Morgunblaðið - 29.10.2016, Page 40
40 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2016
VIÐ ERUM
AÐ STANDA OKKUR!
AFNÁM TOLLA
SKILAR SÉR TIL NEYTENDA
VERÐ ÁÐUR 12.995
VERÐ NÚ 10.995
SKECHERS SPARKLE SPELL
BARNAKULDASKÓR
Sigurður Bogi Sævarsson
Júlíus Sigurjónsson
Ný stjórnstöð aðgerðarstjórnar
höfuðborgarsvæðisins sem nú er
verið að taka í gagnið þykir hafa
sannað gildi sitt strax í fyrsta verk-
efni. Stöðin er rekin á ábyrgð og
vegum Slökkviliðs höfuðborgar-
svæðisins (SHS) og Lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu (LRH) og það-
an var björgunaraðgerðum vegna
rútuslyssins á Mosfellsheiði fyrr í
vikunni stýrt. Stjórnstöðin er við
Skógarhlíð í Reykjavík og þar
munu viðbragðsaðilar samræma
vinnu sína þegar vá steðjar að. Auk
slökkviliðs og lögreglu sitja í að-
gerðastjórn fulltrúar Rauða kross-
ins, Landspítalans, Slysavarna-
félagsins Landsbjargar og aðrir
þeir er koma að aðgerðum hverju
sinni.
Aðstaðan í stjórnstöðinni nýju,
sem Morgunblaðið kynnti sér í vik-
unni, er mjög fullkomin. Upplýs-
inga- og fjarskiptakerfi eru sam-
tengd og í gegnum myndavélar á
útkallabílum er hægt að sjá að-
stæður á vettvangi og bregðast við
samkvæmt því. Þá eru Neyðarlínan,
Landsbjörg, Vaktstöð siglinga,
Fjarskiptamiðstöð lögreglu, Al-
mannavarnadeild ríkislögreglu-
stjóra, Landhelgisgæslan og Sam-
hæfingarstöð almannavarna undir
sama þaki í Björgunarmiðstöðinni
við Skógarhlíð, sem skapar greiða
gangvegi.
Sólarhringsvakt
og fullkomin tæki
„Hér er vagga viðbragðs- og
samhæfingar og hér er unnið sam-
ræmt starf í þágu almennings.
Þetta módel hefur vakið mikla at-
hygli og margir komið að utan til að
kynna sér það. Samvinna við-
bragðsaðilanna á einum stað hér
þykir eftirtektarverð, en slíkt starf
hefur reynst ógerlegt víða erlend-
is,“ segir Sigríður Björk Guðjóns-
dóttir, lögreglustjóri á höfuðborgar-
svæðinu.
Lengi hefur verið í deiglu að
koma upp stjórnstöð sem þessari.
Sigríður Björk segir að við stefnu-
mótun LRH á undanförnum tveim-
ur árum hafi komið í ljós að leggja
þyrfti meiri áherslu á þátt almanna-
varna hjá embættinu og stjórn-
stöðin nýja tengist því. Í upphafi
verður sá háttur hafður á að í stöð-
inni verður varðstjóri slökkviliðs
höfuðborgarsvæðisins á sólar-
hringsvakt og lögreglan stefnir á
hið sama þegar fjárhagur og
mannafli leyfir.
Uppsetning stöðvarinnar kostar
tugi milljóna króna. Ber þess þá að
geta að Faxaflóahafnir, Isavia og
fleiri lögðu verkefninu til verulega
fjármuni til tækja- og búnaðar-
kaupa. Þá lagði Ríkislögreglustjóri
til húsnæði í Skógarhlíð, sem var
forsenda fyrir því að þetta væri
gerlegt. Einnig hefur almanna-
varnaefnd höfuðborgarsvæðisins
stutt verkefnið. Neyðarlínan kom
að uppsetningu stöðvarinnar með
fullkomnum tækjum og búnaði og
hafa sveitarfélögin á höfuð-
borgarsvæðinu einnig stutt verk-
efnið.
Gott innlegg í traust samstarf
„Þessi aðstaða er gott innlegg í
samstarf slökkviliðs og lögreglu og
fleiri. Hér verður fólk í sama rými,
og þegar tengsl og traust er til
staðar ætti björgunarstarf að verða
auðveldara,“ segir Sigríður Björk.
Hún getur þess að vísir að stjórn-
stöð hafi verið kominn áður á lög-
reglustöðinni við Hverfisgötu. Það-
an var aðgerðum til dæmis stýrt
eftir bankarán í Borgartúni seint á
síðasta ári og nokkrum málum eftir
það. Hins vegar hefur ekki verið
aðstaða fyrir alla aðgerðarstjórn
höfuðborgarsvæðisins á einum og
sama stað fyrr en nú.
„Ávinningur lögreglunnar er
einnig sá að úr einni stjórnstöð fæst
góð yfirsýn á allt höfuðborgar-
svæðið. Við getum stillt saman
strengi og mannskap af öllum
stöðvum þegar verkefnin krefjast.
Að einhver einn sé til svara hjá lög-
reglunni á hverjum tíma og sjái yfir
sviðið allt í að gera starfið mark-
vissara. Með þessu ættum við líka
að geta sinnt fjölmiðlum betur. Í
raun tel ég þetta vera hluta af nú-
tímavæðingu lögregluembættisins.“
Fjölbreytt og flókin verkefni
Jón Viðar Matthíasson slökkvi-
liðsstjóri segir nýju stjórnstöðina
munu án efa gera samstarf manna
hans við lögregluna betra. „Við
vinnum náið saman og verkefnin
verða æ fjölbreyttari og flóknari.
Almannavarnaástand getur til
dæmis verið flugslys, stórir elds-
voðar, náttúruvá eða langvarandi
rafmagnsleysi. Einnig vá um borð í
skemmtiferðaskipunum sem hingað
koma inn, jafnvel með þúsundir far-
þega um borð. Svona mætti áfram
telja,“ segir hann og heldur áfram:
„Þó er rétt að taka fram að svona
aðstæður hafa aldrei komið upp.
Altæku almannavarnaástandi í
Reykjavík hefur aldrei verið lýst yf-
ir, sem betur fer. Verkefnin hafa
jafnan verið minni hægt að ráða við
þau. “
Jón Viðar vekur athygli á því að í
slysinu á Mosfellsheiði fyrr í vik-
unni hafi þorri farþeganna verið frá
Kína, sem hafi kallað á viðbrögð til
dæmis vegna túlkaþjónustu. Því og
fleiru hafi verið sinnt úr stjórnstöð-
inni, þangað sem fólk frá Landspít-
alanum, Rauða krossinum, björg-
unarsveitum og fleiri komu inn.
Samhæfð upplýsingakerfi og fjar-
skiptabúnaður skipti miklu og bak-
landið hafi verið samhæfingar-
miðstöð almannavarnadeildar
Ríkislögreglustjóra sem sinnir land-
inu öllu. „En auðvitað skipti mestu
að fólk var þjálfað og þekktist.
Flugslysaæfingin á Reykjavíkur-
flugvelli nú í byrjun mánaðarins
reynist þýðingarmikil og rútuslysið
var eldskírn,“ segir Jón Viðar að
síðustu.
Ein stjórnstöð og góð yfirsýn
Aðgerðum lögreglu og slökkviliðs á höfuðborgarsvæðinu nú stýrt frá einum stað Samvinna í
Skógarhlíð um almannavarnir Gildi stjórnstöðvarinnar sannaði sig strax Margir studdu verkefnið
Morgunblaðið/Júlíus
Samstarf Ágúst Svansson aðalvarðstjóri aðgerðadeildar lögreglu, Sigríður Björk Guðjónsdóttir lögreglustjóri,
Elva Tryggvadóttir frá björgunarsveitunum og Jón Viðar Matthíasson slökkviliðsstjóri í stjórnstöðinni í Skógarhlíð.
Morgunblaðið/Júlíus
Hjálp Björgunarstarf vegna slyssins á Mosfellsheiði kallaði á aðgerðir
margra. Í stjórnstöðinni voru strengir stilltir og aðgerðir samhæfðar.
„Nýja stjórnstöðin auðveldar allt
starf lögreglu, slökkviliðs og ann-
arra. Þjónustustigið hækkar og
fólk hér verður þjálfað til sam-
starfs í návígi, það er eftir áætl-
unum og þróuðum verkferlum,“
segir Ágúst Svansson, aðalvarð-
stjóri í aðgerðardeild Lögregl-
unnar á höfuðborgarsvæðinu. Að
baki á Ágúst 35 ár í lögreglunni
og segist hann til fjölda ára hafa
talað fyrir því að stjórnstöð sem
þessari yrði komið upp.
Kerfið sem byggt er á í stjórn-
stöðinni nefnist SÁBF, það er
Stjórnun, áætlun, bjargir og fram-
kvæmdir. Kerfið er þrautreynt og
það – ásamt aðstöðunni nýju –
segir Ágúst að komi samvinnu
lögreglu og björgunaraðila á Ís-
landi í fremstu röð. „Mér finnst
sem við sem að þessum málum
störfum sjáum nú loks til sólar.
Aðstaðan er svo miklu betri og
hægt að skipuleggja allar nauð-
synlegar aðgerðir í návígi fólks
sem kann að vinna saman,“ segir
Ágúst.
Elva Tryggvadóttir er formaður
svæðisstjórnar Slysavarnafélags-
ins Landsbjargar á höfuðborgar-
svæðinu. Fólk frá félaginu tók
þátt í undirbúningi við að koma
stjórnstöðinni upp, enda gegna
björgunarsveitirnar mikilvægu
hlutverki í mörgum verkefnum
sem lögreglan og slökkviliðið
sinna.
„Í gegnum hefur samstarf við-
bragðsaðila sífellt verið að aukast
og ósýnilegir múrar milli fólks
fallið. Með stjórnstöðinni skapast
nálgð í samstarfi, boðleiðirnar
verða styttri, þolendur í erfiðum
málum ættu alltaf að fá bestu
þjónustu, sem er lykilatriði.“
Boðleiðirnar verða styttri
NÁIÐ SAMSTARF OG ÞRÓAÐIR VERKFERLAR