Morgunblaðið - 29.10.2016, Síða 40

Morgunblaðið - 29.10.2016, Síða 40
40 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2016 VIÐ ERUM AÐ STANDA OKKUR! AFNÁM TOLLA SKILAR SÉR TIL NEYTENDA VERÐ ÁÐUR 12.995 VERÐ NÚ 10.995 SKECHERS SPARKLE SPELL BARNAKULDASKÓR Sigurður Bogi Sævarsson Júlíus Sigurjónsson Ný stjórnstöð aðgerðarstjórnar höfuðborgarsvæðisins sem nú er verið að taka í gagnið þykir hafa sannað gildi sitt strax í fyrsta verk- efni. Stöðin er rekin á ábyrgð og vegum Slökkviliðs höfuðborgar- svæðisins (SHS) og Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu (LRH) og það- an var björgunaraðgerðum vegna rútuslyssins á Mosfellsheiði fyrr í vikunni stýrt. Stjórnstöðin er við Skógarhlíð í Reykjavík og þar munu viðbragðsaðilar samræma vinnu sína þegar vá steðjar að. Auk slökkviliðs og lögreglu sitja í að- gerðastjórn fulltrúar Rauða kross- ins, Landspítalans, Slysavarna- félagsins Landsbjargar og aðrir þeir er koma að aðgerðum hverju sinni. Aðstaðan í stjórnstöðinni nýju, sem Morgunblaðið kynnti sér í vik- unni, er mjög fullkomin. Upplýs- inga- og fjarskiptakerfi eru sam- tengd og í gegnum myndavélar á útkallabílum er hægt að sjá að- stæður á vettvangi og bregðast við samkvæmt því. Þá eru Neyðarlínan, Landsbjörg, Vaktstöð siglinga, Fjarskiptamiðstöð lögreglu, Al- mannavarnadeild ríkislögreglu- stjóra, Landhelgisgæslan og Sam- hæfingarstöð almannavarna undir sama þaki í Björgunarmiðstöðinni við Skógarhlíð, sem skapar greiða gangvegi. Sólarhringsvakt og fullkomin tæki „Hér er vagga viðbragðs- og samhæfingar og hér er unnið sam- ræmt starf í þágu almennings. Þetta módel hefur vakið mikla at- hygli og margir komið að utan til að kynna sér það. Samvinna við- bragðsaðilanna á einum stað hér þykir eftirtektarverð, en slíkt starf hefur reynst ógerlegt víða erlend- is,“ segir Sigríður Björk Guðjóns- dóttir, lögreglustjóri á höfuðborgar- svæðinu. Lengi hefur verið í deiglu að koma upp stjórnstöð sem þessari. Sigríður Björk segir að við stefnu- mótun LRH á undanförnum tveim- ur árum hafi komið í ljós að leggja þyrfti meiri áherslu á þátt almanna- varna hjá embættinu og stjórn- stöðin nýja tengist því. Í upphafi verður sá háttur hafður á að í stöð- inni verður varðstjóri slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins á sólar- hringsvakt og lögreglan stefnir á hið sama þegar fjárhagur og mannafli leyfir. Uppsetning stöðvarinnar kostar tugi milljóna króna. Ber þess þá að geta að Faxaflóahafnir, Isavia og fleiri lögðu verkefninu til verulega fjármuni til tækja- og búnaðar- kaupa. Þá lagði Ríkislögreglustjóri til húsnæði í Skógarhlíð, sem var forsenda fyrir því að þetta væri gerlegt. Einnig hefur almanna- varnaefnd höfuðborgarsvæðisins stutt verkefnið. Neyðarlínan kom að uppsetningu stöðvarinnar með fullkomnum tækjum og búnaði og hafa sveitarfélögin á höfuð- borgarsvæðinu einnig stutt verk- efnið. Gott innlegg í traust samstarf „Þessi aðstaða er gott innlegg í samstarf slökkviliðs og lögreglu og fleiri. Hér verður fólk í sama rými, og þegar tengsl og traust er til staðar ætti björgunarstarf að verða auðveldara,“ segir Sigríður Björk. Hún getur þess að vísir að stjórn- stöð hafi verið kominn áður á lög- reglustöðinni við Hverfisgötu. Það- an var aðgerðum til dæmis stýrt eftir bankarán í Borgartúni seint á síðasta ári og nokkrum málum eftir það. Hins vegar hefur ekki verið aðstaða fyrir alla aðgerðarstjórn höfuðborgarsvæðisins á einum og sama stað fyrr en nú. „Ávinningur lögreglunnar er einnig sá að úr einni stjórnstöð fæst góð yfirsýn á allt höfuðborgar- svæðið. Við getum stillt saman strengi og mannskap af öllum stöðvum þegar verkefnin krefjast. Að einhver einn sé til svara hjá lög- reglunni á hverjum tíma og sjái yfir sviðið allt í að gera starfið mark- vissara. Með þessu ættum við líka að geta sinnt fjölmiðlum betur. Í raun tel ég þetta vera hluta af nú- tímavæðingu lögregluembættisins.“ Fjölbreytt og flókin verkefni Jón Viðar Matthíasson slökkvi- liðsstjóri segir nýju stjórnstöðina munu án efa gera samstarf manna hans við lögregluna betra. „Við vinnum náið saman og verkefnin verða æ fjölbreyttari og flóknari. Almannavarnaástand getur til dæmis verið flugslys, stórir elds- voðar, náttúruvá eða langvarandi rafmagnsleysi. Einnig vá um borð í skemmtiferðaskipunum sem hingað koma inn, jafnvel með þúsundir far- þega um borð. Svona mætti áfram telja,“ segir hann og heldur áfram: „Þó er rétt að taka fram að svona aðstæður hafa aldrei komið upp. Altæku almannavarnaástandi í Reykjavík hefur aldrei verið lýst yf- ir, sem betur fer. Verkefnin hafa jafnan verið minni hægt að ráða við þau. “ Jón Viðar vekur athygli á því að í slysinu á Mosfellsheiði fyrr í vik- unni hafi þorri farþeganna verið frá Kína, sem hafi kallað á viðbrögð til dæmis vegna túlkaþjónustu. Því og fleiru hafi verið sinnt úr stjórnstöð- inni, þangað sem fólk frá Landspít- alanum, Rauða krossinum, björg- unarsveitum og fleiri komu inn. Samhæfð upplýsingakerfi og fjar- skiptabúnaður skipti miklu og bak- landið hafi verið samhæfingar- miðstöð almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra sem sinnir land- inu öllu. „En auðvitað skipti mestu að fólk var þjálfað og þekktist. Flugslysaæfingin á Reykjavíkur- flugvelli nú í byrjun mánaðarins reynist þýðingarmikil og rútuslysið var eldskírn,“ segir Jón Viðar að síðustu. Ein stjórnstöð og góð yfirsýn  Aðgerðum lögreglu og slökkviliðs á höfuðborgarsvæðinu nú stýrt frá einum stað  Samvinna í Skógarhlíð um almannavarnir  Gildi stjórnstöðvarinnar sannaði sig strax  Margir studdu verkefnið Morgunblaðið/Júlíus Samstarf Ágúst Svansson aðalvarðstjóri aðgerðadeildar lögreglu, Sigríður Björk Guðjónsdóttir lögreglustjóri, Elva Tryggvadóttir frá björgunarsveitunum og Jón Viðar Matthíasson slökkviliðsstjóri í stjórnstöðinni í Skógarhlíð. Morgunblaðið/Júlíus Hjálp Björgunarstarf vegna slyssins á Mosfellsheiði kallaði á aðgerðir margra. Í stjórnstöðinni voru strengir stilltir og aðgerðir samhæfðar. „Nýja stjórnstöðin auðveldar allt starf lögreglu, slökkviliðs og ann- arra. Þjónustustigið hækkar og fólk hér verður þjálfað til sam- starfs í návígi, það er eftir áætl- unum og þróuðum verkferlum,“ segir Ágúst Svansson, aðalvarð- stjóri í aðgerðardeild Lögregl- unnar á höfuðborgarsvæðinu. Að baki á Ágúst 35 ár í lögreglunni og segist hann til fjölda ára hafa talað fyrir því að stjórnstöð sem þessari yrði komið upp. Kerfið sem byggt er á í stjórn- stöðinni nefnist SÁBF, það er Stjórnun, áætlun, bjargir og fram- kvæmdir. Kerfið er þrautreynt og það – ásamt aðstöðunni nýju – segir Ágúst að komi samvinnu lögreglu og björgunaraðila á Ís- landi í fremstu röð. „Mér finnst sem við sem að þessum málum störfum sjáum nú loks til sólar. Aðstaðan er svo miklu betri og hægt að skipuleggja allar nauð- synlegar aðgerðir í návígi fólks sem kann að vinna saman,“ segir Ágúst. Elva Tryggvadóttir er formaður svæðisstjórnar Slysavarnafélags- ins Landsbjargar á höfuðborgar- svæðinu. Fólk frá félaginu tók þátt í undirbúningi við að koma stjórnstöðinni upp, enda gegna björgunarsveitirnar mikilvægu hlutverki í mörgum verkefnum sem lögreglan og slökkviliðið sinna. „Í gegnum hefur samstarf við- bragðsaðila sífellt verið að aukast og ósýnilegir múrar milli fólks fallið. Með stjórnstöðinni skapast nálgð í samstarfi, boðleiðirnar verða styttri, þolendur í erfiðum málum ættu alltaf að fá bestu þjónustu, sem er lykilatriði.“ Boðleiðirnar verða styttri NÁIÐ SAMSTARF OG ÞRÓAÐIR VERKFERLAR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.