Morgunblaðið - 15.09.2016, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 15.09.2016, Blaðsíða 37
FRÉTTIR 37Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 2016 Rannsóknir á innri hluta Landeyja- hafnar standa nú yfir í líkanhúsi Vegagerðarinnar í Kópavogi. Herj- ólfur hreyfist heldur mikið á stund- um þegar hann liggur við bryggju og leitað er leiða til að draga úr öldu- hreyfingum inni í höfninni, segir á heimasíðu Vegagerðarinnar. Skip- stjórar Herjólfs skoðuðu líkanið og rannsóknina á þriðjudag til að gefa álit sitt á hugsanlegum breytingum og hvað mætti rannsaka betur. Með líkaninu er líkt eftir aðstæð- um í höfninni svo sem kostur er og smíðað hefur verið líkan af nýjum Herjólfi sem notað er til viðmiðunar. Vél útbýr öldur í óskaðri stærð og með þeirri öldutíðni sem rannsökuð er hverju sinni. Skoðaðar hafa verið breytingar á höfninni varðandi að lengja innri hafnargarð og setja á báða enda hans svokallaða tunnu, skoðaðar hafa verið breytingar sem skapast við að bryggjan verði lokuð þannig að aldan fari ekki inn undir hanna og einnig að stækka innri höfnina til austurs en það myndi draga úr öldugangi innan hafnar. Fyrstu niðurstöður benda til þess að þessar breytingar myndu hafa þó- nokkuð mikil áhrif á öldufar innan hafnar til hins betra. Eftir yfirferð með skipstjórum Herjólfs verða nú einnig rannsakaðar tilfærslur á eystri hafnargarði innan hafnar til að finna út bestu mögulegu útkomu þannig að þrengja þurfi innri hafn- arkjaftinn sem minnst, þannig að svigrúm verði sem mest hverju sinni. Leita leiða til að minnka ölduhreyfingar við bryggju Ljósmynd/Vegagerðin Landeyjahöfn Skipstjórar Herjólfs og sérfræðingar Vegagerðarinnar veltu vöngum yfir hugsanlegum breytingum og leiðum til að draga úr öldugangi. Úthlutað var í gær viðbótaheim- ildum úr tvö þúsund tonna makríl- potti smábáta. 17 bátum var út- hlutað alls 340 tonnum, en 20 tonn eru það hámark sem hver og einn getur fengið. Fyrir hvert kíló voru greiddar 8 krónur. Á heimasíðu Landssambands smábáteigenda kemur fram að í annarri úthlutun, sem verður í næstu viku, verði gjaldið 2,78 krónur eða jafnt veiðigjaldi fyrir makríl. Lækkunin kemur í kjölfar breytinga á lögum, sem Alþingi samþykkti á þriðjudag. Auk lækk- unar á gjaldinu var hámarks- skammtur til hvers og eins hækk- aður í 35 tonn. Fjöldi umsókna að þessu sinni var 21 og voru 17 samþykktar. Öðrum umsóknum var hafnað þar sem skip uppfylltu ekki kröfu um veiðiskyldu, stærðarmörk eða greiðslu. Mikil verðlækkun í næstu makrílút- hlutun smábáta Morgunblaðið/Árni Sæberg Þorsteinn Gunn- arsson hefur ver- ið ráðinn sveitar- stjóri Skútu- staðahrepps. Alls bárust 23 um- sóknir um starf- ið, segir á heima- síðu sveitar- félagsins. Ráðningin ver gerð í samstarfi við Capacent sem hafði umsjón með úrvinnslu umsókna. Þorsteinn er fimmtugur og hefur í tæp 9 ár starfað hjá Grindavík- urbæ, fyrst sem upplýsinga- og þró- unarfulltrúi og svo sem sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs og hefur því víðtæka reynslu innan stjórnsýslunnar, segir á heimasíð- unni. Hann starfaði um árabil í fjöl- miðlum, m.a. á Stöð 2. Hann er með meistarapróf í verk- efnisstjórnun (MPM) og diplóma í opinberri stjórnsýslu og lærði fjöl- miðlafræði í Svíþjóð á sínum tíma. Þorsteinn hefur setið í fjölmörgum nefndum og ráðum, m.a. í stjórn Ferðamálasamtaka Reykjaness og Reykjanes Geopark. Eiginkona hans er Rósa Signý Baldursdóttir grunnskólakennari og eiga þau þrjú börn. Ráðinn sveitarstjóri Skútustaðahrepps Þorsteinn Gunnarsson Nýtt Nicorette Cooldrops munnsogstöflur (inniheldur nikótín) er notað við tóbaksfíkn. Það dregur úr fráhvarfseinkennum og reykingaþörf og auðveldar reykingamönnum að venja sig af reykingum. Skammtar: Börn: Lyfið má einungis nota handa unglingum (12-17 ára) skv. ráðleggingum læknis. Börn yngri en 12 ára mega ekki nota lyfið. Fullorðnir: 2 mg henta reykingafólki sem er lítið háð nikótíni. 4 mg þeim sem ermjög háðir nikótíni. Hámarksdagskammtur er 15 stk. Ekki á að nota lyfið lengur en 9mánuði. Venjulega vegur ávinningur af að hætta að reykja þyngra en áhætta sem fylgir nikótínmeðferð. Setja á 1munnsogstöflu í munninn og láta hana leysast upp. Hvorki má tyggja hana né gleypa. Frábendingar:Ofnæmi fyrir nikótíni eða einhverju hjálparefnanna. Þeir sem hafa aldrei reykt.Varnaðarorð: Reykingafólkmeð nýlegt hjartadrep, óstöðuga eða versnandi hjartaöng (þ.m.t. Prinzmetal), alvarlegar hjartsláttartruflanir, ómeðhöndlaðan háþrýsting, nýlegt heilablóðfall og/eða óstöðugt blóðrásarkerfi skal einungis nota Nicorette undir eftirliti læknis. Gæta skal varúðar við notkun Nicorette hjá einstaklingum sem hafa fengið ofnæmisbjúg eða ofsakláða eða erumeð: háþrýsting, stöðuga hjartaöng, hjartabilun, æðasjúkdóm í heila, teppusjúkdóm í slagæðumútlima, sykursýki, ómeðhöndlað skjaldvakaóhóf, krómfíklaæxli, skerta lifrar- eða nýrnastarfsemi, skeifugarnar- eða magasár eða vélindabólgu. Aðgát í návist barna: Nikótínskammtar sem fullorðnir geta þolað geta valdið alvarlegum eitrunareinkennum og verið banvænir börnum. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Meðganga og brjóstagjöf: Eingöngu skal nota Nicorette í samráði við lækni. Nikótín berst yfir fylgju og getur haft áhrif á blóðrás og öndun fósturs. Nikótín berst í brjóstamjólk í magni sem getur haft áhrif á brjóstmylking. Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið.Markaðsleyfishafi: McNeil Denmark ApS. Umboð á Íslandi: Vistor hf., sími: 535-7000. IS/NIC-L/K-2016-08-1 Fæst án lyfseðils í næsta apóteki Cooldrops munnsogstöflur með mintubragði nikótínlyf Dregur úr nikótínþörf og fráhvarfseinkennum Dregur úr reykingaþörf eftir 5 mín. hið minnsta Tvöfalt mintulag, (í töflukjarna og töfluhúð) Kemur í handhægri öskju í vasastærð Fæst 2 mg og 4 mg Nicorette í 20, 80 og 160 stk. pakkningum4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.