Morgunblaðið - 15.09.2016, Side 24
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2016
OPNUM AUGUOKKAR FYRIR
MENNINGARLANDSLAGINU
Morgunverðarfundur á vegum Samtaka ferðaþjónustunnar
og samtaka og fyrirtækja í landbúnaði
Fundarstaður:
Fundartími:
Samspil atvinnuvega við þróun sveitamenningar og sjálfbærrar ferðaþjónustu
„Hugtakið menningarlandslag er áberandi í norrænni og evrópskri umræðu þegar rætt
er um þau spor sem maðurinn skilur eftir sig í landinu og í hugum þeirra sem um landið
fara. Með því að lesa í menningarlandslagið er unnt að vísa veginn til framtíðar af
trúmennsku við það sem er sígilt og sjálfbært.“
Sigurlaug
Gissurardóttir
Ragnheiður
Elín Árnadóttir
Svavar
Halldórsson
Helga
Árnadóttir
Hjalti
Jóhannesson
Katrina
Rönningen
Ávarp:
Sauðfjárrækt og ferðaþjónusta
Hjalti Jóhannesson, aðstoðarforstöðumaður Rannsóknamiðstöðvar
Háskólans á Akureyri
Ferðaþjónustubóndinn og sveitamenningin
Sigurlaug Gissurardóttir, stjórnarformaður Félags ferðaþjónustubænda
Sýn Norðmanna á þýðingu menningarlandslags
Katrina Rönningen, rannsóknarprófessor við Háskólann í Þrándheimi
Lokaorð:
Fundarstjóri:
Dagskrá
Ragnheiður Elín Árnadóttir, ráðherra ferðamála
Svavar Halldórsson, framkvæmdastjóri Samtaka sauðfjárbænda
Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar
Hvammur, Grand Hótel Reykjavík
Föstudag 16. september nk. kl. 08:30 – 10:30
Erindi:
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Þess verður minnst í dag og
næstu daga að á morgun, 16.
september, eru 80 ár liðin frá því
að franska rannsóknaskipið Pour-
quoi-Pas? fórst í aftakaveðri í
Straumfirði við Mýrar í Borgar-
firði árið 1936. Með skipinu fórust
40 manns, þeirra á meðal dr.
Jean-Baptiste Charcot, læknir og
leiðangursstjóri. Einn skipverj-
anna, Eugène Gonidec, komst af
með miklu harðfylgi og gat lýst
því sem gerðist síðustu stundirnar
í þessari örlagaför.
Jean-Baptiste Charcot stjórn-
aði tveimur vísindaleiðöngrum til
suðurheimskautsins í upphafi síð-
ustu aldar. Á millistríðsárunum
stjórnaði hann fjölmörgum slíkum
leiðöngrum á norðurslóðir og er
hann nú talinn á meðal þeirra sem
lögðu grunninn að heimskauta-
rannsóknum nútímans.
Líklega síðasta myndin
Helgi Hafliðason, síðar fisksali í
Fiskbúð Hafliða við Hverfisgötu,
tók líklega síðustu myndina af Po-
urquoi-Pas? þegar skipið sigldi úr
Reykjavíkurhöfn. Helgi var þá að-
eins 14 ára gamall og áhugasamur
um ljósmyndun. Hann tók mynd-
ina á litla myndavél af svölunum á
Hverfisgötu 123 þar sem hann átti
heima.
Í bókinni Jean-Baptiste Char-
cot eftir Serge Kahn, sem kom út í
íslenskri þýðingu, er mynd af Po-
urquoi-Pas?, sem talin var vera
síðasta myndin af skipinu. Hún
var tekin 15. september 1936. Þar
sést mikill reykur úr skorstein-
inum og engin segl uppi. Á mynd
Helga sést að verið er að heisa
upp segl á skipinu á ytri höfninni
og skipið því komið vel út úr höfn-
inni.
Í forgrunni má sjá glitta í Rauð-
ará og veginn sem lá að bænum
Rauðará sem Rauðarárstígur er
kenndur við. Lengst til vinstri er
tankur sem líklega tilheyrði Gas-
stöðinni sem stóð nálægt þar sem
lögreglustöðin er nú.
Júlíus Helgason, sonur Helga
Hafliðasonar, sagði að faðir hans
hefði oft talað um að hann hefði
tekið mynd af Pourquoi-Pas? þeg-
ar skipið fór í sína hinstu för. Hún
var lengi týnd en kom nýlega í
leitirnar. Júlíus var svo vinsam-
legur að leyfa Morgunblaðinu að
birta þessa sögulegu mynd í til-
efni þess að 80 ár eru liðin frá sjó-
slysinu mikla.
Síðasta myndin af Pourquoi-Pas?
Þess er minnst nú að 80 ár eru liðin frá sjóslysinu mikla við Mýrar í Borgarfirði þar sem franska
rannsóknaskipið Pourquoi-Pas? og 40 manna áhöfn fórst Aðeins einn skipverji komst af úr slysinu
Ljósmynd/Helgi Hafliðason
Lagt úr höfn í hinsta sinn Pourquoi-pas? á leið úr Reykjavíkurhöfn hinn 15. september 1936. Líklega er þetta síðasta myndin sem tekin var af skipinu.
Franska sendiráðið, Háskóli Íslands
og Vináttufélag Charcots og Pour-
quoi-Pas? standa að ýmsum við-
burðum dagana 15., 16. og 17. sept-
ember til að minnast þess að á
morgun, 16. september, eru liðin 80
ár frá því að franska rann-
sóknaskipið Pourquoi-Pas? fórst í
aftakaveðri undan Mýrum í Borg-
arfirði 1936.
Dr. Jean-Baptiste Charcot og
áhöfn hans komu oft hingað til
lands og eignuðust þeir hér marga
vini. Slysið snerti því marga Íslend-
inga afskaplega sterkt eins og frétt-
ir af því bera með sér. Sjóslysið
mikla á Mýrum hefur lifað í vitund
þjóðarinnar allt fram á þennan dag.
Afkomendur Charcots ætla að
fjölmenna hingað af þessu tilefni og
taka þátt í minningardagskránni.
Dagskráin hefst í Straumfirði
Athöfn verður í dag kl. 10.00 í
Straumfirði á Mýrum þar sem lík
skipverja og brak úr Pourquoi-Pas?
rak á land. Flutt verða stutt ávörp
við minnisvarðann og lagðir blóm-
sveigir að honum. Frú Vallin-
Charcot, dótturdóttir Charcots leið-
angursstjóra, segir nokkur orð og
að því loknu verður 40 rósum varp-
að í hafið.
Eftir hádegið verður móttaka í
minjasafni Borgarbyggðar þar sem
er Charcot-sýning. Í kvöld verður
ný heimildarmynd um Charcot for-
sýnd í húsakynnum Alliance fran-
çaise í Tryggvagötu 8 í Reykjavík
kl. 20.00. Myndin er á frönsku og
ekki textuð. Aðgangur er ókeypis
og allir velkomnir.
Í fyrramálið kl. 10.00 verður
minningarmessa í Landakotskirkju
og kl. 11.00 verður athöfn í Foss-
vogskirkjugarði þar sem eru grafir
fáeinna skipverja af skipinu. Athöfn
verður síðan í Charcot-safninu í
Fræðasetrinu í Sandgerði kl. 15.30.
Þar mun frú Vallin-Charcot afhenda
muni sem tengjast Charcot og leið-
öngrum hans.
Málþing um Jean-Baptiste Char-
cot verður síðan haldið í hátíðarsal
Háskóla Íslands á laugardag kl.
14.00. Fjallað verður um heim-
skautarannsóknir hans og gildi
þeirra í samtímanum. Málshefj-
endur eru Jean-Louis Étienne,
heimsþekktur læknir, vísindamaður
og heimskautakönnuður, Anne-
Marie Vallin-Charcot, barnabarn
Charcots leiðangursstjóra, Stép-
hane Dugast, blaðamaður og höf-
undur bókar um Charcot sem kem-
ur út á næstunni, Friðrik Rafnsson,
þýðandi og verkefnisstjóri og Jör-
undur Svavarsson, prófessor í sjáv-
arlíffræði og einn hvatamanna að
stofnun Charcot-setursins í Sand-
gerði. Aðgangur er ókeypis og allir
velkomnir.
80 ár frá sjóslys-
inu við Mýrar
Minningardagskráin hefst í dag
Leiðangursstjórinn Dr. Charcot
fórst ásamt 39 skipsfélögum.