Morgunblaðið - 29.10.2016, Side 34
ÞORSKASTRÍÐIN
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Þess var minnst í sumar að 1. júní
síðastliðinn voru 40 ár liðin síðan Ís-
lendingar og Bretar undirrituðu
samkomulag í Ósló sem í reynd fól í
sér að bresk stjórnvöld viðurkenndu
rétt Íslands til yfirráða yfir 200
mílna fiskveiðilögsögunni sem tekið
hafði gildi 15. október 1975. Þar með
lauk með fullum sigri baráttu Ís-
lendinga fyrir yfirráðum yfir fiski-
miðunum við landið, baráttu sem
staðið hafði yfir í áratugi.
Útfærsla landhelginnar var gerð í
fjórum áföngum; í 4 mílur 1950 til
1952, í 12 mílur 1956, í 50 mílur 1972
og 200 mílur 1975. Breski togaraflot-
inn hafði veitt hér við land í áratugi
og því voru miklir fjárhagslegir
hagsmunir í húfi fyrir útgerðarfyrir-
tækin þar í landi. Bretar voru mjög
ósáttir við útfærslu landhelginnar og
sendu herskip og dráttarbáta til að
vernda togarana fyrir aðgerðum ís-
lenskra varðskipa. Sigldu Bretar
margsinnis á varðskipin okkar og
löskuðu þau enda var það markmið
Breta að gera þau ófær um að sinna
hlutverki sínu. Alls munu þau vera
54 skiptin sem bresk herskip og
dráttarbátar og íslensk varðskip
rákust saman, að því er talið er. En
þrautseigja starfsmanna Land-
helgisgæslunnar og Íslendinga allra
hafði sigur að lokum. Svo mikil var
reiði Íslendinga í garð Breta að í
febrúar 1976 var stjórnmála-
sambandi slitið við Breta.
Óvænt atlaga í landhelginni
Hér verður rifjaður upp örlaga-
ríkur atburður sem varð í mynni
Seyðisfjarðar fimmtudaginn 11. des-
ember 1975. Á næstu síðu er svo lýs-
ing á því hvernig Morgunblaðið afl-
aði frétta af þessum atburði. Fullt
tilefni er til þessarar upprifjunar á
kosningadaginn, þar sem nokkrir
stjórnmálaflokkar hafa á stefnu-
skránni að ganga í ESB, sem óhjá-
kvæmilega myndi leiða til þess
stjórn fiskimiðanna færðist þangað.
Ef svo fer hefur verið til lítils barist í
þorskastríðunum þremur.
Það var laust eftir hádegi hinn 11.
desember sem þrír dráttarbátar,
Lloydsman, Star Aquarius og Star
Polaris, gerðu árás á varðskipið Þór,
sem var að koma út frá Seyðisfirði,
þar sem það hafði verið að grennsl-
ast eftir duflum sem þar höfðu fund-
ist á reki. Dráttarbátarnir voru að-
eins rúmlega eina mílu frá landi og
því langt inni í landhelgi Íslands.
Taug var á Star Aquarius og Lloyds-
man og sigldu báðir dráttarbátarnir
á Þór, Star Aquarius fyrst en
Lloydsman síðan tvisvar. Eftir fyrri
ásiglingu Lloydsman skaut Þór við-
vörunarskoti en þegar dráttarbátur-
inn sinnti ekki viðvöruninni og lagði
aftur til atlögu við Þór skaut varð-
skipið kúluskoti á Lloydsman og fór
kúlan í bóg dráttarbátsins. Þar með
lauk viðureigninni og dráttar-
bátarnir héldu til hafs í kjölfar Star
Polaris, sem þegar í upphafi fór á
haf út. Þór hélt í var í Loðmundar-
firði, þar sem skemmdir voru kann-
aðar, en varðskipið var stórlaskað
eftir árásina. Þótti mesta mildi að
dráttarbátarnir hefðu ekki sökkt
varðskipinu, en einn varðskips-
maður slasaðist á hendi við atgang-
inn.
Helgi heitinn Hallvarðsson var
skipherra á Þór og hann lýsti
skemmdum þannig í viðtali við
Morgunblaðið: „Í stuttu máli má
segja að dæld kom í ljósavélarrúm
og kom leki að því. Dæld kom á aðal-
vélarúm á móts við portið. Bak-
borðsblásari í aðalvélasal er óvirkur
enda í skorsteini bakborðsmegin en
hann skemmdist við áreksturinn.
Brot kom á strompinn þrjá metra yf-
ir þyrluþilfari og dæld í hann og nær
hún þrjátíu sentimetra inn í hann og
kaplar fóru í sundur. Nítján metra
kafli á aðalþilfari bakborðsmegin er
allur brotinn og boginn og ná
skemmdirnar mest 4½ metra inn á
pallinn. Þá hefur þyrlupallurinn all-
ur gengið til á stjórnborða, 23-24
þverbönd skemmdust. Bátskrani
laskaðist að ofan og undirstöður
hans bognuðu. Verulegar skemmdir
urðu á klefa þar sem kútar fyrir
sjálfvirkt slökkviliðskerfi eru. Loft-
bitar þar eru bognir og er úthlið
klefans rifin frá við loftið en kerfið
er þó líklega virkt.“
Erfiðustu dagarnir
Um atburðina sagði Helgi í sam-
talinu: „Þessir tíu síðustu dagar hafa
verið þeir erfiðustu og viðburðarík-
ustu sem ég hef átt í þau 29 ár sem
ég hef verið við gæzlustörf, fjórir
árekstrar og þrjár klippingar. Bret-
arnir eru nú mun grófari en þeir
voru í síðasta þorskastríði og hafa
verið að færa sig upp á skaftið og há-
markið var árás dráttarbátanna á
okkur. Ef þessu heldur áfram hlýtur
það að enda með stórslysi.“
Árás dráttarbátanna á Þór olli
gífurlegri reiði á Íslandi og kærði
ríkisstjórnin framferðið til fastaráðs
NATO og öryggisráðs SÞ.
Gróf árás á varðskipið Þór
Þrír breskir dráttarbátar sigldu á Þór í mynni Seyðisfjarðar 1975 Mildi að varðskipið sökk ekki
við atlöguna Miklar skemmdir urðu á Þór Gríðarleg reiði í þjóðfélaginu í kjölfar atburðarins
Ljósmynd/Friðgeir Olgeirsson
Stórhætta Stefni dráttarbátsins Lloydsman er hér komið að brúnni á varðskipinu Þór. Ógnvænleg sjón.
Ljósmynd/Baldur Sveinsson
Atlagan Fyrri ásigling Lloydsman á Þór náðist á mynd. Hún sýnir vel hinn mikla stærðarmun á skipunum.
Stórfrétt Forsíða Morgunblaðsins
daginn eftir atburðina eystra.
Morgunblaðið/Friðþjófur
Skemmdirnar Þór stórlaskaður í Loðmundarfirði eftir ásiglinguna.
Sjá bls. 36
34 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2016
Það var ekki aðeins framferði
breska heimsveldisins á Íslands-
miðum sem vakti reiði almenn-
ings hér heldur líka viðbögðin í
Bretlandi.
Eftir árásina á Þór sendi Mike
Smart fréttaritari Morgunblaðs-
ins í Hull frétt með viðbrögðum
sem sýnir vel óskammfeilni Bret-
anna.
Austin Laing, framkvæmastjóri
breskra togaraeigenda sagði m.a:
„Sú tilfinning hneykslunar sem
vakin er af því er vopnað íslenzkt
varðskip andstætt öllum mann-
úðarsjónarmiðum skýtur að
óvopnuðu brezku skipi sem er í
vari frá níu vindstiga roki og
framfylgir réttindum, sem óum-
deilanleg eru, er ekki eins mikil
og sú ótrúlega flónska íslenzku
ríkisstjórnarinnar að leyfa varð-
skipi að haga sér enn einu sinni
með svo hættulegum og ögrandi
glannaskap.“
James Johnson, þingmaður frá
Hull, kallaði aðgerðir varðskips-
ins villimannalegar og grimmileg-
ar. Sagði hann rökrétt að breski
flotinn myndi endurgjalda skot
Þórs með því að skjóta á varð-
skipin. Ákvörðunarvaldið væri
auðvitað í höndum yfirmanna
breska flotans.
Dave Hawley, ritari samtaka
togaraskipstjóra í Grimsby, sagði:
„Vissulega finnst mér þetta
skelfilegt. Og ég undrast að skip-
herrann á Þór skuli hafa misst svo
stjórn á sér að hann grípur til
byssunnar.“
Óskammfeilin viðbrögð í Bretlandi við árásinni á Þór
Mótmæli Almenningur á Íslandi tók framferði Breta ekki þegjandi.
Lögregla reynir hér að hemja fólk við breska sendiráðið við Laufásveg.
„Aðgerðir varðskipsins villi-
mannlegar og grimmilegar“