Morgunblaðið - 15.09.2016, Blaðsíða 30
30 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2016
BAKSVIÐ
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Krían setur óneitanlega sinn svip á
íslenska sumarið. Hún kemur á vorin
og í ágúst leggur hún af stað í ferða-
lag sem lýkur ekki fyrr en á Suð-
urskautslandinu, hinum megin á
hnettinum, eftir marga mánuði. Þar
hefur hún ekki langt stopp áður en
haldið er norður á
bóginn á nýjan
leik. Svona er líf
kríunnar, ár eftir
ár. Farflug krí-
unnar er talið eitt
af undrum ver-
aldar.
Það er engin
furða að þessi
duglegi fugl sé í
sérstöku uppá-
haldi hjá Íslendingum.
Nú eru flestar kríurnar farnar af
landi brott eftir hagstætt sumar en
einstaka fugl er hér enn. Það eru að-
allega ungar sem brátt munu fylgja
eðlisávísun sinni og halda sömu leið
og foreldrar þeirra. Þeir síðustu
munu kveðja landið í október.
Kríurnar ferðast 30-40 þúsund
kílómetra á ári hverju
„Krían er mikill ferðalangur“ má
lesa í grein eftir Guðmund A. Guð-
mundsson fuglafræðing í ritinu
Blika. Hún færir sig með árstíðum,
heimskautanna á milli, þannig að hjá
henni er sífellt sumar. Hún ferðast
15-20 þúsund kílómetra hvora leið
eða 30-40 þúsund kílómetra á ári
hverju, sem jafngildir vegalengdinni
umhverfis jörðina. Hún er meira og
minna á ferðinni allt árið og er
lengsta samfellda stopp hennar lík-
lega á varpstöðvunum á norðurhveli
jarðar, en þar dvelur hún í 3-4 mán-
uði. Á ferðum sínum nýtur hún þess,
fram yfir flesta aðra farfugla, að vera
aðlöguð að lífi á sjó og getur lent
hvar sem er til að hvílast og nærast.
Vitað er um íslenska kríu sem náði
því að verða 21 árs gömul. „Ef við
gerum ráð fyrir að hún hafi flogið
heimskautanna á milli ár hvert alla
ævi, þá jafngildir það flugi til tungls-
ins, heim aftur og gott betur,“ segir
Guðmundur í greininni.
Ferðir kríunnar suður á bóginn
hafa verið raktar með merkingum
og radarmælingum. Guðmundur
hefur sjálfur verið þátttakandi í
rannsóknarferðum til Suðurskauts-
landsins.
Í Suður-Afríku í desember
Í september og október eru ís-
lenskar kríur við norðurströnd Gí-
neuflóa, allt frá Síerra Leóne í vestri
til Nígeríu í austri. Í nóvember eru
þær komnar nokkuð sunnar og
halda sig við strendur Nígeríu, Ka-
merún og Angóla. Í desember hafa
þær náð til Suður-Afríku. Mestur
hluti þeirra fer svo a.m.k. 3.000 kíló-
metra lengra suður, eða allt til Suð-
urskautslandsins.
Það er sumar í Suðurhöfum þeg-
ar krían dvelur þar. Hún heldur sig
við ísröndina þar sem framboð fæðu
(einkum ljósátu) er mikið og fellir
þar flugfjaðrir. Óljóst er hvernig
kríurnar haga ferðum sínum á
þessu svæði. Ein tilgátan er sú að
kríurnar fljúgi einfaldlega hringinn
umhverfis Suðurskautslandið til að
hefja brottförina norður á bóginn á
réttum stað. Það gerist í febrúar/
mars.
Krían hlýtur að þurfa mikla orku í
þetta mikla ferðalag. Hvað gerir
hún? Þeirri spurningu svaraði Guð-
mundur í viðtali við Elínu Pálma-
dóttur í Morgunblaðinu 1996:
„Hún byggir upp forða áður en
hún leggur af stað, en ekki nægan til
að komast á honum alla leið. Það líð-
ur hálfur annar mánuður frá því hún
fer sunnan að og þar til hún kemur
hingað til Íslands. Hún fer tiltölu-
lega hægt yfir. Flýgur að meðaltali
um 300 km á dag, sem jafngildir 6-7
tíma flugi. Hún er ekkert að flýta
sér, er þá að veiða, stingur sér eftir
smáfiski og etur krabbadýr. En á
vetrarstöðvunum við Suðurskauts-
landið er ljósáta aðalfæða kríunnar.“
Krían er vel löguð til ferðalaga.
Hún er léttbyggð með langa vængi,
vegur 100 grömm en getur þyngst
talsvert á fartíma. Eðlilegur flug-
hraði kríunnar er 45 kílómetrar á
klukkustund, en hún getur aukið
hraðann ef á móti blæs.
Krían flýgur oft við krefjandi að-
stæður á suðurhveli jarðar. Á haf-
svæðum umhverfis Suðurskauts-
landið ríkir illræmt vestanvinda-
rokbelti sem sjófarendur hafa m.a.
komist í kast við undan suðurodda
Suður-Ameríku. Stöðugur straumur
af djúpum lægðum er á ferð í kring-
um heimskautið þar sem ekkert land
er til að rjúfa þær.
Litlar upplýsingar eru til um ís-
lensku kríurnar á leið norður eftir,
en líklegt er að þær fylgi austan-
verðu Atlantshafi annars vegar og
fljúgi með ströndum Suður-Ameríku
hins vegar. Komi þannig inn á
Evrópuleiðina, segir Guðmundur A.
Guðmundsson.
Fljúga heimskautanna á milli
Eftir gott sumar hafa kríurnar kvatt Ísland Þær eru lagðar af stað í ferðalag sem lýkur á Suður-
skautslandinu Langlífar kríur fljúga vegalengd sem jafngildir ferð til tunglsins og heim aftur
Morgunblaðið/Jóhann Óli
Kría í vetrarbúningi Myndina tók Jóhann Óli Hilmarsson á hafinu milli
Falklandseyja og Suður-Georgíu í nóvember sl. Gæti verið íslensk.
Ferðir kríunnar Hér má sjá líklegustu leiðir milli varpstöðva og vetrar-
stöðva eins og best verður ráðið af endurheimtum fugla merktra á Íslandi.
Teikning/Guðmundur Ó. Ingvarsson/Morgunblaðið
Guðmundur A.
Guðmundsson
Kría er fugl af ætt
þerna. Flestar koma
kríurnar hingað til
lands fyrstu dagana í
maí. Í fyrstu hefur
hún nokkurra daga
viðdvöl í fjörunni og
við ströndina til að
næra sig og heldur
svo á varpstöðvarnar
sem eru í nánd við sjó
því hún aflar fæðu úr
sjó, en eitthvað líka
við stærri stöðuvötn. Sandsíli er hennar aðalfæða og hún nýtir sér líka
loðnuseiði og fleira. Krían verpir 2-3 eggjum og kemur upp 1-2 ungum,
stundum engum. Að því eru áraskipti, stundum er mikið fall á ungum.
Þegar illa árar komast stundum nær engir ungar á legg. Hæsti aldur á krí-
um sem hafa endurheimst á Íslandi er nærri þrítugu, en meðalfuglinn
verður áreiðanlega ekki svo gamall, segir Guðmundur.
Geta orðið 30 ára gamlar
KRÍAN ER LÍFSEIGUR FUGL