Náttúrufræðingurinn - 2016, Page 58
Náttúrufræðingurinn
130
jarðhitavatnsins en til þess duga
sýni af gasbólum í hverum eða gasi
í gufuaugum ekki. Með borholum
á jarðhitasvæðum ætti nú að vera
unnt að ná gögnum til þessa með
töku djúpsýna af vatninu áður en
afgösun hefst eða með mælingum á
rennsli og gasi úr borholum þar sem
innstreymið byrjar ekki að afgasast
fyrr en inn í borholuna er komið.
Við túlkun á niðurstöðum þarf
einnig að taka tillit til mismunandi
íblöndunar gasa í vatnið, sem
þynna styrk radonsins. Vatnið er
að uppruna kalt grunnvatn með
uppleyst N2, O2 og Ar. Bergið bindur
O2 úr vatninu í efnasambönd en í
lághitakerfum bætist nær ekkert
við af öðrum gösum í vatnið þótt
það hitni. Þegar heita vatnið nálgast
yfirborð í uppstreymi léttir þrýstingi
og að því kemur við lægri þrýsting
að vatnið mettast af uppleystum
lofttegundum. Gasbólur myndast
í uppstreyminu og inn í þær fer
mestur hluti uppleysta gassins, þar
á meðal radonið. Í vatnshverum
er gasið lítið að magni og nær
eingöngu N2 og Ar. Í hverum og
gufuaugum á háhitasvæðum eru
N2 og Ar hins vegar aðeins 5–20%
af rúmmálshluta gasblöndunnar
vegna þess að við hafa bæst aðrar
gastegundir og þá einkum CO2.
Sú íblöndun þynnir styrk radons í
gasblöndunni. Þorkell reiknar virkni
radons sem hlutfall af öllu rúmmáli
gassins V en sennilega væri réttara
að reikna hana sem hlutfall af V1
sem væri rúmmálshluti N2 og Ar.
Þá er gert ráð fyrir að það N2 og Ar
sem er í hverum og gufuaugum á
háhitasvæðum sé hið upprunalega
sem kom með köldu aðstreymi
en ekkert hafi bæst við af þessum
gastegundum á leið vatnsins um
háhitakerfið. Þennan umreikning
er hægt að gera vegna þess að
Þorkell greindi rúmmálshlutföll
allra gastegunda. Til að sneiða
hjá áhrifum þynningar af völdum
viðbótargasa í tölum Þorkels þarf
aðeins að deila í tölur hans með
rúmmálshlut N2 og Ar samkvæmt
rúmmálsprósentu þeirra í 4. dálki
1. töflu. Í 2. töflu eru niðurstöður
Þorkels umreiknaðar á þennan hátt.
Þar sem rúmmálsprósenta N2 og Ar
er yfirleitt 98–100% á lághitasvæðum
breytast gildi þar lítið en þau
breytast verulega á háhitasvæðum
þar sem rúmmálsprósenta N2 og
Ar er undir 20%. Í 2. töflu eru sýni
frá háhitasvæðum auðkennd með
grænu letri. Það er ljóst af þessari töflu
að styrkur radons er hlutfallslega
lítill á lághitasvæðum, undir 500
Bq/L N2+Ar, en vex verulega þegar
kemur á háhitasvæði, í allt að 68.000
Bq/L N2+Ar. Hæstu gildin reiknast
á Reykjanesi, í Hengli, í Litla Strokki
við Geysi og í Kerlingarfjöllum.
NIÐURSTÖÐUR
JARÐHITADEILDAR
RAFORKUMÁLASTJÓRA
UM RADON Í HVERAGASI
Á árunum 1965 og 1966 voru á vegum
Jarðhitadeildar raforkumálastjóra
tekin sýni af hveragasi víða á
landinu til að greina geislavirkni
radons og hlutföll gastegunda. Sýni
voru tekin úr vatns- og gufuhverum
líkt og sýni Þorkels hálfri öld áður, en
almennt var ekki hægt að ganga að
sömu stöðum til sýnatöku. Næst því
varð komist á lághitasvæðum þar
sem hverir breytast lítið með tíma
og hafa ákveðin nöfn. Gufuaugu
á háhitasvæðum eru hins vegar
síbreytileg og sjaldnast rekjanleg
yfir áratugi. Nýir staðir höfðu komið
til með borunum eftir jarðhita í
Reykjavík, Ölfusdal, Krýsuvík,
Námaskarði og á Nesjavöllum
en háhitaboranir á Reykja nesi,
Hellisheiði og í Svartsengi og Kröflu
voru ekki hafnar. Vegna hárra gilda
frá Geysissvæðinu í niðurstöðum
Þorkels (sbr. 1. töflu) var lögð áhersla
á að ná sýnum þaðan. Ekki voru
2. tafla. Niðurstöður Þorkels Þorkelssonar um geislavirkni af völdum radons umreiknaðar
fyrir lítra af nitri og argoni í hveragasinu. Sýni frá háhitasvæðum eru auðkennd með grænu
letri. Hin sýnin eru frá lághitasvæðum. – Results of Thorkell Thorkelsson on radioactivity
due to radon, corrected for liter of nitrogen and argon in the geothermal gas. Samples from
high temperature areas are marked with green letters. The other samples are from low
temperature geothermal areas.
Staður – Location Bq/L N2 + Ar
Hjálmstaðalaug 21,2
Breiðholtslaug 31,5
Veggjalaug 33,4
Úteyjarhverir 34,7
Selfosslaug 36,6
Suður-Reykir 38,5
Kollafjarðarlaug 39,8
Norður-Reykir 42,2
Laugalandslaug 52,2
Reykjavellir,
Biskupstungum 52,9
Reykir, Skagafjörður 67,3
Reykjanes, Grímsnesi 73,1
Laugarvatnshverir 90,5
Reykjahverfi 104
Reykjanes, Ísafjarðardjúpi 130
Stóra-Kroppslaugar 134
Kleppjárnsreykjahverir 149
Laugarnes (Þvottalaugar) 158
Deildartunguhver 173
Laugarás 185
Hurðarbakslaugar 299
Grafarbakkahverir 303
Dynkur 323
Sturlu-Reykjahverir 353
Skrifla 589
Hverahlíð 2.616
Reykir, Ölfus 2.934
Hveravellir 3.094
Reykjafoss 3.964
Sogahver 4.962
Hveramóahver 5.051
Krafla 6.093
Námafjall 7.372
Geysissvæði, Fata 7.420
Geysissvæði, nr. 6, 22, 30, 57 7.946
Miðdalur 8.090
Hengill 8.140
Reykjanestá 15.663
Fremstidalur 19.636
Hveradalir, Hengill 21.488
Geysissvæði,
Litli-Strokkur 45.627
Kerlingarfjöll 68.341