Morgunblaðið - 29.10.2016, Síða 6

Morgunblaðið - 29.10.2016, Síða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2016 Láttu okkur ráða Elja starfsmannaþjónusta 4 150 140 elja.is elja@elja.is Þarftu að ráða matreiðslumann? FRÉTTASKÝRING Jón Þórisson jonth@mbl.is Eins og fram hefur komið hefur Fé- lagsvísindastofnun Háskólans unnið fjórar vikulegar kannanir í október á fylgi stjórnmálaflokka fyrir Morgun- blaðið. Sú nýbreytni við gerð kann- ananna fyrir þessar kosningar að af- staða er könnuð jafnt og þétt yfir alla vikuna auðveldar að fylgjast með breytingum sem verða dag frá degi í kosningabaráttunni, þar sem alla jafna berast jafn mörg svör á hverj- um degi. Þetta gerir til að mynda kleift að greina hvort tiltekin atvik í kosningabaráttunni hafi áhrif á fylgi framboða. Hér til hliðar getur að líta fylgi þeirra stjórmálaflokka sem ná munu manni á þing væri um úrslit kosn- inga að ræða, mælt daglega í októ- ber. Fylgið er sýnt með línu og hver flokkur auðkenndur með lit þannig að auðvelt ætti að vera að rekja sig eftir línunni. Píratar gefa eftir Af myndinni sést að fylgi Pírata mældist í upphafi mánaðarins 22%. Hæst mældist það 24% þann 15. október, daginn fyrir tilkynningu þeirra um fundarboð til stjórnarand- stöðuflokka. Frá þeim degi lækkaði fylgið nokkuð afgerandi, en hækkar aftur í lok mælingatímans og loka- mæling fylgis þeirra sýnir 21%. Sjálfstæðisflokkur mældist með 22% fylgi í upphafi mánaðarins og reis nokkuð fyrstu dagana á eftir og náði 29% þann 4. október. Upp frá því lækkaði fylgið nokkuð og féll nið- ur í 19% dagana 16.-18. október en reis á ný, um það leyti sem fyrr- greindur fundur stjórnarandstöðu- flokka var í umræðunni, og lokamæl- ing þann 26. október sýndi 23% fylgi. Vinstri grænir mældust með 24% fylgi þann 1. október en það féll nokkuð næstu daga á eftir og sveifl- aðist nokkuð fyrstu vikuna. Hæst mældist fylgið 20% ef undan er skil- inn fyrsti dagurinn og var fylgi flokksins 17% þann 26. október. Leitnin upp á við hjá Framsókn Framsóknarflokkur mældist með 7% fylgi á fyrsta degi mánaðarins og jókst fylgið í 12% dagana 4. og 5. október. Upp frá því féll það nokkuð og 7. október mældist það 6%. Það hefur síðan heldur aukist og mælist 11% í lok tímabilsins sem mælt var. Í upphafi mánaðarins mældist fylgi Viðreisnar 8%. Það jókst fram eftir mánuðinum og mældist mest 14% þann 22. og 23. október. Fylgi Viðreisnar mælist 10% á lokadegi mælingarinnar. Fylgi Bjartrar framtíðar hefur sveiflast nokkuð í mánuðinum. Fyrsta mælingin sýndi 4% fylgi sem óx svo eftir því sem leið á mánuðinn og var mest 9% um miðbik hans en gaf svo eftir á ný. Fylgið óx svo aftur er leið á og síðasta mæling sýndi 7%. Samfylking mældist með 6% fylgi í upphafi mánaðarins. Flokkurinn náði svo 9% fylgi þann 6. október. En frá 18. október féll það nokkuð og varð lægst 5%. Lokamæling síðustu könnunarinnar sýndi fylgi Samfylk- ingarinnar í 6%. Missterkir í kjördæmum Þá er einnig forvitnilegt að sjá þann mun sem er á milli kjördæma þegar kemur að fylgi stjórmála- flokka samkvæmt könnuninni. Hér til hliðar á síðunni eru skífurit fyrir hvert hinna sex kjördæma landsins, sem sýna fylgi þeirra sjö framboða sem könnunin sýnir að ná munu manni inn á þing. Jafnframt eru nöfn þeirra frambjóðenda í hverju kjör- dæmi sem könnunin sýnir að ná muni kjöri væri um úrslit kosninga að ræða. Þannig mælist Sjálfstæðisflokkur- inn með mest fylgi í Suðurkjördæmi eða 31%. Mest fylgi við Pírata í könnuninni er í Reykjavíkurkjördæmi norður, eða 27%. Þá er fylgi Vinstri grænna mest í Norðvesturkjördæmi, 22%. Sömu sögu er að segja af Framsókn- arflokki sem nýtur mests fylgis í Norðvesturkjördæmi eða 21%. Fylgi Viðreisnar virðist mest í Suðvestur- kjördæmi, en könnunin sýnir að fylgi flokksins í kjördæminu er 16%. Sam- fylking nýtur mests fylgis í Reykja- víkurkjördæmi norður en þar mælist fylgið 10%. Að síðustu er svo að sjá að fylgi Bjartrar framtíðar sé mest í Suðvesturkjördæmi. Þar segjast 9% svarenda í könnuninni ætla að kjósa Bjarta framtíð. Mikill munur á fylginu milli kjördæma  Fylgismælingar sýna að stjórnarflokk- arnir virðast auka fylgi sitt síðustu daga Fylgi flokka eftir kjördæmum -samkvæmt skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar Suðvesturkjördæmi Norðausturkjördæmi Suðurkjördæmi Norðvesturkjördæmi Viðreisn Sjálfstæðisflokkurinn Píratar Vinstri græn Björt framtíð Samfylkingin Annar flokkur Framsóknarflokkurinn Haraldur Benediktsson Eva Pandora Baldursdóttir Lilja Rafney Baldursdóttir Bjarni Jónsson Guðjón Brjánsson Gunnar Bragi Sveinsson Elsa Lára Arnardóttir Gylfi Ólafsson Páll Magnússon Ásmundur Friðriksson Vilhjálmur Árnason Unnur Brá Konráðsdóttir Sigurður Ingi Jóhannesson Ari Trausti Guðmundsson Smári McCarthy Oktavía Jónsdóttir Jóna Sólveig Einarsdóttir Páll Valur Björnsson Steingrímur J. Sigfússon Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir Kristján Þór Júlíusson Njáll Trausti Friðbertsson Valgerður Gunnarsdóttir Sigmundur Davíð Gunnlaugss. Þórunn Egilsdóttir Logi Einarsson Einar Aðalsteinn Brynjólfsson Guðrún Ágústa Þórdísardóttir Bjarni Benediktsson Bryndís Haraldsdóttir Jón Gunnarsson Þorgerður Katrín Gunnarsd. Jón Steindór Valdimarsson Rósa Björk Brynjólfsdóttir Ólafur Þór Gunnarsson Jón Þór Ólafsson Þórhildur SunnaÆvarsdóttir Andri Þór Sturluson Árni Páll Árnason Eygló Þóra Harðardóttir Óttarr Proppé Reykjavíkurkjördæmi suður Reykjavíkurkjördæmi norður Ólöf Nordal Brynjar Níelsson Sigríður Andersen Ásta Guðrún Helgadóttir Gunnar Hrafn Jónsson Viktor Orri Valgarðsson Hanna Katrín Friðriksson Pawel Bartoszek Nichole Leigh Mosty Svandís Svavarsdóttir Kolbeinn Óttarsson Proppé Birgitta Jónsdóttir Björn Leví Gunnarsson Halldóra Mogensen Katrín Jakobsdóttir Steinunn Þóra Árnadóttir Guðlaugur Þór Þórðarson Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir Þorsteinn Víglundsson Björt Ólafsdóttir Sigríður Ingibjörg Ingadóttir Karl Garðarsson 22% 27% 31%25% 23% 22% 23% 19% 20% 21% 19% 21% 21% 17% 13%16% 17% 18% 14% 10% 11%14% 17% 13% 7% 8% 8%9% 7% 10% 5% 7% 7%7% 6% 7% 4% 7% 6%5% 6% 6% 4% 6% 4%4% 5% 4% Morgunblaðið/Eggert Utan kjörfundar Fremur rólegt var í Perlunni gærkvöld þar sem utankjörfundaratkvæðagreiðsla fór fram. Daglegt fylgi stjórnmálaflokka í október 30% 25% 20% 15% 10% 5% 0% 1. 2. 3. 4. 5. 6. 7. 8. 9. 10. 11. 12. 13. 14. 15. 16. 17. 18. 19. 20. 21. 22. 23. 24. 25. 26. Framsóknarflokkurinn SamfylkinginBjört framtíðSjálfstæðisflokkurinn Vinstri græn Píratar Viðreisn H ei m ild :F él ag sv ís in da st of nu n H Í ALÞINGISKOSNINGAR 2016
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.