Morgunblaðið - 15.09.2016, Blaðsíða 79
Tengdasonur þeirra, Valbjörn,
teiknaði og hannaði húsin og fyrir-
tækið hans smíðaði þau. Árið 2014
fluttu þau í Einarsstaði og búa nú í
Hlíðarholti í landi Einarsstaða:
„Fyrirtækið hefur gengið vel og allir
viðskiptavinir okkar eru mjög
ánægðir. Við höfum unnið hörðum
höndum að þessu og höfum fengið
viðurkenningu frá Ferðaþjónustu
bænda fyrir einstaka frammistöðu
sem byggðist á umsögnum gesta og
þeim gæðum sem staðurinn stendur
fyrir. Við höfum einnig fengið viður-
kenningar frá booking.com og um-
fjöllum í blöðum víða. Leiðsögu-
námið nýtist mér vel í þessu starfi.
Ég hef unun af að ganga á fjöll og
ferðast, bókalestri og að vera með
fjölskyldunni. Eins er ég gefin fyrir
handverk, er mikill föndrari og nýt
þess að hanna og endurnýta hluti.“
Fjölskylda
Guðfinna giftist 1976 Eini Viðari
Björnssyni, f. 2.9. 1956, ferðaþjón-
ustubónda. Foreldrar hans: Björn
Jónsson, f. 12.4. 1928, d. 20.3. 1997,
frá Einarsstöðum í Reykjadal, og
Sigríður Inga, f. 5.12 1934, frá Greni-
vík í Höfðahverfi.
Börn Guðfinnu og Einis Viðars
eru Björn Friðrik, f. 18.11. 1977,
rekstrarstjóri hjá Garðlist í Reykja-
vík, kvæntur Guðrúnu Bergsdóttur;
Sverrir Kristinn, f. 4.5. 1979, þyrlu-
flugmaður á Spáni, kvæntur Eriku
Angelu Brynjarsdóttur; Katrín El-
ísa, f. 26.3. 1982, leikskólakennari á
Akureyri, gift Valbirni Ægi Vil-
hjálmssyni, og Sigríður Inga, f.
19.12. 1989, hárgreiðslusveinn í Mos-
fellsbæ, en maður hennar er Magn-
ús Breiðfjörð Guðmundsson.
Barnabörnin eru nú 18 talsins.
Systkini Guðfinnu eru Guðrún Vil-
borg Sverrisdóttir, f. 15.7. 1955,
launafulltrúi í Garðabæ; Hjördís
Sverrisdóttir, f. 6.6. 1961, nuddari, á
Einarsstöðum í Reykjadal; Olga
Marta Einarsdóttir, f. 23.11. 1969,
bóndi á Einarsstöðum, og Sverrir
Örvar Sverrisson, f. 27.7. 1979,
skipulagsfræðingur í Hafnarfirði.
Foreldrar Guðfinnu: Sverrir
Kristjánsson, f. 7.1. 1931, d. 9.2.
1993, verkstjóri í Reykjavík, og Erla
Ingileif Björnsdóttir, f. 20.12. 1937,
fyrrv. húsfreyja á Einarsstöðum, bú-
sett á Húsavík.
Ekkja Sverris er Margrét
Magnúsdóttir, f. 5.11. 1942, hús-
freyja í Reykjavík, en eiginmaður
Erlu Ingileifar var Einar Jónsson, f.
5.8. 1905, d. 24.2. 1987, læknamiðill
frá Einarsstöðum í Reykjadal.
Úr frændgarði Guðfinnu Sverrisdóttur
Guðfinna
Sverrisdóttir
Guðrún Eymundsdóttir
húsfr. í Rvík, bróðurdóttir Sigfúsar
Eymundssonar bóksala
Halldór Sigurðsson
úrsmiður í Rvík
Björn Magnús Halldórsson
leturgrafari og gullsmiður í Rvík
Guðfinna Guðmundsdóttir
húsfr. í Rvík
Erla Ingileif Björnsdóttir
húsfr. á Einarsstöðum,
nú á Húsavík
Guðmundur Jónsson
verkstj. í Rvík
Sigurmundur Guðjónsson
sandgræðslum. á Suðurlandi
Guðmundur Ragnar Guðmundsson
slökkviliðsstjóri í Rvík
Sigfús Halldórsson
tónskáld og listmálari
Nanna Halldórsdóttir
húsfr. í Rvík
Daði Runólfsson
fyrrv. verslunarm.
í Mosfellsbæ
Ágúst M.
Sigurðsson
prestur á
Prestbakka og
rithöfundur
Ríkharður Daðason
fyrrv. atvinnu- og
landsliðsm. og þjálfari
í knattspyrnu
María
Ágústsdóttir
héraðsprestur
í Reykjavíkur-
prófastsdæmi
Ívar Guðmundsson
aðalræðism. Íslands í New York
Guðjón Halldórsson
aðstoðarforstj. Fiskisjóðs Íslands
Ingileif Malmberg
húsfr. í Rvík
Svend Aage Malmberg
haffræðingur við Hafró
Karen
Guðjónsdóttir
húsfr. á Hjalteyri
Jón Ingi Sigurmundsson
listamaður og tónlistarmaður á Selfossi
Valdimar Axelsson
fyrrv. húsvörður í
Keflavík
Elísabet Geirmundsdóttir
listakona
Karen
Valdimarsdóttir
kennari í Keflavík
Valdimar
Guðmundsson
söngvari og
tónlistarmaður
Guðjón Jónsson
b. og sjóm. á Skúmsstöðum
Guðrún Vigfúsdóttir
húsfr. á Skúmsstöðum
á Eyrarbakka
Vilborg Guðjónsdóttir
húsfr. á Akureyri
Kristján Friðrik Helgason
verkam. á Akureyri
Sverrir Kristjánsson
verkstjóri í Rvík Helgi Jónsson
múrari á Akureyri
Albína Helgadóttir
húsfr. á Akureyri
Halldóra Helgadóttir
húsfr. á Akureyri
Sesselja Stefánsdóttir
húsfr. í Rvík
Sigurður
Stefánsson
vígslubiskup
á Möðru-
völlum
ÍSLENDINGAR 79
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2016
95 ára
Hans O. Nielsen
Kristín Jónasdóttir
90 ára
Jakobína E. Björnsdóttir
85 ára
Ágúst Kristjánsson
Ágúst Sigurðsson
80 ára
Finnur Valdimarsson
Héðinn Jónsson
Margrét Óskarsdóttir
75 ára
Dóra Magnúsdóttir
Guðni Magnús Sigurðsson
Hanna Rúna Jóhannsdóttir
Haraldur Sveinsson
Jónína Margrét Ólafsdóttir
Kristbjörg Sigurðardóttir
Sigurborg Skjaldberg
Sigurður Jónsson
Sigurður Sigmundsson
Vésteinn Arngrímsson
Vigdís Gústafsdóttir
70 ára
Erlingur Þorsteinsson
Finnbogi G. Kristjánsson
Guðrún Arnardóttir
Hjörtur Hansson
Jón Jónsson
Stefán Sveinbjörnsson
60 ára
Anna Guðrún Björnsdóttir
Guðfinna Sverrisdóttir
Guðný Erla Sigurðardóttir
Hálfdan Örlygsson
Ingibjörg Jónmundsdóttir
Jóna Ólafsdóttir
Jón Ólafur Skarphéðinsson
Kristján H. Kristjánsson
Lilja Ármannsdóttir
Loftur Þór Pétursson
Ragnheiður Gunnarsdóttir
50 ára
Anna Björg Stefánsdóttir
Anna Gunnarsdóttir
Ágúst Héðinsson
Ása S. Jóhannesdóttir
Einar Sverrir Sandoz
Jacek Grybos
Karl Baldvinsson
Linda B. Guðmundsdóttir
Thomas De Farrier
40 ára
Ásbjörg Una Björnsdóttir
Berglind H.G. Laxdal
Boguslaw Safin
Edda Lúvísa Blöndal
Elisabete D. Chainho da
Costa
Erna Lind Rögnvaldsdóttir
Grachille Apone Baligod
Henný Rut Kristinsdóttir
Ingi Þór Garðarsson
Janusz Glowacki
Joana Brazaitiené
Jón Óskar Magnússon
Krzysztof Piotr Zapolski
Marianna Anetta Sidor
Róbert Arnar Reynisson
Signý Gunnarsdóttir
Sissel Jaeger
30 ára
Andrea D. Sigurðardóttir
Elísabet Hrönn Fjóludóttir
Freyr Snæbjörnsson
Hafrún Dögg Hilmarsdóttir
Ívar Erlendsson
Ívar Pétur Kjartansson
Jesselou Marie C. Jumapao
Jon Fabius Feldung
Jorge Andres Munoz Pino
Lilja Sigurðardóttir
Natascha Elisabet Fischer
Til hamingju með daginn
30 ára Sigurlaug ólst upp
í Fellabæ, býr í Reykjavík,
lauk MSc-prófi í mann-
auðsstjórnun og er ráð-
gjafi í ráðningum hjá
Capacent.
Sonur: Hafsteinn Darri, f.
2015.
Foreldrar: Ingibjörg Sig-
urðardóttir, f. 1954, fyrrv.
bankastarfsmaður, búsett
í Reykjavík, og Jón Ingi
Arngrímsson, f. 1955, tón-
listarskólastjóri á Brúar-
ási í Jökuldal, í Fellabæ.
Sigurlaug
Jónsdóttir
30 ára Páll ólst upp í
Reykjavík, býr í Beijing í
Kína, lauk BA-prófi í kín-
versku og austurlenskum
fræðum frá Beijing-
háskóla.
Maki: Tiphaine Shah,
starfsmaður við breska
sendiráðið í Beijing.
Foreldrar: Katla Leós-
dóttir, f. 1948, gjaldkeri
hjá RARIK, og Sigurjón
Pálsson, f. 1950, sjálf-
stætt starfandi hönnuður
og rithöfundur.
Páll Þór
Sigurjónsson
30 ára Markús ólst upp í
Reykjavík, býr þar, er að
ljúka sveinsprófi í múr-
verki frá Tækniskólanum
og starfar við múrverk.
Bræður: Jón Sveinbjörn,
f. 1990, og Bjarki Snær, f.
1999.
Foreldrar: Ester Svein-
bjarnardóttir, f. 1963,
starfsmaður hjá Aftureld-
ingu, búsett í Reykjavík,
og Óskar Jónsson, f.
1960, d. 1990, vinnuvéla-
stjóri.
Markús
Óskarsson
Torfi K. Stefánsson Hjaltalín hefur
varið doktorsritgerð sína við Guð-
fræði- og trúarbragðafræðideild Há-
skóla Íslands. Ritgerðin ber heitið
„elska Guð og biðja“ – Guð-
ræknibókmenntir á Íslandi á lær-
dómsöld.
Aðalleiðbeinandi Torfa var dr. Ein-
ar Sigurbjörnsson, prófessor em-
eritus, en í doktorsnefnd voru auk
hans Margrét Eggertsdóttir,
rannsóknarprófessor við Stofnun
Árna Magnússonar í íslenskum fræð-
um, og sr. Kristján Valur Ingólfsson
vígslubiskup.
Í ritgerðinni fjallar Torfi um þau
guðræknirit sem gefin voru út hér á
landi á árunum 1570-1800. Með guð-
rækniritum er átt við þær trúarbók-
menntir sem hafa einkum að geyma
bænir, sálma og andleg kvæði auk
postilla, það eru bókmenntir sem
nýttust í heimilisguðrækninni. Tíma-
bilið er kennt við lærdómsöld frekar
en árnýöld til þess að leggja áherslu
á samfelluna í íslenskri trúarhefð
allt frá miðöldum og fram á daga
upplýsingar.
Fjallað er um öll rit sem teljast til
þessarar tegundar trúarbókmennta
og gefin voru út á tímabilinu. Sett
eru fram rök fyrir því að þessar guð-
ræknibókmenntir hafi mótað trúar-
arfleifð Íslend-
inga langt fram á
19. öld og geri
það enn að
ákveðnu marki.
Einnig er sýnt
fram á að þessar
bókmenntir hafi
verið undir sterk-
um áhrifum frá
kaþólskri dulhyggju miðalda.
Þjóðin tók þessum bókmenntum
vel eins og sést á þeim fjölda hand-
rita sem enn er til og einkennast af
sömu guðræknihefð. Það sýnir m.a.
að munur á lærðri menningu og
þjóðlegri var ekki eins mikill á þess-
um árum og haldið hefur verið fram.
Auk þess sýnir þetta að fullyrð-
ingar sumra fræðimanna um fé-
lagslegt taumhald kirkjunnar á þjóð-
inni á þessu tímabili eru hæpnar.
Þessum bókmenntum var ekki
þröngvað upp á almenning heldur
sóttist hann eftir þeim.
Þar sem flest íslensku guðrækni-
ritin eru þýðingar á erlendum ritum,
eða mótast mjög af þeim, hafa er-
lendar rannsóknir verið nýttar. Rit
þetta er þannig samtal við alþjóðleg
fræðasamfélög, einkum í Norður-
Evrópu, og íslensk trúarhefð sett í
samhengi við hina evrópsku.
Torfi K. Stefánsson
Torfi K. Stefánsson Hjaltalín er fæddur árið 1953. Hann lauk kandídatsprófi í
guðfræði frá Háskóla Íslands 1980 og licentiat-prófi í trúfræði frá Háskólanum í
Lundi í Svíþjóð 1987. Hann er sjálfstætt starfandi fræðimaður.
Doktor