Morgunblaðið - 15.09.2016, Blaðsíða 26
26 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2016
BAKSVIÐ
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Nýr viðlegukantur á svonefndri
Bæjarbryggju á Siglufirði verður
tekinn formlega í notkun um næstu
mánaðamót. Framkvæmdir hófust í
byrjun þessa árs og hafa gengið vel
og hratt fyrir sig. Fara þurfti í mikla
jarðvinnu, reka niður 162 stálþils-
plötur og ganga frá festingum.
Einnig byggja upp 60 metra langan
grjótgarð og steypa upp og ganga
frá bryggjupollum á viðlegukant-
inum sem er 227 metra langur.
Nauðsyn vegna nýs togara
„Þetta var mjög þörf framkvæmd,
því gamli viðlegukanturinn var
sundurryðgaður og ónýtur. Þegar
ég kom hingað til starfa í byrjun síð-
asta árs var eitt mitt fyrsta verk að
koma þessu verkefni á rekspöl. Tala
þurfti við fjárveitingavaldið og inn-
anríkis- og fjármálaráðherra höfðu
fullan skilning á málinu og studdu
það. Ef við hefðum ekki sett upp
nýjan viðlegukant hefði það tak-
markað að skip gætu komið til lönd-
unar og annars,“ segir Gunnar I.
Birgisson, bæjarstjóri í Fjallabyggð.
Meðal þess sem gerði þessar
hafnarbætur svo nauðsynlegar eru
breytingar á skipastól Ramma hf.
sem er stærsta sjávarútvegsfyrir-
tækið í Fjallabyggð. Nýr togari
fyrirtækisins, Sólberg ÓF-1, er
væntanlegur til landsins í byrjun
næsta árs og leysir af hólmi frysti-
togarana Mánaberg og Sigurbjörgu.
Hinn nýi togari er 80 metra langur
og 15,4 metrar á breidd – mun
stærri en skipin sem fyrir eru.
Þessu var nauðsynlegt að mæta –
svo að skipið kæmist í höfn. Einnig
skapar kanturinn nauðsynlega að-
stöðu fyrir flutningaskip og önnur
slík stór skip. Fyrir liggur að strax á
næsta ári komi 30 skemmtiferðaskip
til Siglufjarðar og er það afrakstur
markaðsstarfs á undanförnum miss-
erum.
Ísar ehf. úr Kópavogi sá um að
reka stálþilið niður og setja að því
fyllingar. Tilboð fyrirtækisins í
verkið var upp á tæplega 176 millj-
ónir króna. Verktaki við lagnir, veit-
ur og slíkt við höfnina er Sölvi
Sölvason ehf. í Siglufirði.
Galilei dýpkar höfnina
Við þetta svo bætist að dýpka
þarf höfnina og innsiglinguna og um
það sér belgíski verktakinn Jan de
Nul og notar til þess belgíska dælu-
skipið Galilei sem verið hefur verið
við störf í Landeyjahöfn. Þessa dag-
ana er svo verið að byggja dælu- og
ljósahús við nýja viðlegukantinn. Því
næst verða stæði og svæði malbikuð
til bráðabirgða. Þekjan við höfnina
verður svo steypt næsta vor, þegar
fyllingin þar hefur sigið.
Nýi viðlegukanturinn
er að verða tilbúinn
Bæjarbryggjan á Siglufirði endurbætt Fjárveitinga-
valdið sýnir skilning Fjöldi skemmtiferðaskipa
Siglufjörður
» Viðlegukanturinn er 227
metra langur og 162 stálþils-
plötur slegnar niður.
» Verkefni upp á nærri 200
milljónir króna.
» Fragtarar geta lagst að og
30 skemmtiferðaskip eru
væntanleg á næsta ári.
» Sólberg, sem er nýr togari
Rammans, er 80 metra langt.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Hafnarframkvæmdir Gunnar I. Birgisson með nýja viðlegukantinn í baksýn
og úti á firðinum er dæluskipið Galilei. Framkvæmdirnar eru á lokastigi.
STÓRAR
STELPUR
tískuvöruverslun
Hverfisgötu 105
www.storarstelpur.is
Munið bílastæði á bak við hús
Við erum á facebook
Fallegar
haustvörur
SKÚLI MOGENSEN
FORSTJÓRI WOW AIR
„Gæta þarf að því að eyðileggja ekki
ímynd Íslands með skammtímahugsun.
Hægt er að virkja hreina ímynd Íslands
og íslenskrar orku án þess að ganga
frekar á auðlindir landsins. Ein leið til
þess er að hlúa að vörumerkinu Íslandi
og CHARGE er frábær vettvangur til
að hefja umræðuna.”
HÖRÐUR ARNARSON
FORSTJÓRI LANDSVIRKJUNAR
„Fyrirtæki hafa í vaxandi mæli
hagsmuni af því að tengja vörumerki
sín við sjálfbæra nýtingu auðlinda –
tenging við hreina og endurnýjanle-
ga íslenska orku getur styrkt fyrirtæ-
ki í markaðssetningu og gefur
ráðstefnan færi á að kynna sér
tækifæri í þessum efnum.“
UMSAGNIR UM CHARGE, FYRSTU RÁÐSTEFNU
SINNAR TEGUNDAR Í HEIMINUM:
HARPA, 19. – 20. SEPTEMBER
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Á stjórnarfundi Sorpu, sem haldinn
var í júlí síðastliðnum, var kynnt
minnisblað Mannvits um niðurstöðu
samkeppnisviðræðna um tækni-
lausn vegna gas- og jarðgerðar-
stöðvar sem reisa á í Álfsnesi. Tvö
tilboð bárust í verkið og var sam-
þykkt að taka hagstæðara tilboðinu
er kom frá danska félaginu Aikan.
„Gangi allt eftir er gert ráð fyrir
að hægt verði að hefja byggingu á
haustdögum 2017,“ segir Björn H.
Halldórsson, framkvæmdastjóri
Sorpu, og bætir við að um ári síðar,
þ.e. á haustdögum 2018, verði von-
andi hægt að taka stöðina í notkun.
2,7 milljarða kr. framkvæmd
„Þetta er í sjálfu sér ekki mjög
flókin framkvæmd og ætti því ekki
að taka langan tíma. Í raun má
segja að við séum byrjuð á verkinu
nú þegar, en í fyrra var farið í jarð-
vinnuframkvæmdir og er því búið
að undirbúa bygginguna að ein-
hverju leyti,“ segir Björn.
Aðspurður segir hann heild-
arvirði framkvæmdar við gerð gas-
og jarðgerðarstöðvarinnar í Álfs-
nesi vera um 2,7 milljarða króna, en
stöðin á að þjóna öllu höfuðborg-
arsvæðinu. „Þessu fylgir vissulega
kostnaður en ávinningurinn er hins
vegar mikill með bættu umhverfi,“
segir Björn.
Áður hefur verið greint frá því að
íbúar í Leirvogstungu í Mosfellsbæ
séu orðnir langþreyttir á sorplykt
sem leggst yfir hverfið við ákveðin
veðurskilyrði frá urðunarstað Sorpu
í Álfsnesi. Björn segir breytt verk-
lag hafa átt sinn þátt í að minnka
lykt í sumar, en gas- og jarðgerðar-
stöðinni sé ætlað að vinna á lyktinni
til framtíðar.
Framkvæmdir
hefjast að ári
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ruslahaugur Gas- og jarðgerðarstöð verður byggð á Álfsnesi og segir
framkvæmdastjóri Sorpu nú stefnt að framkvæmdum á næsta ári.
Sorpa gekk til samninga við Aikan
Almenna bókafélagið hefur endurútgefið bók
Jóns Steinars Gunnlaugssonar, Deilt á dómarana,
sem kom fyrst út árið 1987 og hefur verið ófáan-
leg lengi.
Fram kemur í tilkynningu frá útgáfufélaginu
Bókafélaginu að í bókinni segi Jón Steinar frá sex
hæstaréttardómum þar sem reyni á nokkur
mannréttindaákvæði stjórnarskrárinnar.
Bókin færst í bókaverslunum Eymundsson.
Deilt á dómarana gefin út á ný