Morgunblaðið - 29.10.2016, Side 44
44 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2016
BAKSVIÐ
Ingólfur Sigurðsson
„Ég vil að liðið mitt sé með boltann
allan leikinn,“ sagði Spánverjinn
Pep Guardiola eftir að hafa stýrt
þýsku meisturunum í Bayern
München til sigurs gegn Arsenal í
Meistaradeildinni á síðasta tímabili.
„Fólk segir að það sé ekki endilega
mikilvægast í fótbolta að halda bolt-
anum innan liðsins en fyrir mér þá
er það mikilvægast. Fyrsta skrefið
er að halda boltanum innan liðsins
og þá er hægt að huga að næstu
skrefum. Ef liðið þitt er með bolt-
ann áttu möguleika á að skora og
andstæðingurinn skorar ekki þegar
þú ert með boltann.“
Svo einfalt er það. Eða hvað?
Manchester City vann tíu af
fyrstu tólf leikjum sínum í öllum
keppnum á þessu tímabli en fyrsti
tapleikurinn kom í tólfta leik þegar
Tottenham sigraði það 2-0. Síðan
hafa úrslitin látið á sér standa en
þegar tæplega fjórðungur er búinn
af ensku úrvalsdeildinni vermir
Manchester City samt ennþá topp-
sæti deildarinnar með 20 stig, á
hagstæðari markamun en Arsenal
og Liverpool.
Maðurinn á bakvið léttleikandi og
orkumikið Manchester City-liðið er
hinn spænski Pep Guardiola sem
tók við stjórnartaumunum fyrr í
sumar eftir að hafa náð einstökum
árangri með Bayern München í
Þýskalandi og hjá uppeldisfélagi
sínu, Barcelona á Spáni. Guardiola
er óumdeilanlega meðal færustu
þjálfara heimsins og er óhræddur
að fara eigin leiðir, sem byggðar
eru að stórum hluta á hugmynda-
fræði hollensku goðsagnarinnar
Johan Cruyff. Spánverjinn er þó
sannarlega ekki allra, einhverjum
finnst boltinn sem liðin hans leika
leiðinlegur, jafnvel tilgerðarlegur,
en aðrir líta á sköpunarverk hans
sem hreina list. Guardiola vill að lið-
ið sitt spili sig í gegnum andstæð-
inginn og vinni boltann jafnharðan
aftur er það missir hann.
Múgæsing í Manchester
Eftir að hafa unnið sjö titla á
þremur árum í Þýskalandi skrifaði
Guardiola undir samning við
ljósbláa liðið í Manchester-borg.
Spánverjinn hafði margoft verið
orðaður við starfið eftir að Txiki
Begiristain var ráðinn yfirmaður
knattspyrnumála hjá Manchester
City árið 2012. Txiki er ekki aðeins
góðvinur Pep heldur einnig sá sem
réð hann til Barcelona sumarið
2008, þá ungan og óharðnaðan, tók
hann fram yfir José Mourinho en
hann hafði þá meðal annars unnið
Meistaradeildina og ensku úrvals-
deildina. Guardiola fór ekki leynt
með þá staðreynd að væri það ekki
fyrir tilstuðlan Txiki hefði hann lík-
legast ekki gerst þjálfari City-
liðsins.
Stuðningsmenn City voru hæst-
ánægðir þegar ljóst var að Guar-
diola myndi stýra liðinu. Þrátt fyrir
að hafa eytt fúlgu fjár undanfarin ár
hefur liðið átt við ramman reip að
draga í Meistaradeildinni og tvö
tímabil eru síðan það lyfti Eng-
landsmeistaratitlinum síðast, þá
með Manuel Pellegrini við stjórn-
völinn. Eftirvænting stuðnings-
manna lýsti sér best þegar Guar-
diola var formlega kynntur til starfa
í sumar á götum Manchester. Það
varð ekki þverfótað fyrir æstum
áhangendum þegar Spánverjinn
heilsaði í fyrsta skipti, kumpánlega
upp á sviði með hljóðnema í hend-
inni, og var spurður spjörunum úr
um nýjasta verkefni sitt.
„Ég mun reyna að vinna leiki og
byggja upp sjálfstraust leikmanna.
Ég vil að leikmenn mínir átti sig á
því að þeir geti treyst mér. Það er
fyrsta skrefið fyrir mér,“ sagði
Spánverjinn á ágætri ensku en
hann tók tungumálið föstum tökum
þegar hann dvaldist í New York til
að hlaða batteríin eftir glæst ár á
Spáni.
Fjölmiðlar veittu undirbúnings-
tímabili Manchester City sér-
staklega mikla athygli þetta sum-
arið. Pep hefur orð á sér fyrir
nýstárlegar aðferðir við að koma
leikmönnum sínum í gott líkamlegt
form en hann lætur þá hvorki
hlaupa án bolta né stunda lyftinga-
æfingar. Allt er gert með bolta á
tánum.
Of þungir leikmenn
í skammarkrókinn
Fyrsta verk Guardiola á undir-
búningstímabilinu var að létta leik-
menn sína, jafnvel þá sem litu út
fyrir að mega vart vera léttari. Mat-
aræðið var tekið í gegn og því þurfti
tómatsósan að víkja fyrir hollari af-
urðum í mötuneytinu þar sem eng-
inn óþarfur sykur er leyfður. Engar
pítsur eru á boðstólum eftir leiki.
Hann vill að liðið sitt spili hátt upp
á vellinum og pressi andstæðinginn
í þeirri von að vinna boltann sem
fyrst og til þess að framkvæma það
þurfa leikmennirnir að vera léttir
og snöggir. Slík hlaup krefjast mik-
illar orku.
Nokkrir leikmenn mættu til æf-
inga í meiri holdum en góðu hófu
gegnir. Þeirra á meðal Yaya Touré
og Samir Nasri. Það veit ekki á gott
vegna þess að undir stjórn Guar-
diola æfa þeir sem eru of þungir
ekki með aðalliðinu heldur á sér-
æfingum undir stjórn þol- og
styrktarþjálfara. Það er ekki gert
vegna útlitsdýrkunar heldur trúir
Guardiola því að of þungir leikmenn
meiðist frekar en þeir í toppformi.
Og engu skiptir hvort leikmennirnir
eru stjörnur á borð við þá eða leik-
menn á fyrstu metrum ferils síns.
Hvorki Touré né Nasri náðu að
heilla stjórann á undirbúnings-
tímabilinu, Touré kemst varla í 18-
manna leikmannahópinn og Nasri
var lánaður til Sevilla.
Mike Summerbee, sem lék með
Manchester City frá 1965 til 1975,
fylgist náið með félaginu og var
spenntur að sjá hvernig sá spænski
myndi ná til leikmannahóps síns.
„Ég er búinn að horfa á þrjár, fjór-
ar æfingar og tempóið er mjög mik-
ið. Ég er virkilega hrifinn. Þeir
pressa við hvert tækifæri. Ákafinn
er mikill, þeir eru virkilega agres-
sífir. Þegar æft er af slíkum ákafa
er ekki spurning um árangur.“
Summerbee sagði einnig að Guar-
diola væri mikið í mun að minnka
meiðslatíðni í herbúðum liðsins. Í
fyrra þurftu læknar og sjúkraþjálf-
arar liðsins að meðhöndla 81
meiðsli. „Leikmenn teygja mun
meira fyrir og eftir æfingar en áður
til þess að sporna við meiðslum.“
Auk þess að koma leikmönnum í
form fyrir langt tímabil vann Guar-
diola hörðum höndum að innleið-
ingu hugmyndafræði sinnar. Farið
var yfir taktísk atriði á hverri æf-
ingu og lagði þjálfarinn ríkulega
áherslu á að leikmenn tileinkuðu sér
hugmyndir hans fljótt og vel.
„Ég hef lært meira á þessum
þremur vikum en á öllum ferlinum,“
sagði Fabian Delph, miðjumaður
enska landsliðsins, eftir þrjár vikur
undir stjórn Guardiola. „Þetta eru
stór orð en ég lýg engu. Leikkerfin
sem hann kennir okkur eru ótrúleg
og ákafinn á æfingum er nánast
ógnvekjandi. Æfingarnar eru virki-
lega erfiðar en engu að síður mjög
góðar.“
Endurfæddur Sterling
Óvissa um framtíð Joe Hart, sem
staðið hefur á milli stanganna hjá
City undanfarin sex tímabil, var
mikið í umræðunni á Bretlands-
eyjum í sumar. Enski landsliðs-
markvörðurinn þótti ekki henta
leikstíl Guardiola þar sem Spánverj-
inn vill að markmaðurinn sinn geti
tekið þátt í uppspili liðsins. Enginn
efast um að Hart sé prýðilegur
markmaður en sendingargeta hans
verður seint talin hans helsti kost-
ur. Eftir nokkurra vikna vangavelt-
ur fór Joe Hart á láni til ítalska liðs-
ins Torino en fáeinum dögum fyrr
var Claudio Bravo keyptur fyrir 17
milljónir punda frá Barcelona.
„Ég er hérna til þess að taka
ákvarðanir. Ég geri mörg mistök,“
útskýrði Guardiola auðmjúkur fyrir
blaðamönnum. „Ég átta mig á því
að Hart er mikils metinn hjá félag-
inu. Sumir munu eflaust vera sam-
mála þessari ákvörðun en aðrir eru
það ekki. Ég hef ekki alltaf rétt fyr-
ir mér en ég er sá sem verður að
taka ákvarðanir. Þess vegna réð fé-
lagið mig sem þjálfara.“
Guardiola styrkti varnarleikinn
með því að kaupa hinn 22 ára gamla
John Stones frá Everton fyrir tæp-
lega 50 milljónir punda. Stones hef-
ur lengi þótt einn efnilegasti mið-
vörður Englendinga en umfram allt
er hann öryggið uppmálað með
boltann á tánum og snjall í að spila
honum fram á við. Stones hefur fall-
ið eins og flís við rass að leikstíl
Andstæðingurinn skorar ekki
þegar þú ert með boltann
Pep Guardiola er með nýja liðið sitt, Manchester City, á toppi ensku úrvalsdeildarinnar
AFP
Mark Leikmenn Manchester City hafa fagnað ófáum mörkunum í haust og eru að líkindum hvergi nærri hættir.