Morgunblaðið - 15.09.2016, Blaðsíða 41
FRÉTTIR 41Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2016
Sjálfsagt fara fáir jafn oft vegina
um suðurfirðina vestra og mjólk-
urbílstjórinn. Sá er Gísli Á. Gíslason
í Efri-Rauðsdal á Barðaströnd sem
jafnhliða akstri er með búskap og
starfrækir ferðaþjónustu. Gísli
sækir mjólk frá bæjum á Barða-
strönd og Rauðasandi og flytur
tvisvar í viku í Búðardal.
„Úr Vatnsfirði í Búðardal eru
rétt um 180 kílómetrar. Af hæstu
hálsum er gott útsýni og oft sjást
hafernir hnita hringi yfir fjörð-
unum. Já, vegagerðin í Mjóafirði og
Kjálkafirði breytti miklu. Styttir
leiðina og sparar um 20 mínútur
akstri,“ segir Gísli. „En það verður
svo ekkert hjá því komst að leggja
veg um Teigsskóg og þvera firði.
En á meðan er gott að vera á öfl-
ugum tækjum. Mjólkurbíllinn sem
er fjórtán tonna bíll er hálfgerður
hertrukkur.“
Ernir og útsýni
Mjólkurbíll er
hertrukkur
Reynslubolti Gísli er á stórum Man.
„Hugurinn var í sveitinni og þetta
var ódýrasta jörðin sem bauðst. Því
lá leiðin hingað en viðbrigðin að
koma hingað af Suðurlandi voru
talsverð. Þjónustan sem fólk fær er
ekki söm og annars staðar á land-
inu og því verður að bæta úr. Mér
þykja samt forréttindi að búa hér
með börnunum mínum,“ segir Erna
Ósk Guðnadóttir, bóndi í Gufudal í
Gufudalssveit.
Gufudalur er við Gufufjörð –
nokkuð innarlega á strandlengju
sunnanverðra Vestfjarða. Þangað
fluttu Erna og þáverandi maður ár-
ið 2012. Þá hafði jörðin verið í eyði í
nokkurn tíma og nýir bændur
höfðu því í mörg horn að líta. „Eftir
búskap í nokkur misseri skildu ég
og maðurinn minn og þá þurfti ég
náttúrlega að finna mér nýjan karl
og það tókst,“ segir Erna sem er í
sambúð með Björgvini Matthíasi
Hallgrímssyni. Saman eiga þau
þriggja vikna gamla dóttur. Fyrir á
Erna fjögur börn og þrjú þeirra eru
enn heima.
Nú í sumar birti til í Gufudals-
sveit sem þá komst í sæmilegt net-
samband, þar sem hraðrásum fjar-
skiptanna er speglað frá
Reykhólum og þaðan fram og til
baka um loftið. „Til skamms tíma
höfðum við mjög slitrótt netsam-
band en nú með ágætt 4G samband
og það leysir úr flestu,“ segir Erna í
Gufudal.
500 fjár og fjöldi barna
Gervi-
hnöttur í
Gufudal
Móðir Erna með börnin. Íbúðarhús
með gervihnattadiska að baki.
„Maður fer ekkert af stað ef veðurspáin er ekki góð, enda er yf-
ir fjallvegi að fara,“ segir Þráinn Hjálmarsson, skólabílstjóri í
Reykhólasveit. Hann býr á bænum Hríshóli sem er því sem
næst í miðri sveit og nærri afleggjaranum fram að Reykhólum,
þar sem grunnskóli byggðarinnar er. Þráinn sér um akstur í
vesturhluta sveitarinnar, það er vestur í Gufufjörð, en Vilberg
sonur hans bílstjóri ekur börnunum í austursveitinni, það er út
að Gilsfirði.
„Já, þetta er talsverður spotti að fara. Vestur í Gufudal eru
um það bil 50 kílómetrar frá Reykhólum og oft tekur aksturinn
hvora leið 45 mínútur, það eru 100 km á dag og einn og hálfur
tími. Vissulega geta krakkarnir orðið þreyttir á þessu flandri
enda er þetta löng leið. Það er mesta furða hve vel þeim líkar
þetta,“ segir Þráinn, sem fer á þrjá bæi þar sem eru alls sjö
krakkar. Tvö leikskólabörn bætast svo við eftir áramótin ef allt
gengur eftir.
Löng leið með skólabíl að Reykhólum
Þrír bæir og sjö börn
Skólabílstjóri Þráinn og nokkrir þeirra krakka sem hann keyrir úr og í skóla dag hvern.
Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • friform.is
VIÐ HÖNNUMOG TEIKNUM FYRIR ÞIG
Komdumeð eða sendu okkur málin af eldhúsinu, baðinu,
þvottahúsinu, anddyrinu eða svefnherberginu - og við hönnum,
teiknum og gerum þér hagstætt tilboð í glæsilega danska innréttingu
í hæsta gæðaflokki og vönduð raftæki á vægu verði.
ÞITT ER VALIÐ
Þú velur að kaupa innréttinguna í ósamsettum einingum,
eða lætur okkur um samsetninguna. Að sjálfsögðu
önnumst við líka uppsetningu og endanlegan frágang fyrir
þá sem þess óska – fullkomin þjónusta, eigið verkstæði.
KR
EA
TI
V
FJÖLBREYTTÚRVALAFHURÐUM,FRAMHLIÐUM,
KLÆÐNINGUMOGEININGUM
ELDHÚSINNRÉTTINGAR
STYRKUR - ENDING - GÆÐI
HÁGÆÐADANSKAR
Opið:
Mán. til föstudaga kl. 09 til 18
Laugardaga kl. 11 til 15