Náttúrufræðingurinn - 2016, Side 59
131
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
sótt sýni til Kerlingarfjalla. Gildi
Þorkels þaðan í 1. töflu skáru sig
ekki sérstaklega úr og hugmyndin
um leiðréttingu fyrir viðbótargasi
(sbr. 2. töflu) var ekki fædd.
Mælingar á virkni radons voru
gerðar í jónahylki líkt og mælingar
Þorkels en þó í rannsóknarstofu
líkt og efnagreining á hveragasinu.
Niðurstöður greiningar eru sýndar
í 3. töflu.
Hæstu gildin mælast á Geysis-
svæðinu. Rúmmálsprósenta N2 og
Ar er á bilinu 85–100% á lághita-
svæðum, mun lægri, 1–10%, á
virkum háhitasvæðum og 20% á
Geysissvæðinu. Í 4. töflu eru sýnd
sömu gögn um geislavirkni þegar
miðað er við rúmmálshlut N2 og
Ar í stað heildarrúmmáls gassins.
Litli Strokkur á Geysissvæði hefur
enn vinninginn. Lághitasvæði eru
með virkni undir 500 Bq/L N2 +Ar
en háhitasvæði með virkni allt að
35.000 Bq/L N2 +Ar.
HVAÐAN KEMUR
RADONIÐ?
Radín, móðurefni radons, hefur
helmingunartímann 1600 ár en
radonið 3,8 daga. Radín er almennt
ekki í háum styrk í íslenskum
berglögum en getur þvegist með
vatni úr berginu við háan hita. Það
ferðast í upplausn vatnsins en getur
svo fallið út úr upplausninni ef
hiti lækkar. Í slíkum útfellingum
getur styrkur radíns orðið miklu
hærri en almennt í berginu. Radín
er jarðalkalímálmur og skylt baríni
efnafræðilega. Radínútfellinga væri
því að vænta á svipuðum slóðum
og útfellinga baríns.
Heitt grunnvatn ferðast hægt og
straumurinn verður ekki hraður
fyrr en rétt undir útstreymisstað.
Á 38 dögum fellur styrkur radons
í vatninu þúsundfalt. Radínið sem
gefur af sér radonið í hverum hlýtur
því að vera skammt undir yfirborði.
Radon sem myndast inni í bergi
hefur ekki langan tíma til að sveima
út í vatnið áður en það breytist í
málm. Mestur hluti þess radons
sem er í vatninu hlýtur að vera
myndaður í veggjum vatnsrása eða
í útfellingarskánum. Þegar radínið
sendir frá sér geislaögn og breytist
í radon spyrnist radonatómið út í
vatnið.
Þorkell Þorkelsson taldi sig
sjá merki þess að radonstyrkur í
hveragasi væri hærri í vatnsríkari
og heitari hverum. Mælingar og
túlkun hér að framan styrkja tilgátu
hans en þó með þeirri breytingu
að styrkurinn virðist hærri á
háhitasvæðum þar sem vatnshita
yfir 200°C er að vænta. Háhitasvæði
eru oft í rótum megineldstöðva þar
sem einnig er að finna súrt berg með
hærri radínstyrk en almennt í basalti.
Þar gætu aðstæður til úrþvottar
radíns verið virkari en annars staðar,
við háan hita í vatni með hærri
styrk uppleystra efna og íblöndun
gasa frá kviku. Í uppstreymi kólnar
háhitavatnið við suðu og þar gætu
skapast skilyrði til útfellingar radíns
nærri yfirborði.
Staður – Location Bq/L gas Vol %
R-10 Reykjavík 5,6 100
R-5 Reykjavík 7,4 95,2
Hátún – Höfðatún 10,7 96,7
R-11 Reykjavík 11,5 96,9
R-4 Reykjavík 15,5 97,7
Steindórsstaðir 17,0 98,0
Reykhólar, Þjófahver 17,8 97,0
G8 Ölfusdal 20,4 5,0
Reykhólar, Berghver 20,7 98,5
Námaskarð 25,9 10,0
Varmaland 27,8 98,0
R-9 Reykjavík 37,4 98,1
Krýsuvík 52,5 1,5
Stóri Ás 56,2 96,9
H-2 Nesjavöllum 83,4 2,0
Deildartunga 130 94,9
Hurðarbak 170 94,6
Kleppjárnsreykir 200 89,3
H-1 Nesjavöllum 249 1,2
Norðurreykir 272 89,5
Skrifla 422 85,0
Hægindi 533 87,8
Geysissvæði, Sóði 1.051 20,0
Geysissvæði,
Litli Strokkur 6.919 20,0
3. tafla. Niðurstöður Jarðhitadeildar um
geislavirkni af völdum radons í hveragasi. Í
3. dálki er rúmmálsprósenta (Vol%) niturs
og argons í hveragasinu. Upplýsingar um
staði þar sem sýni voru tekin er almennt að
finna í skýrslu Helga Torfasonar.5 – Results
of the Geothermal Department on
radioactivity due to radon in geothermal
gas. Column 3 shows the volume percentage
of nitrogen and argon in the geothermal gas.
Locations of sampling sites are described in
general by Helgi Torfason.5
Staður – Location Bq/L N2 + Ar
R-10 Reykjavík 5,6
R-5 Reykjavík 7,8
Hátún Höfðatún 11,1
R-11 Reykjavík 11,9
R-4 Reykjavík 15,9
Steindórsstaðir 17,3
Þjófahver Reykhólar 18,4
Berghver Reykhólar 21,0
Varmaland 28,4
R-9 Reykjavík 38,1
Stóri Ás 58,0
Deildartunga 136
Hurðarbak 179
Kleppjárnsreykir 224
Námaskarð 259
Norðurreykir 303
G8 Ölfusdal 408
Skrifla 496
Hægindi 607
Krýsuvík 3.500
H-2 Nesjavöllum 4.170
Geysissvæði, Sóði 5.254
H-1 Nesjavöllum 20.725
Geysissvæði,
Litli Strokkur
34.595
4. tafla. Niðurstöður Jarðhitadeildar um
geislavirkni af völdum radons umreiknaðar
í lítra af nitri og argoni í hveragasinu. Gildi
frá háhitasvæðum eru með grænu letri. –
Results of the Geothermal Department on
radioactivity due to radon, corrected for
liter of nitrogen and argon in the geothermal
gas. Samples from high temperature areas
are marked with green letters.