Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2016, Síða 64

Náttúrufræðingurinn - 2016, Síða 64
Náttúrufræðingurinn 136 Snævarr Guðmundsson Ritrýnd grein 61 Cygni – fjarlægð fastastjörnu mæld frá Íslandi Inngangur Stjarnan 61 Cygni lætur lítið yfir sér þegar horft er á hana berum augum (1. mynd) en aðgreinist í sjónauka í tvístirni (61A og 61B) með vítt hornbil. Sýndarbirtustig 61A er 5,2 og 61B 6,05. Hún er rauntvístirni, myndað af tveimur rauðum dvergstjörnum á meginröð (K5V+K7V). Yfirborðshiti 61A er ~4400°K og 61B ~4000°K. Þær eru smærri, kaldari og daufari en sólin (yfirborðshiti 5600°K) og hafa um 15% og 16% af ljósafli sólar.1 Báðar eru þær breytistjörnur, 61A vegna sólbletta- og lithvolfsvirkni tengdri möndulsnúningi, en 61B er blossastjarna.2 Tvístirnið 61 Cygni var í 27 og 28. sæti í röð nálægustu stjarna árið 2016.3 Sjónlínuhraði er 108 km/s en það styður tilgátur um að parið eigi ekki uppruna í þunnkringlu vetrarbrautarinnar (e. thin galactic disk).1 Snemma á 20. öld kom í ljós að 61 Cygni tilheyrir hópi stjarna sem ferðast í sömu stefnu í geimnum.4 Nokkrir hópar samferða stjarna eru þekktir og er talið að þeir eigi uppruna sinn í eldri þykkkringlu (e. thick galactic disk) vetrarbrautarinnar.5 Stjarnan 61 Cygni í Svansmerkinu er sýnileg berum augum undir myrkum himni en birtist sem tvær stjörnur í litlum sjónaukum. Þær deila sameiginlegri þyngdarmiðju og eru því tvístirni. Í upphafi 19. aldar var ályktað að 61 Cygni væri nærri sólu vegna hraðrar eiginhreyfingar og að fjarlægðin til hennar væri því mælanleg. Árið 1837 tókst þýska stjörnufræðingnum Bessel að mæla hana. Niðurstöður hans bentu til rúmlega 10 ljósára fjarlægðar en nýlegar gervitunglamælingar sýna að tvístirnið er 11,4 ljósár frá sólu. Í þessari grein eru kynntar stjarnhnitamælingar á 61 Cygni frá árunum 2012–2016. Niðurstöður þeirra voru bornar saman við viðurkennd gildi á umferðartíma tvístirnisins, eiginhreyfingu þess og sólmiðjuhliðrun, til þess að meta fjarlægðina. Niðurstöðurnar sýna að hægt er að nota meðalstóra stjörnusjónauka áhugamanna, myndflöguvélar og sérhæfðan tölvuhugbúnað til að meta brautir tvístirna og áætla fjarlægðir nálægustu fastastjarna. 1. mynd. Svanurinn er áberandi merki á haustmánuðum á norðurhveli. Rauða örin bendir á 61 Cygni. Til að sjá báðar stjörnur- nar þarf a.m.k. 10 x 50 handkíki. – Cygnus is a prominent autumn constellation, seen from the northern hemisphere. The arrow points to 61 Cygni‘s position. To visually separate the star into a pair an ocular of at least 10x magnification is needed Náttúrufræðingurinn 86 (3–4), bls. 136–143, 2016
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.