Morgunblaðið - 29.10.2016, Qupperneq 58
58 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2016
SÓLTÚN KYNNIR
öRYggIS- og þjÓNuSTuíbÚðIR
Um íbúðirnar
Nýjar og bjartar tveggja til fjögurra herbergja
íbúðir í fimm hæða húsi, að meðaltali um 95 m2
að stærð, til sölu fyrir 60 ára og eldri. Yfirbyggðar
suðursvalir. Stæði í upphitaðri bílageymslu, auk
þess sem geymsla fylgir öllum íbúðum.
íbúðirnar eru staðsettar í Sóltúni 1–3, beint
á móti Sóltúni hjúkrunarheimili. Frábær
staðsetning miðsvæðis og stutt í alla þjónustu
í nágrenninu.
Kynntu þér íbúðirnar, verðskrá og aðrar
upplýsingar á www.soltunibudir.is eða hafðu
samband við okkur og bókaðu fund.
Sóltún 1 ehf | Laugavegi 182 | 105 Reykjavík
Sími 563 1440 | soltunibudir@soltunibudir.is | www.soltunibudir.is
Po
RT
hö
nn
un
Til sölu fyrir 60 ára og eldri
í Sóltúni 1-3, Reykjavík.
Verð frá kr. 39.800.000.
íbúðirnar verða afhentar vorið 2017
Guðmundur Kjartansson ogEinar Hjalti Jensson erufulltrúar Íslands í efstaflokki Skákþings Norður-
landa sem stendur yfir þessa dagana
í Sastamala í Finnlandi. Mótið fer
fram í þrem flokkum þar af tveimur
öldungaflokkkum, 50 ára og eldri og
65 ára eldri. Í síðarnefnda flokknum
tefla tveir Íslendingar, Gunnar
Finnlaugsson og Sigurður H. Jóns-
son.
Í efsta flokki tefla 10 skákmenn og
er Norðmaðurinn Jon Ludwig Ham-
mer stigahæstur. Guðmundur Kjart-
ansson gerir nú atlögu að 2.500 elo-
stiga „múrnum „ en með því upp-
fyllir hann þau skilyrði sem til þarf
til að hljóta útnefningu FIDE sem
stórmeistari. Hann tapaði fyrir Sví-
anum Blomqvist í 6. umferð og er
um miðjan hóp keppenda. Staðan
efstu manna þegar þrjár umferðir
eru eftir:
1. Erik Blomqvist 5 v. (af 6 ) 2.-3.
Jon Ludwig Hammer og Martin
Percivaldi 4½ v. 4. Axel Smith 4 v.
5.-6. Guðmundur Kjartansson og
Mikla Kartunen 3 v.
Besta skák Guðmundar kom í 4.
umferð:
NM 2016:
Johan Salomon – Guðmundur
Kjartansson
Vængtafl
1. c4 e6 2. g3 d5 3. Bg2 Rf6 4. Rf3
Be7 5. 0-0 0-0 6. b3 c5 7. Bb2 Rc6 8.
e3 d4 9. exd4 cxd4 10. He1 He8 11.
Re5?!
Í þessari byrjun sem vel mætti
kalla Benony-vörn með skiptum lit-
um er sennilega affararsælast að
fara sér hægt, 11. d3 var traustara.
11. … Rxe5 12. Hxe5 Rd7 13. He1
e5 14. Ba3 a5 15. d3 Bxa3 16. Rxa3
Rc5 17. Bd5 Bf5 18. Df3 Dd7 19.
Had1
Smá leikbrella sem svartur fellur
ekki fyrir, 19. .. Bg4? er vitanlega
svarað með 20. Bxf7+! o.s.frv.
19. … He7 20. Hd2 Bg4 21. Dg2
Kh8 22. f3 Be6 23. Bxe6 Hxe6 24.
Rc2 f5 25. b4
Þessi leikur skilar ekki neinu en
það er erfitt að finna einhverja áætl-
un.
25. … axb4 26. Rxb4 b5 27. Hc2
e4 28. fxe4 fxe4 29. cxb5 Dxb5 30.
Hec1 He5!
Heldur spennunni í stöðunni.
Einnig var hægt að leika 30. … Rxd3
en eftir 31. a4! Dxb4 32. Hc8+ He8
33. Hxa8 Hxa8 34. Dxe4 á hvítur
góða möguleika á jafntefli.
31. Hc4 Hae8 32. dxe4 Hxe4
Gengur beint til verks , 33. Hxc5
strandar á 33. … He1+ og vinnur en
nú gat hvítur varist með 33. Df1! þar
sem drottningin valdar d3-reitinn.
33. Df2 d3! 34. Hxe4
Eða 34. dxc5 Dxc5 35. Hxc5 d2
o.s.frv.
34. … Rxe4 35. Dd4 d2 36. Hf1
36. … Rxg3!
Lagleg lokaflétta.
37. hxg3 Dxf1+ 39. Kxf1 He1+
40. Kf2 d1(D)
– og hvítur gafst upp.
Magnús Carlsen vann
Nakamura á netinu
Heimsmeistaraeinvígi Magnúsar
Carlsen og Sergei Karkain hefst í
New York 11. nóvember nk. Banda-
ríkjamenn höfðu vonast eftir að mót-
stöðumaður Norðmannsins yrði
annaðhvort Hikaru Nakamura eða
Fabiano Caruana en það fór á annan
veg og í áskorendakeppninni í vor
sigraði Rússinn/Úkraínumaðurinn
Sergei Karjakin.
Magnús hitaði upp fyrir stóra
slaginn með hraðskákeinvígi við
Nakamura sem fram fór sl. fimmtu-
dag. Fyrirkomulagið var með
óvenjulegum hætti; þeir voru báðir
í mynd en sátu ekki augliti til aug-
litis heldur fyrir framan tölvu á hót-
elherbergi og tefldu á netinu alls 25
skákir. Í fyrsta hluta voru tefldar
hraðskákir 5 2 og vann Magnús
5½:3½. Hann hafði einnig betur í
næsta kafla, 5:2, en þá voru tefldar
hraðskákir, 3 2. Í „bullet“ skák-
unum“, 1 1, voru m.a. tefldar þrjár
„Fischer-random“ skákir. Þar náði
Nakamura sér loksins á strik og
vann 5:4. Lokaniðurstaðan var
samt öruggur sigur Magnúsar,
14½:10½.
Hitað upp fyrir
heimsmeistaraeinvígi
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Morgunblaðið/Jón L. Árnason.
„Ópið“ – Guðmundur Kjartansson bregður á leik á brú í Noregi í ágúst 2014.
Ágæti kjósandi.
Nú þegar kosningar
til Alþingis nálgast þá
er ljóst að stjórn-
málamenn lofa öllu
fögru til þess að við
kjósum þá og þeirra
flokk. Á þessum tíma-
mótum er fróðlegt að
líta til þess sem stjórn-
arflokkarnir Sjálf-
stæðisflokkur og
Framsóknarflokkur hafa áorkað síð-
an í júní 2013. Þær tölur sem stuðst
er við hér á eftir er fengnar frá Hag-
stofu Íslands, fjármálaráðuneyti og
Vinnumálastofnun.
Skoðum þetta betur:
Verðbólgan var 3,3% í júní 2013 en
er í dag 1,8%. Þá hefur verðbólga
verið undir verðbólgumarkmiðum
Seðlabankans frá febrúar 2014.
Þetta hefur leitt af sér mikla eigna-
myndun fyrir heimilin, þar með talið
það unga fólk sem tekist hefur að
kaupa sér sína fyrstu íbúð. Þannig
hafa eignir þess hækkað en lánin
nánast staðið í stað. Aukin verðbólga
gæti eytt þeirri eignamyndun.
Skuldir heimila og ríkissjóðs
Skuldir heimilanna í júní 2013
voru 104,3% af vergri þjóðarfram-
leiðslu en eru í dag 81,2% miðað við
sama mælikvarða.
Skuldir ríkissjóðs voru í júní 2013
104,3% af vergri þjóðarframleiðslu
en eru í dag 50,9 % miðað við sama
mælikvarða. Skuldir ríkissjóðs hafa
á þessu tímabili lækkað um 1.168
milljarða. Lækkun lána leiðir til
lægri vaxtagreiðslna sem aftur leiðir
til þess að ríkissjóður er betur í
stakk búinn til þess að ráðast í fram-
kvæmdir eins og byggingu nýs spít-
ala.
Kaupmáttur launa hefur frá því í
júní 2013 aukist um 20,6%. Hér er
um mestu aukningu kaupmáttar
launa á síðustu áratugum að ræða.
Atvinnuleysi – skuldaleiðrétt-
ing
Atvinnuleysi var 6,4% í júní 2013
en er í dag 1,9%. Í Portúgal, Spáni,
Ítalíu og Grikklandi er atvinnuleysi
ungs fólks yfir 25%. Það vita þeir
sem hafa verið atvinnulausir að það
er fátt ömurlegra en að vera án at-
vinnu og vera upp á
aðra kominn með fæði
og húsnæði.
Það er staðreynd að
skuldaleiðrétting nú-
verandi ríkisstjórnar
mun leiða til 150 millj-
arða lækkunar á hús-
næðislánum lands-
manna. Þetta var
kosningaloforð Fram-
sóknarflokksins sem
enginn trúði að staðið
yrði við. En líkt og í Ice-
save-málinu stóð sá flokkur í lapp-
irnar og skilaði þessu loforði í hús.
Samningar við
kröfuhafa bankanna
Samningar við kröfuhafa bank-
anna leiddu til þess að um 660 millj-
arðar koma í ríkissjóð í formi stöð-
ugleikaframlags og annarra
greiðslna. Fram hjá þessu verður
ekki litið. Þetta bætir hag ríkissjóðs
gríðarlega. Öðrum flokkum hafði
ekki hugkvæmst þessi leið.
Jöfnuður í íslensku samfélagi
Við Íslendingar búum í samfélagi
sem tekur mið af velferðarmódeli
Norðurlanda. Það hefur hingað til
verið talið með því besta í heimi.
Samkvæmt nýjustu tölum frá hag-
stofu Evrópusambandsins, Eurosat,
er ekkert Evrópuríki sem býr við
jafn mikinn tekjujöfnuð og Ísland.
Við kjósendur vil ég segja þetta.
Það má ýmislegt segja um þá rík-
isstjórnarflokka sem hafa verið við
völd sl. 3 ár en þessar staðreyndir
hér að ofan tala sínu máli. Fagur-
galar eru nú á hverju horni. En
söngur þeirra getur verið falskur.
Miklu betra er að líta til þess sem
gert hefur verið og meta þau verk
sem unnin hafa verið við mjög erf-
iðar aðstæður.
Verkin tala
Eftir Guðna Á.
Haraldsson
Guðni Á. Haraldsson
»Kaupmáttur launa
hefur frá því í júní
2013 aukist um 20,6%.
Hér er um mestu aukn-
ingu kaupmáttar launa
á síðustu áratugum að
ræða.
Höfundur er hæstaréttarlögmaður.