Morgunblaðið - 29.10.2016, Side 51
FRÉTTIR 51Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2016
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Talið er að kosningarnar til öldunga-
deildar Bandaríkjaþings 8. nóvem-
ber verði miklu tvísýnni en forseta-
kjörið sem fer fram sama dag.
Síðustu fylgiskannanir benda til þess
að repúblikanar missi meirihlutann
sem þeir fengu í öldungadeildinni
fyrir tveimur árum og meirihluti
þeirra í fulltrúadeildinni minnki.
Kosið verður um öll 435 sæti full-
trúadeildarinnar og 34 af 100 sætum
öldungadeildarinnar. Repúblikanar
eru núna með 24 af öldungadeildar-
sætunum sem barist er um og demó-
kratar tíu.
Þurfa að ná fjórum sætum
af repúblikönum
Repúblikanar eru núna með 54
sæti í öldungadeildinni og demókrat-
ar 44, en tveir óflokksbundnir þing-
menn hafa fylgt demókrötum að
málum. Til að fella meirihlutann
þurfa demókratar því að ná a.m.k.
fjórum sætum af repúblikönum ef
Hillary Clinton verður kjörin forseti.
Fái repúblikanar helming þingsæt-
anna, eða 50, en Hillary Clinton for-
setaembættið verður varaforseta-
efni hennar, Tim Kaine, með
oddaatkvæði í öldungadeildinni
vegna þess að varaforseti Bandaríkj-
anna er jafnframt forseti deildarinn-
ar.
Fréttaveitan Reuters hefur eftir
nokkrum aðstoðarmönnum öldunga-
deildarþingmanna í báðum stóru
flokkunum að miklar líkur séu á því
að repúblikanar missi meirihluta
sinn í deildinni. Einn repúblikan-
anna taldi jafnvel öruggt að demó-
krötum tækist að fella meirihlutann
og skírskotaði til nýlegrar fylgis-
könnunar sem bendir til þess að
repúblikanar missi sex sæti í öld-
ungadeildinni: sæti Pennsylvaníu,
Illinois, Wisconsin, New Hampshire,
Norður-Karólínu og Missouri. Ann-
ar af aðstoðarmönnum þingmanna
repúblikana var bjartsýnni á að
flokkurinn héldi meirihlutanum en
viðurkenndi að staða hans væri erfið
vegna óvinsælda Donalds Trump,
forsetaefnis flokksins. „Ef við höld-
um ekki meirihlutanum verður það
vegna Donalds Trump,“ sagði hann.
Talið er að alls geti níu sæti í deild-
inni færst á milli flokka í kosning-
unum. Cook Political Report, vefrit
um stjórnmál, spáir því að repúblik-
anar missi fimm til sjö sætanna.
Fái demókratar meirihluta í þing-
deildinni hefur það mikla þýðingu
fyrir þá vegna þess að hún hefur m.a.
það hlutverk að staðfesta tilnefning-
ar forsetans í mikilvæg embætti,
m.a. í hæstarétt Bandaríkjanna. Al-
þjóðlegir samningar sem forseti
landsins undirritar öðlast ekki gildi
nema öldungadeildin fullgildi þá.
Repúblikanar með traustari
meirihluta í fulltrúadeildinni
Ólíklegra er að demókrötum tak-
ist að fella meirihluta repúblikana í
fulltrúadeild þingsins sem er með
alls 435 atkvæðisbæra þingmenn. Til
þess þurfa demókratar að bæta við
sig 30 sætum í deildinni en ef marka
má síðustu kannanir er líklegast að
flokkurinn nái 15 til 18 sætum af
repúblikönum. Talið er að demókrat-
ar geti í mesta lagi gert sér vonir um
að bæta við sig 20 til 22 sætum
í deildinni, að sögn Chads
Pergram, fréttaskýranda
Fox News. Talið er líklegast
að demókratar bæti við
sig sætum í Colorado,
Illinois, New Jersey
og Flórída
en repú-
blikanar
taki af þeim sæti
í Nebraska.
Líkur á að
repúblikanar
missi meirihluta
Stefnir í að demókratar bæti við sig
fimm til sjö sætum í öldungadeildinni
Kannanir benda til þess að 9 af
34 sætum deildarinnar geti færst
á milli flokka í þingkosningunum
Tvísýn barátta um öldungadeildina
Heimild: RealClearPolitics *Báðir óháðu þingmennirnir í deildinni hafa fylgt demókrötum að málum.
Öldungadeildin
Missouri
Demókratar
Óflokksbundnir*
Repúblikanar
Demókratar með
verulegt forskot
Wisconsin
Russ Feingold
fyrrv. öldunga-
deildarþm.
Ron Johnson
öldunga-
deildarþm.
Illinois
Tammy Duckworth
fulltrúadeildarþm.
Mark Kirk
öldunga-
deildarþm.
Jason Kander
ríkisritari
Missouri
Roy Blunt
öldunga-
deildarþm.
Flórída
Norður-Karólína
Nevada
Catherine
Cortez Masto
fyrrv. yfirsak-
sóknari Nevada
Joe Heck
fulltrúa-
deildarþm.
New Hampshire
Maggie Hassan
ríkisstjóri
Kelly Ayotte
öldunga-
deildarþm.
Pennsylvanía
Katie McGinty
fyrrv. skrifstofu-
stjóri ríkisstjóra
Pat Toomey
öldunga-
deildarþm.
Deborah Ross
fyrrv. þingmaður
í ríkisþinginu
Richard Burr
öldunga-
deildarþm.
Patrick Murphy
fulltrúadeildarþm.
Marco Rubio
öldunga-
deildarþm.
Repúblikanar missa meirihluta sinn í öldungadeild Bandaríkjaþings
ef þeir tapa fjórum þingsætum eða fleiri í kosningunum 8. nóvember
2
34
30
10 24
100
sæti
Sæti
repúblikana
Sæti
demókrata
Indiana
Evan Bayh
fyrrv. öldunga-
deildarþm.
Todd Young
fulltrúa-
deildarþm.
Sækist eftir
endurkjöri
Kosið verður um 34 sæti
Donald Trump sagði á kosningafundi í fyrradag að
stefna Hillary Clinton væri svo slæm að ástæða væri til
að aflýsa forsetakosningunum 8. nóvember og lýsa
hann sjálfkjörinn forseta. „Ég hugsa bara upphátt
núna, en við ættum bara að aflýsa kosningunum og láta
Trump fá embættið,“ sagði Trump á kosningafundi í
Ohio, einu ríkjanna sem talin eru geta ráðið úrslitum í
kosningunum.
Hillary Clinton er að meðaltali með 4,4 prósentu-
stiga forskot á Donald Trump í síðustu skoðana-
könnunum sem ná til alls landsins. Hún er
einnig með forskot í flestum af lykilríkjunum
sem talin eru geta ráðið úrslitum. Sam-
kvæmt könnun á vef Politico telja þó
um 70% repúblikana að fylgi Don-
alds Trump sé í raun meira í lykilríkj-
unum en kannanirnar gefi til kynna
vegna þess að sumir kjósendur vilji ekki viðurkenna að
þeir ætli að kjósa þennan umdeilda auðkýfing í forseta-
embættið. Nýleg könnun Reuters bendir samt til þess
að 41% repúblikana telji að Hillary Clinton vinni for-
setakosningarnar en 40% spái Trump sigri. Mánuði áð-
ur töldu 58% repúblikana að forsetaefni þeirra færi
með sigur af hólmi.
Viðtöl The New York Times við stuðningsmenn
Donalds Trump á kosningafundum hans síðustu daga
benda til þess að þeir séu ekki eins sigurvissir og áður.
Sumir þeirra sögðu að óeirðir gætu blossað upp í land-
inu biði Trump ósigur fyrir Hillary Clinton. Einn þeirra
spáði „öðru byltingarstríði“ og skírskotaði til frelsis-
stríðs Bandaríkjanna 1775-1783. „Fólkið mun marséra
að ríkisþinghúsunum,“ hefur The New York Times eftir
honum. „Fólk mun gera allt sem þarf til að koma henni
úr embættinu vegna þess að hún á ekki að gegna því.“
Trump segir að hann ætti að vera sjálfkjörinn
FORSETAEFNI REPÚBLIKANA SEGIR STEFNU CLINTON SVO SLÆMA AÐ AFLÝSA ÆTTI KOSNINGUNUM
Donald
Trump
Hópar uppreisnarmanna í Aleppo í
Sýrlandi hófu í gær sókn gegn
stjórnarher landsins til að reyna að
binda enda á þriggja mánaða um-
sátur um yfirráðasvæði þeirra í
austurhluta borgarinnar. Á meðal
hópanna sem taka þátt í sókninni
eru liðsmenn tveggja hreyfinga ísl-
amista, Ahrar al-Sham og Fateh al-
Sham. A.m.k. fimmtán óbreyttir
borgarar, þeirra á meðal tvö börn,
biðu bana í árásum uppreisnar-
hópanna á vesturhluta Aleppo.
Hundruð manna hafa látið lífið í
loftárásum stjórnarhersins og
Rússa á austurhluta borgarinnar.
Her Rússlands óskaði í gær eftir
leyfi Vladimírs Pútíns forseta til að
hefja árásirnar að nýju eftir tíu
daga hlé, en Pútín sagði að það
væri ekki tímabært.
SÝRLAND
Uppreisnarhópar hefja sókn í Aleppo
AFP
Átök Uppreisnarmenn í Aleppo.
Rodrigo Duterte, forseti Filipps-
eyja, hefur getið sér orð fyrir að
vera mjög orðljótur maður en hann
segist nú hafa lofað Guði að hætta
að blóta eða viðhafa ljótt orðbragð.
Duterte sagði þegar hann kom til
heimaborgar sinnar, Davao, eftir
ferð til Japans að Guð hefði talað til
hans í flugvélinni. „Ég heyrði rödd
sem sagði mér að hætta að blóta,
annars myndi vélin hrapa, þannig
að ég lofaði að hætta því,“ sagði
forsetinn á flugvellinum í Davao.
Duterte hefur meðal annars kall-
að Barack Obama Bandaríkja-
forseta „hóru-
son“ sem hann
vonaði að „færi
til helvítis“.
Ástæðan var sú
að Obama hafði
gagnrýnt aftök-
ur án dóms og
laga á þúsundum
meintra eitur-
lyfjasala og fíkni-
efnaneytenda á
Filippseyjum, þeirra á meðal börn-
um sem urðu á vegi dauðasveit-
anna.
FILIPPSEYJAR
Kveðst hafa lofað Guði að hætta að blóta
Rodrigo Duterte
forseti.
Við önnumst sölu á versluninni
Ice boost and Burgers í Mosfellsbæ
Verslunin hefur verið starfrækt í áraraðir og notið mikilla vinsælda,
mjög góð velta. Gott tækifæri í verslunarrekstri.
Sanngjarnt verð.
Lækjargötu 2, 2. hæð | Sími 546 1100 | investis@investis.is