Morgunblaðið - 29.10.2016, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 29.10.2016, Qupperneq 22
22 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2016 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Eftirleikur alþingiskosninga í Vesturlands- kjördæmi vorið 1987 var sögulegur í meira lagi, því þegar farið var að telja atkvæði kom í ljós að 48 atkvæðaseðla vantaði borið saman við skráðan fjölda þeirra sem neytt höfðu at- kvæðisréttar. Málið þótti allt með ólíkindum. Kjördagur var 25. apríl, laugardagur venju samkvæmt, og þegar komið var fram á þriðjudag sneri yfirkjörstjórn sér til sýslu- mannsins í Mýra- og Borgarfjarðarsýslu og óskaði eftir opinberri rannsókn á málinu. Hvar voru atkvæðin? Þjóðfélagið nötraði. Öllum steinum var velt við Úr varð að á miðvikudegi fóru menn frá Rannsóknarlögreglu ríkisins, sem þá var, upp í Borgarnes og Bogi Nilsson, yfirmaður stofnunarinnar, hóf rannsókn. Menn voru yfirheyrðir, öllum steinum velt við og ekkert var útilokað. Það var svo laust fyrir klukkan 21 um kvöldið sem Björn Þorbjörnsson, lög- reglumaður, fór að leita að bókum og gögnum viðvíkjandi kjörfundi sem geymd voru í kjör- kössunum sem settir höfðu verið inn í fanga- geymslu lögreglunnar. „Þegar ég opnaði þriðja kassann og tók bókina úr honum, blasti þetta við mér,“ sagði Björn. „Ég ætlaði ekki að trúa mínum eigin augum, en það lyftist brúnin á mönnum hér í húsi þegar þetta fréttist,“ sagði Björn í sam- tali við Morgunblaðið 30. apríl 1987. Gátan var ráðin og strax um nóttina kom yfirkjör- stjórn til fundar þar sem þessi síðustu at- kvæði voru talin. - Skipting þeirra var á þá lund að Alþýðuflokkurinn fékk 5 atkvæði, Framsóknarflokkurinn 18, Sjálfstæðisflokkur sjö, Alþýðubandalagið fjögur, þrír greiddu Þjóðarflokknum atkvæði, 5 kusu Borgara- flokkinn og þrír Samtök um kvennalista. Voru þessar tölur í samræmi við heildar- úrslitin í kjördæminu. Skipan þingsæta breyttist ekki. Alþýðuflokkur fékk sveitafylgi Atkvæðaseðlarnir sem týndust voru frá kjörfundi í Hörðudal í Dalasýslu; litlum hreppi sem fyrir löngu er orðinn hluti af stærra sveitarfélagi; Dalabyggð. Þetta er rótgróið sveitahérað og kannski var eftir bók- inni að um helmingur kjósenda þarna studdi Framsókn og Sjálfstæðisflokk. Fylgisspekt Dalamanna við Friðjón Þórðarson, þingmann Sjálfstæðisflokksins, var líka traust. „Hvort ég man eftir þessu. Þetta var stór- mál og auðvitað var ekki hægt að gefa út lokatölur fyrir landið fyrr en skýringar á Vesturlandi væru fundnar. Ýmsar kenningar höfðu þá áður komið fram, en sumum þótti þetta eiginlega óskiljanlegt,“ segir Eiður S. Guðnason sem á þessum tíma var þingmaður Alþýðuflokksins á Vesturlandi. Og hann held- ur áfram: „Fulltrúi okkar Alþýðuflokksmanna í yf- irkjörstjórn var Sveinn Kr. Guðmundsson á Akranesi. Hann var ákaflega nákvæmur og samviskusamur í öllu sem hann gerði, og mikið var honum létt, og sjálfsagt öllum í kjörstjórninni, þegar skýring fannst á málinu. En mörgum fannst merkilegt að Alþýðuflokk- urinn skyldi fá fimm atkvæði í þessum fá- menna hreppi. Í sveitunum voru menn kannski ekki mikið að flíka stuðningi sínum við Alþýðuflokkinn, en hann leyndist þó víða.“ Atkvæðin týndust í fangelsi  Dularfullur eftirmáli kosninga á Vesturlandi 1987  Lögreglurannsókn og þjóðfélagið nötraði Alþingi „Hvort ég man eftir þessu,“ segir Eiður Guðnason um eftirmál kosninganna 1983. Hér er hann í ræðustól Alþingis. Fremst er Stefán Jónsson sem var þingmaður Alþýðubandalagsins. Leyndardómurinn Björn Þorbjörnsson lög- reglumaður í Borgarnesi í fangageymslunni þar sem atkvæðin fundust eftir mikla leit. Golfsettið ferðast frítt! + Skráðu þig í Icelandair Golfers á www.icelandairgolfers.is Aðild að Icelandair Golfers er innifalin fyrir korthafa Premium Icelandair American Express® ÍS L E N S K A S IA .I S IC E 66 19 3 10 /1 3
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.