Morgunblaðið - 15.09.2016, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 15.09.2016, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2016 OPNUM AUGUOKKAR FYRIR MENNINGARLANDSLAGINU Morgunverðarfundur á vegum Samtaka ferðaþjónustunnar og samtaka og fyrirtækja í landbúnaði Fundarstaður: Fundartími: Samspil atvinnuvega við þróun sveitamenningar og sjálfbærrar ferðaþjónustu „Hugtakið menningarlandslag er áberandi í norrænni og evrópskri umræðu þegar rætt er um þau spor sem maðurinn skilur eftir sig í landinu og í hugum þeirra sem um landið fara. Með því að lesa í menningarlandslagið er unnt að vísa veginn til framtíðar af trúmennsku við það sem er sígilt og sjálfbært.“ Sigurlaug Gissurardóttir Ragnheiður Elín Árnadóttir Svavar Halldórsson Helga Árnadóttir Hjalti Jóhannesson Katrina Rönningen Ávarp: Sauðfjárrækt og ferðaþjónusta Hjalti Jóhannesson, aðstoðarforstöðumaður Rannsóknamiðstöðvar Háskólans á Akureyri Ferðaþjónustubóndinn og sveitamenningin Sigurlaug Gissurardóttir, stjórnarformaður Félags ferðaþjónustubænda Sýn Norðmanna á þýðingu menningarlandslags Katrina Rönningen, rannsóknarprófessor við Háskólann í Þrándheimi Lokaorð: Fundarstjóri: Dagskrá Ragnheiður Elín Árnadóttir, ráðherra ferðamála Svavar Halldórsson, framkvæmdastjóri Samtaka sauðfjárbænda Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar Hvammur, Grand Hótel Reykjavík Föstudag 16. september nk. kl. 08:30 – 10:30 Erindi: Guðni Einarsson gudni@mbl.is Þess verður minnst í dag og næstu daga að á morgun, 16. september, eru 80 ár liðin frá því að franska rannsóknaskipið Pour- quoi-Pas? fórst í aftakaveðri í Straumfirði við Mýrar í Borgar- firði árið 1936. Með skipinu fórust 40 manns, þeirra á meðal dr. Jean-Baptiste Charcot, læknir og leiðangursstjóri. Einn skipverj- anna, Eugène Gonidec, komst af með miklu harðfylgi og gat lýst því sem gerðist síðustu stundirnar í þessari örlagaför. Jean-Baptiste Charcot stjórn- aði tveimur vísindaleiðöngrum til suðurheimskautsins í upphafi síð- ustu aldar. Á millistríðsárunum stjórnaði hann fjölmörgum slíkum leiðöngrum á norðurslóðir og er hann nú talinn á meðal þeirra sem lögðu grunninn að heimskauta- rannsóknum nútímans. Líklega síðasta myndin Helgi Hafliðason, síðar fisksali í Fiskbúð Hafliða við Hverfisgötu, tók líklega síðustu myndina af Po- urquoi-Pas? þegar skipið sigldi úr Reykjavíkurhöfn. Helgi var þá að- eins 14 ára gamall og áhugasamur um ljósmyndun. Hann tók mynd- ina á litla myndavél af svölunum á Hverfisgötu 123 þar sem hann átti heima. Í bókinni Jean-Baptiste Char- cot eftir Serge Kahn, sem kom út í íslenskri þýðingu, er mynd af Po- urquoi-Pas?, sem talin var vera síðasta myndin af skipinu. Hún var tekin 15. september 1936. Þar sést mikill reykur úr skorstein- inum og engin segl uppi. Á mynd Helga sést að verið er að heisa upp segl á skipinu á ytri höfninni og skipið því komið vel út úr höfn- inni. Í forgrunni má sjá glitta í Rauð- ará og veginn sem lá að bænum Rauðará sem Rauðarárstígur er kenndur við. Lengst til vinstri er tankur sem líklega tilheyrði Gas- stöðinni sem stóð nálægt þar sem lögreglustöðin er nú. Júlíus Helgason, sonur Helga Hafliðasonar, sagði að faðir hans hefði oft talað um að hann hefði tekið mynd af Pourquoi-Pas? þeg- ar skipið fór í sína hinstu för. Hún var lengi týnd en kom nýlega í leitirnar. Júlíus var svo vinsam- legur að leyfa Morgunblaðinu að birta þessa sögulegu mynd í til- efni þess að 80 ár eru liðin frá sjó- slysinu mikla. Síðasta myndin af Pourquoi-Pas?  Þess er minnst nú að 80 ár eru liðin frá sjóslysinu mikla við Mýrar í Borgarfirði þar sem franska rannsóknaskipið Pourquoi-Pas? og 40 manna áhöfn fórst  Aðeins einn skipverji komst af úr slysinu Ljósmynd/Helgi Hafliðason Lagt úr höfn í hinsta sinn Pourquoi-pas? á leið úr Reykjavíkurhöfn hinn 15. september 1936. Líklega er þetta síðasta myndin sem tekin var af skipinu. Franska sendiráðið, Háskóli Íslands og Vináttufélag Charcots og Pour- quoi-Pas? standa að ýmsum við- burðum dagana 15., 16. og 17. sept- ember til að minnast þess að á morgun, 16. september, eru liðin 80 ár frá því að franska rann- sóknaskipið Pourquoi-Pas? fórst í aftakaveðri undan Mýrum í Borg- arfirði 1936. Dr. Jean-Baptiste Charcot og áhöfn hans komu oft hingað til lands og eignuðust þeir hér marga vini. Slysið snerti því marga Íslend- inga afskaplega sterkt eins og frétt- ir af því bera með sér. Sjóslysið mikla á Mýrum hefur lifað í vitund þjóðarinnar allt fram á þennan dag. Afkomendur Charcots ætla að fjölmenna hingað af þessu tilefni og taka þátt í minningardagskránni. Dagskráin hefst í Straumfirði Athöfn verður í dag kl. 10.00 í Straumfirði á Mýrum þar sem lík skipverja og brak úr Pourquoi-Pas? rak á land. Flutt verða stutt ávörp við minnisvarðann og lagðir blóm- sveigir að honum. Frú Vallin- Charcot, dótturdóttir Charcots leið- angursstjóra, segir nokkur orð og að því loknu verður 40 rósum varp- að í hafið. Eftir hádegið verður móttaka í minjasafni Borgarbyggðar þar sem er Charcot-sýning. Í kvöld verður ný heimildarmynd um Charcot for- sýnd í húsakynnum Alliance fran- çaise í Tryggvagötu 8 í Reykjavík kl. 20.00. Myndin er á frönsku og ekki textuð. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Í fyrramálið kl. 10.00 verður minningarmessa í Landakotskirkju og kl. 11.00 verður athöfn í Foss- vogskirkjugarði þar sem eru grafir fáeinna skipverja af skipinu. Athöfn verður síðan í Charcot-safninu í Fræðasetrinu í Sandgerði kl. 15.30. Þar mun frú Vallin-Charcot afhenda muni sem tengjast Charcot og leið- öngrum hans. Málþing um Jean-Baptiste Char- cot verður síðan haldið í hátíðarsal Háskóla Íslands á laugardag kl. 14.00. Fjallað verður um heim- skautarannsóknir hans og gildi þeirra í samtímanum. Málshefj- endur eru Jean-Louis Étienne, heimsþekktur læknir, vísindamaður og heimskautakönnuður, Anne- Marie Vallin-Charcot, barnabarn Charcots leiðangursstjóra, Stép- hane Dugast, blaðamaður og höf- undur bókar um Charcot sem kem- ur út á næstunni, Friðrik Rafnsson, þýðandi og verkefnisstjóri og Jör- undur Svavarsson, prófessor í sjáv- arlíffræði og einn hvatamanna að stofnun Charcot-setursins í Sand- gerði. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. 80 ár frá sjóslys- inu við Mýrar  Minningardagskráin hefst í dag Leiðangursstjórinn Dr. Charcot fórst ásamt 39 skipsfélögum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.