Morgunblaðið - 29.10.2016, Side 36
36 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2016
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Atburðir í þorskastríðunum voru
dramatískir og mikið fréttaefni á sín-
um tíma. Fólkið þyrsti í fréttir og
dagblöðin voru ein helsta fréttalindin
í þá daga. Það var mikið lagt undir á
Morgunblaðinu að gera slíkum frétt-
um góð skil. Ef einhver stóratburður
varð var ekki horft í kostnaðinn held-
ur pöntuð flugvél ef þurfti og menn
sendir á staðinn. Þetta átti við um alla
mikla fréttaatburði, t.d. náttúru-
hamfarir og stórslys.
Hér verður lýst ferð Morgunblaðs-
manna til að afla frétta og mynda af
stóratburðunum í mynni Seyðis-
fjarðar fimmtudaginn 11. desember
1975. Þessi ferð var nú reyndar í
skrautlegri kantinum. Hafa ber í
huga að tæknin var skammt á veg
komin á þessum árum. Ekki var búið
að finna upp internetið og Morgun-
blaðið hafði ekki yfir að ráða tæki til
að símsenda myndir eins og seinna
varð.
Nokkru eftir ásiglinguna á varð-
skipið Þór bárust fréttir af atburð-
unum til ritstjórnar Morgunblaðsins.
Var þá strax ákveðið að senda menn
austur með flugvél. Til fararinnar
völdust tveir blaðamenn, þ.e. höf-
undur þessarar greinar og Þórleifur
Ólafsson, svo og tveir ljósmyndarar,
Sveinn Þormóðsson og Friðþjófur
Helgason.
Við vorum hálfgerðir stráklingar á
þessum tíma utan Sveinn, sem var
gamalreyndur ljósmyndari sem lengi
hafði unnið á blaðinu. Við undir-
bjuggum ferðina sjálfir ásamt þeim
Birni heitnum Jóhannssyni frétta-
stjóra og Matthíasi Johannessen rit-
stjóra. Báðir voru þeir afar áhuga-
samir um fréttir af þorskastríðinu
eins og Styrmir Gunnarsson ritstjóri,
sem var mest i stjórnmálaskrifum í
gamla daga.
Hrollkalt í flugvélinni
Lagt var í hann um þrjúleytið á
tveggja hreyfla flugvél. Flugstjóri
var Sigurgeir Sigurðsson. Við vorum
rétt komnir í loftið þegar Sigurgeir
flugstjóri uppgötvaði að hitakerfið í
vélinni var bilað. „Þið verðið annað
hvort að snúa við og lenda eða láta
ykkur hafa fimmtán stiga frost til Eg-
ilsstaða,“ sagði Sigurgeir. Ekki kom
til greina að hætta við því þá var ferð-
in til einskis farin. Þetta var ekki
gæfuleg flugferð, skítkalt í vélinni,
ókyrð í lofti og að auki var allt svo
hrímað að ekki sást út úr vélinni. Sér-
staklega var Sveini kalt því hann var
bara í nælonskyrtu undir úlpunni. En
við lentum á Egilsstöðum heilu og
höldnu. Strax var
brunað í kaup-
félagið á staðnum
og keyptar síðar
nærbuxur og hlýir
bolir á okkur alla
áður en við lögð-
um í hann niður á
Seyðisfjörð í bíl.
Reiknað hafði
verið með því að
Þór sigldi inn til
Seyðasfjarðar en það varð ekki raun-
in, heldur lá varðskipið í Loðmundar-
firði, þar sem skemmdir voru kann-
aðar. Nú þurfti að hafa snör handtök
og útvega bát til að sigla með hópinn
út í Loðmundarfjörð. Tókst að leigja
vélbátinn Ottó Wathne til fararinnar
en skipstjóri var Trausti heitinn
Magnússon. Það var skítabræla
þennan dag, norðaustan slampandi,
eins og sjómenn segja, og hríðar-
veður.
Þegar komið var út í Loðmundar-
fjörð lágu þar tvö varðskip, Þór og
Ægir, sem kominn var á staðinn.
Varðskipsmenn á Ægi voru svo vin-
samlegir að lýsa upp Þór svo ljós-
myndararnir næðu sem bestum
myndum af skemmdunum. Ekki
fengu Morgunblaðsmenn að fara um
borð en viðtal fékkst við Hermann
Sigurðsson stýrimann, sem lýsti at-
burðum dagsins í gegnum talstöð.
Við vorum í Loðmundarfirði um
áttaleytið um kvöldið og tíminn orð-
inn naumur. Ottó sigldi á fullri ferð til
Seyðisfjarðar þar sem greinarhöf-
undur og Friðþjófur urðu eftir en
Sveinn og Þórleifur brunuðu upp á
Egilsstaði þar sem Sigurgeir og flug-
vélin biðu.
Vel gekk að starta öðrum hreyfl-
inum en illa gékk að koma bakborðs-
hreyflinum í gang. Þegar það loksins
tókst varð alveg rosalegur hávaði svo
Sigurgeir varð að drepa á hreyflin-
um. Þá kom í ljós að pústgreinin var
laus frá. Nú voru góð ráð dýr því eng-
inn var að vinna á vellinum. Sigurgeir
fann grjót og gat barið pústgreinina á
sinn stað. Síðan var farið í loftið og
flugið suður gekk vel. Hitakerfið var
enn bilað en mönnum leið betur því
þeir voru betur klæddir en í ferðinni
austur.
Í Reykjavík gékk á með dimmum
éljum og þurfti flugvélin að hringsóla
nokkra stund áður en hægt var að
lenda. Þá var klukkan farin að ganga
tólf um kvöldið. Brunað var niður á
Mogga í Aðalstræti og filmurnar
framkallaðar með hraði.
Blaðið fór seint í prentun
Greinarhöfundur var búinn að
semja fréttina á Seyðisfirði og sím-
senda hana suður. Þetta tölublað
Morgunblaðsins fór seint í prentun.
En það sem skipti öllu máli var að
blaðið hafði að geyma frásögn og
myndir frá þessum örlagaríka at-
burði í þorskastíðinu.
Daginn eftir kom Þór inn til
Seyðisfjarðar. Greinarhöfundur tók
viðtöl m.a. við Helga Hallvarðsson
skipherra og Friðþjófur tók myndir.
Hann náði m.a. mynd af togvíra-
klippunum frægu sem mikið höfðu
verið í fréttum. Klippurnar höfðu
fram að þessu verið leyndarmál.
Þetta efni birtist í Morgunblaðinu
daginn eftir.
Íslendinga þyrsti í fréttir
Atburðir í þorskastríðunum voru dramatískir og mikið fréttaefni á sínum tíma Morgunblaðið
sendi fjóra menn til að afla frétta af ásiglingunni á Þór Filmur og fréttir sóttar í Loðmundarfjörð
Morgunblaðið/Friðþjófur
Í brúnni Helgi Hallvarðsson skipherra á Þór heilsar að sið herforingja þegar skipið kom til Seyðisfjarðar.
Morgunblaðið/Friðþjófur
Leynivopnið á Þór Víraklippurnar víðfrægu klipptu á mörg trollin.
Atburður Það er varla hægt að fara
lengri leið til að afla frétta en þessa.
Ásiglingin á Þór
Reykjavík
Egilsstaðir
x
Sveinn
Þormóðsson
Friðþjófur
Helgason
Þórleifur
Ólafsson
Á þorskastríðsárunum hafði Morg-
unblaðið náið samstarf við BBC Ra-
dio Humberside.
„Þetta byrjaði þannig að BBC
Radio Humberside hafði samband
við stærsta dagblaðið á Íslandi,
Morgunblaðið, og leitaði eftir frétt-
um,“ segir hinn þjóðkunni rithöf-
undur Árni Þórarinsson sem á þess-
um tíma skrifaði erlendar fréttir í
Morgunblaðið. Útvarpsstöðin var á
Humberside-svæðinu þar sem út-
gerðarbæirnir Hull og Grimsby eru
og þar var eðlilega mestur áhugi á
fréttum af þorskastríðinu.
„Þetta leiddi til samstarfs sem stóð
yfir um langan tíma og báðir aðilar
höfðu gagn af. Þetta var eins konar
„skúbbbandalag.“ Þeir létu okkur fá
helstu fréttirnar sem þeir voru með
og við létum þá hafa fréttir af því
sem var að gerast
á Íslandi. Sá
fréttamaður sem
var fremstur í
flokki hét Mike
Smart. Hann varð
síðan fréttaritari
okkar og við
merktum honum
fréttirnar. Mike
þótti standa sig
svo vel í þorska-
stríðsfréttunum að hann var síðar
færður á aðalstöðvar BBC,“ segir
Árni.
Það var mikil vinna fyrir blaða-
menn Morgunblaðsins að þýða frétt-
irnar á ensku og senda þær svo með
telexi til Bretlands. Þeir þurftu að
skrifa fréttirnar á pappírsstrimla
sem síðan var rennt í gegnum telex-
tækið þegar búið var að hringja í
ákveðið símanúmer hjá útvarpsstöð-
inni. „Þetta var svo gamaldags tækni
að það þýðir ekki að útskýra hana
frekar fyrir nútímafólki.“
Svo mikill var áhugi á fréttunum
að blaðið sendi stundum blaðamenn
til útlanda til að taka viðtöl. Þannig
fór Árni Þórarinsson til London í
september 1972 og tók viðtal við
James Prior, sjávarútvegsráðherra
Breta. Viðtalið birtist á forsíðunni og
vakti að vonum mikla athygli enda
boðaði hann að herskip yrðu send á
Íslandsmið til að vernda togarana.
„Að upplifa þorskastríðin sem
blaðamaður var óskaplega spenn-
andi og skemmtilegt en jafnframt
ógnvænlegt. Maður gat alltaf búist
við því að stórslys yrði á miðunum,
svo hörð voru átökin,“ segir Árni.
Morgunblaðið í „skúbb-
bandalagi“ með BBC
Árni
Þórarinsson
Hrein jógúrt
Ástæða þess að þú átt að velja lífræna jógúrt:
Lífrænar
mjólkurvörur
• Engin aukaefni
• Meira af Omega-3
fitusýrum
• Meira er af CLA
fitusýrum sem byggja
upp vöðva og bein
• Ekkert undanrennuduft
• Án manngerðra
transfitusýra
www.biobu.is