. Stefánsson, óbirt gögn frá 2007–2011). Borgarhellir er enn að skemmast! Með tímanum urðu höfundar smám saman forvitnari að vita hve skreyttur Stefánshellir hefði í raun verið. Engin leið var að hafa upp á ljósmyndum. Því lá beinast við að athuga það nánar á staðnum. Ótrúlega miklar skemmdir Náttúruleg afföll á dropsteins- myndunum, dropsteinum, drop- stráum og öðrum viðkvæmum
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.