Náttúrufræðingurinn - 2016, Page 77
149
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
Náttúrufræðingurinn 86 (3–4), bls. 149–156, 2016
Ritrýni
a Snorri Baldursson 2014. Lífríki Íslands Vistkerfi lands og sjávar. Bókaútgáfan Opna og Forlagið, Reykjavík. 407 bls.
Skýringarmyndir: Baldur Helgi Snorrason ásamt Kötlu Maríudóttur og Snorra Þór Tryggvasyni. Kápa: Elisa Vendramin. Prentvinnsla: Oddi.
Útgáfa þessarar bókar markar tímamót. Í fyrsta skipti kemur fram á
sjónarsviðið stór og mikil bók þar sem gengið er út frá vistfræðilegri sýn á
lífríki Íslands. Auk þess er bókin sérlega glæsileg og aðgengileg.
Bókin fékk íslensku bókmenntaverðlaunin 2014. Í rökstuðningi dómnefndar
segir að Lífríki Íslands sé:
„... einstök bók um íslenska náttúru, yfirgripsmikið og ríkulega myndskreytt
rit sem fræðir lesendur um sögu og þróun lífríkisins. Þar fjallar höfundurinn,
Snorri Baldursson líffræðingur, meðal annars um mismunandi búsvæði lífvera
hér á landi: þurrlendið, votlendi, ferskvatn, strendur og sjó; einkenni þessara
svæða, breytingar í tímans rás, áhrif búsetu og nýtingar og framtíðarhorfur í ljósi
hnattrænnar þróunar. Snorri vann lengi að þessu tímamótaverki en þar dregur
hann saman geysilega fjölbreyttan fróðleik um vistkerfi Íslands, bæði til lands
og sjávar, og gerir grein fyrir öllum helstu rannsóknum á þessu sviði undanfarna
áratugi í aðgengilegum texta sem studdur er glöggum skýringarmyndum. Að
auki prýðir bókina fjöldi glæsilegra ljósmynda.“
Það er ánægjulegt fyrir ritdómara að fá að skrifa um svona verk. Bókin er
upplýsandi og fræðandi fyrir alla, náttúrufræðinga sem aðra. Frásagnir af
niðurstöðum nýlegra rannsókna og aðgengilegar samantektir gera bókina
sérlega eigulega og gefa henni aukið gildi. Bókin er vel uppbyggð, vel skrifuð og
prýdd fallegum og fagmannlega unnum ljósmyndum. Í eftirmála kemur fram að
sjö góðir og gegnir líf- og vistfræðingar hafi lesið handritið yfir, og jarðfræðingur
að auki. Fagleg þekking höfundar og aðstoð alls þessa fólks eiga mikinn þátt í
gæðum bókarinnar. Það er ómetanlegt fyrir almenning, kennara og nemendur
á öllum skólastigum að hafa aðgang að öllu þessu efni í einni bók, og ekki síður
fyrir ýmsa sérfræðinga, svo sem þá sem vinna að umhverfismati.
Í formála kemur fram að uppruna-
lega ætlaði höfundur að skrifa bók
um vistfræði Íslands og fjalla þar um
tengsl á milli lífvera í samfélögum
og um orkuflæði í vistkerfum.
Áherslurnar breyttust þó fljótlega því
að höfundur sá að upplýsingar um
lífverurnar og tengsl þeirra voru of
takmarkaðar til að hægt væri að
lýsa vistkerfum Íslands ýtarlega.
Bókin fékk því heitið Lífríki Íslands
með undirtitlinum Vistkerfi lands og
sjávar. Þekking á samfélögum sumra
búsvæða er nokkuð góð, svo sem
fjörunnar, og nokkur vistkerfi hafa
verið mikið rannsökuð, sérstaklega
vistkerfi Þingvallavatns, Mývatns og
Laxár í Aðaldal. Alltof algengt er þó
að niðurstöður rannsókna hafi ekki
verið teknar saman. Þekkingin er
því brotakennd og ekki aðgengileg
fyrir skólafólk eða almenning. Snorri
bendir á að áhrif eldgosa eru mikil
á lífríki landsins, og ekki síður áhrif
mannsins í ellefu aldir. Hann hvetur
lesendur einnig til að gleyma því
ekki að saga lífríkis Íslands er stutt á
þróunarfræðilegan skala.
Uppbygging ritsins er góð en
ekki alveg gallalaus (sjá síðar). Ég er
sérlega hrifin af því að hefja bókina á
umfjöllun um aðlögun lífvera, því ég
er sammála Theodosius Dobzhansky
(1900–1975), einum þekktasta erfða-
og þróunarlíffræðingi síðustu aldar,
sem sagði að ekkert í líffræði hefði
merkingu nema í ljósi þróunar.1 Það
er líka kostur við bókina að höfundur
segir frá nýlegum rannsóknum í
sérstökum köflum (rammagreinum)
sem vekja örugglega athygli. Þar hefur
hann víða leitað fanga og er ánægjulegt
að sjá hversu ólík viðfangsefnin eru.
Oft er vitnað í frumheimildir en ekki
þó alltaf sem er viss galli. Málfar er
mjög gott. Gagnrýna má að á stöku
stað koma fyrir óskýrð sérkennileg orð
(t.d. vetrarblot, gropinn) eða of fræðileg
hugtök (klasagreining, málmhúðuð
fjölliða). Notkun hugtaka kom mér
eðlilega fyrir sjónir nema á einum
Landið er fagurt
og frítt ...
Um Lífríki Íslands
Vistkerfi lands og sjávara