Morgunblaðið - 29.10.2016, Síða 80

Morgunblaðið - 29.10.2016, Síða 80
80 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2016 ✝ Kristín Guð-björg Bene- diktsdóttir, alltaf kölluð Dídí, fæddist í Bolungarvík 16. september 1941. Hún lést á Hjúkrunar- heimilinu Bergi í Bolungarvík 15. október 2016. Foreldrar Dídíar voru Fjóla Magnús- dóttir, f. 1921, d. 1970, og Bene- dikt Vagn Guðmundsson, f. 1915, d. 1971. Dídí var næstelst tíu systkina, hin voru Ingigerð- ur Maggý Benediktsdóttir, f. 1939, d. 1960, Bára Benedikts- dóttir, f. 1942, Ingunn Guð- munda Benediktsdóttir, f. 1944, d. 1944, Haraldur Guðmunds Benediktsson, f. 1946, Víðir Benediktsson, f. 1948, Lárus Haukur Benediktsson, f. 1949, Jóhanna Freyja Benediktsdótt- ir, f. 1952, Ásrún Benedikts- dóttir, f. 1954, d. 1975, Benedikt Steinn Benediktsson, f. 1956. Dídí giftist Stefáni Helga og búa þau í Reykjavík. Börn þeirra eru Stefán Darri, Sig- urlaug Sara og Ernir. 4) Fjalar Vagn Stefánsson, f. 26. nóvember 1973, í sambúð með Rögnu Dam, f. 3. mars 1976, þau búa í Færeyjum. Börn þeirra eru Stefanía Friða, Andrias og Edith. 5) Dagný Ása Stefánsdóttir, f. 18. júní 1978, í sambúð með Guðbjarna Karlssyni, f. 21. júlí 1972, þau búa í Bolungarvík. Sonur Dagnýjar er Kristinn Hallur Arnarsson. Guðbjarni á fimm börn og eitt barnabarn. Fyrir átti Stefán Sigríði Jak- obínu. Dídí og Stefán skildu ár- ið 1994. Dídí vann fyrstu árin á sjúkraskýli Bolungarvíkur, vann svo í fiski í Bolungarvík þar til hún flutti suður til Reykjavíkur þar sem hún vann við verslunarstörf. Hún flutti síðar á Hellissand þar sem hún vann við fiskvinnslu þar til hún flutti aftur suður. Hún vann síð- ustu árin á Landspítalanum sem aðstoðarkona ljósmæðra á fæð- ingargangi. Þegar hún komst á eftirlaun flutti hún aftur á æskuslóðirnar til Bolungar- víkur árið 2008. Útför Dídíar fer fram frá Hólskirkju í Bolungarvík í dag, 29. október 2016, kl. 14. Bjarnasyni árið 1965 og saman áttu þau fimm börn, þau eru: 1) Elvar Stefáns- son, f. 5. ágúst 1961, hann er kvæntur Elínu Þóru Stefánsdótt- ur, f. 19. september 1965, og eiga þau heima í Bolungar- vík. Þau eiga syn- ina Auðun Jóhann og Emil Una. Fyrir átti Elvar dótturina Fjólu Katrínu, barnabarnabörnin eru fimm. 2) Arnar Bjarni, f. 15. júní 1963 kvæntur Heiðu Jónu Hauksdóttur, f. 25. desember 1964, þau búa í Kópavogi. Arn- ar á fimm börn, fyrst soninn Kristin Ísak en börn Arnars og Heiðu eru Hanna Steina, Helga Rut, Stefán Haukur og Styrmir Máni. Barnabarnabörnin eru sex. 3) Ingigerður Maggý Stefáns- dóttir, f. 1. júní 1966, hún er gift Þór Björnssyni, f. 2. mars 1967, Elsku besta móðir mín, hetj- an mín og fyrirmynd er látin. Það er erfitt að kveðja og stutt í tárin. Minningarnar hrannast upp og veita yl á erfiðum stund- um. Ég ólst upp frjáls í áhyggjulausu umhverfi í faðmi foreldra og systkina þar sem leikvöllurinn var Bolungarvík á milli fjalls og fjöru. Þorpið mitt var endalaus uppspretta leikja og upplifana. Minningarnar eru margar úr æsku. Mamma var dugnaðarforkur til vinnu og byrjaði ung að vinna í fiskvinnslu í Bolungar- vík og lét stóran hluta launa sinna til móður sinnar til að létta undir með rekstri heimilis- ins. Aðeins 17 ára fór hún að vinna á Sjúkraskýlinu í Bolung- arvík og var strax gerð að for- stöðukonu og gegndi því starfi í tvö ár. Eftir það fór hún á síldina á Siglufirði þar sem hún kynntist föður mínum. Hún bjó í Bolung- arvík í 40 ár, fluttist þá suður og var þar meira og minna í 27 ár. Foreldrar mínir skildu 1994. Börnin mín eiga margar minn- ingar með ömmu sinni í Kópa- vogi. Þegar mamma komst á eft- irlaun lét hún loksins langþráð- an draum rætast og flutti aftur á æskuslóðirnar í Bolungarvík þar sem hún keypti sér hús með garði sem hún ræktaði af natni. Mamma var mikið náttúrubarn, elskaði alla útiveru, fór í göngu- túra, hjólaði og synti daglega á meðan hún hafði þrek til. Eftir að hún flutti til Bolungarvíkur fórum við fjölskyldan oft og iðu- lega í heimsókn til hennar og fannst börnunum mínum gott að heimsækja hana þar og upp- lifa lífið í litla þorpinu. Í mars 2015 greindist mamma með sjúkdóminn MND, hún var þá lengi búin að leita skýringa á því þróttleysi sem hafði hrjáð hana. Síðustu árin eyddum við mamma miklum tíma saman þar sem við rædd- um saman, hlógum, grétum og ekki síst í sumar og í haust. Ég er óendanlega þakklát fyrir þessar stundir sem við áttum saman, þær ylja á erfiðum stundum. Í sumar fórum við systkinin með mömmu á draumastaðinn hennar að Gardavatni á Ítalíu og eyddum þar saman viku þar sem við hlógum mikið og sköpuðum með henni dýrmætar minningar. Mamma trúði því að þegar hún yfirgæfi þetta líf tæki við annað líf og betra í „Drauma- landinu“ þar sem engir sjúk- dómar þekktust. Ég trúi því að nú gangi hún þar um frjáls og hamingjusöm og að ég hitti hana þar þegar minn tími kem- ur. Ég man þig – elsku mamma ég man þig alla tíð. Við þraut svo þunga og ramma þú þögul háðir stríð. Sem hetja í kvöl og kvíða þú krýnd varst sigri þeim sem á sér veröld víða og vænni en þennan heim. En þín ég sífellt sakna uns svefninn lokar brá. Og hjá þér vil ég vakna í veröld Drottins þá. Því jarðlífs skeiðið skamma er skjótt á enda hér. Og alltaf á ég, mamma, minn einkavin í þér. Ég veit það verður gaman, það verður heilög stund, að sitja aftur saman sem sátum við í Grund. Þá gróa sorgarsárin og söknuðurinn flýr. Þá þorna tregatárin, og tindrar dagur nýr. Þá ljómar Drottins dagur með dýrð og helgan frið, svo tær og töfrafagur um tveggja heima svið. Þá hverfur raunin ramma sem risti hold og blóð, þá geng ég með þér mamma, um morgunbjarta slóð. Þá geng ég með þér mamma, um morgunbjarta slóð. (Rúnar Kristjánsson.) Ingigerður M. Stefánsdóttir. Kristín Guðbjörg Benediktsdóttir Mikið erum við þakklát fyrir að hafa átt Mumma að. Mummi var einstakur maður. Hann bjó yfir miklu jafnaðargeði og hafði ein- stakt lag á börnum og dýrum. Það var eins og þau skynjuðu það öryggi og þann kærleika sem hann bjó yfir. Ekki ein- ungis barnabörnin skriðu upp í fangið á honum heldur einnig börn sem höfðu aldrei séð hann áður. Þá var stutt í glettnina hjá Mumma og lét hann oft gamminn geisa, sérstaklega þegar hann var innan um barnabörnin. Mummi sýndi okkur öllum gífurlega mikla þolinmæði, kærleika og stuðn- ing í einu og öllu. Níska var ekki til í orðabók Mumma. Mummi var einstaklega gjaf- mildur og örlátur maður. Fyrir um þremur árum þegar Mummi bjó enn heima en var orðinn veikur af alzheimer og park- inson þá kíktum við í heimsókn til hans. Peggý, kona hans, var þá ekki heima. Mummi var að reyna að klæða sig í sokka og sagðist vera að klæða sig því að Peggý ætti afmæli og hann væri að fara í skartgripaverslun til þess að kaupa handa henni Guðmundur Torfa- son Magnússon ✝ GuðmundurTorfason Magnússon fæddist 7. september 1938. Hann lést 15. októ- ber 2016. Útför hans fór fram 24. október 2016. skartgrip. Í fyrsta lagi kom okkur á óvart að hann væri meðvitaður um að Peggý ætti afmæli þennan dag því minnið hans var orðið takmarkað. Eins kom okkur spánskt fyrir sjónir að maður sem varla gat hreyft sig ætlaði að leggja það á sig að fara á stúfana og kaupa afmælisgjöf handa eig- inkonunni. Það endaði með því að við keyrðum hann og studd- um út í skartgripaverslun þar sem hann valdi gullhálsmen handa Peggý. Þetta var Mummi í hnotskurn. Við kveðjum Mumma með kærleik og söknuði og vonum að honum líði vel þar sem hann er staddur nú. Milljón knús og kossar, elsku pabbi, afi og tengdapabbi. Ágúst, Lilja, Írena, Sandra og Ísabella. Minn góði vinur, Mummi, hefur nú yfirgefið okkur. Ég vil nota þetta tækifæri til að þakka honum og fjölskyldu hans fyrir frábæran kunningsskap til margra ára. Við hjónin, Óskar og Sóley, höfum margs að minnast eftir öll þau ár sem við vorum saman og þá sérstaklega í sambandi við golfíþróttina og ýmis ferða- lög sem við fórum saman í og voru þau Mummi og hans dásamlega eiginkona, Petrína, sem gerðu þessar ferðir okkar saman svo ógleymanlegar. Allt- af var Mummi okkar svo ljúfur og kátur og aldrei man ég eftir að hann hafi verið annað en já- kvæður og munum við sakna hans mjög mikið. Margar ferðir fórum við saman til Kanarí og nutum sól- ar og spiluðum golf saman. Einnig fórum við margar ferðir saman til Vestmannaeyja og nokkrar ferðir í kringum landið og spiluðum golf á flestum golf- völlum landsins. En eftirminnislegasta ferð okkar saman var þegar við ferðuðumst saman til Flórída og tókum okkur ferð með skemmtiferðaskipi og heimsótt- um sex eyjar í Karíbahafinu og spiluðum golf á öllum eyjunum. Gerðum við þetta svona í stað þess að taka rútu sem skipið útvegaði til að sjá það markverðasta á eyjunum og reyndist þetta sennilega ódýr- ara en að fara með rútunni og þá hefðum við misst af því að spila golf sem var okkur öllum svo mikið áhugamál. En ég held að samferðafólk okkar á skipinu hafi litið okkur hornauga þegar það sá að við vorum að fara með golfsettin okkar í land en þau hafa ekki áttað sig á því að við fengum leigubílstjórana til að sýna okkur það markverð- asta á leið til skips aftur. Elsku Mummi minn, við hjónin, Óskar og Sóley, munum sakna þín mikið en kynnum okkar hjóna af þér og þinni ást- kæru eiginkonu, Petrínu, ásamt fjölskyldu ykkar, munum við ekki gleyma. Við huggum okkur við það að við munum sjá og hitta þig, Mummi minn, seinna. Kveðja, Óskar og Sóley. Þegar ég heyrði af andláti Mumma T. varð mér hugsað til okkar fyrstu kynna. Leiðir okk- ar lágu saman þegar golfvöll- urinn hjá Villunni uppi í Mos- fellsdal var í deiglunni. Ég hafði tekið að mér að stofna golfklúbb í sambandi við völl- inn, en var ekki sjálfur golfari og það vantaði „golfara“ til að vera í forsvari fyrir félagslega þáttinn í starfsemi golfklúbbs- ins. Þá voru nokkrir golfarar þegar komnir að starfseminni og var Guðmundur þar fram- arlega í flokki og tilbúinn að taka að sér að vera í for- mennsku fyrir klúbbinn, sem fékk nafnið Golfklúbbur Bakka- kots. Það var mikið lán að Guð- mundur tók þetta að sér því hann naut virðingar í hópnum fyrir utan það að vera afskap- lega ljúfur félagi og hafði lag á að fá menn með sér. Nú er fallinn frá drengur góður og ég veit að hann naut þess að vera í faðmi dalsins sem er innan seilingar frá höf- uðborginni en Guðmundur taldi ekki eftir sér að skreppa upp í dal þó í Hafnarfirði byggi. Ég minnist þess hvað það var alltaf mikill léttleiki í kring- um þá mágana Mumma og Stebba og ekki má gleyma Petrínu, konu Guðmundar, sem átti sinn þátt í að Golfklúbbur Bakkakots komst á laggirnar og má geta þess að það var um- talsverð starfsemi í „kvenna- golfinu“. Það er margs að sakna í for- tíðinni sem yljar manni í nútíð- inni og sendi ég innilegar sam- úðarkveðjur til Petrínu og fjölskyldu frá mér og konu minni, Eygló. Magnús Steinarsson. Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann Móðir okkar, HÓLMFRÍÐUR KRISTÍN JENSDÓTTIR, lést á hjúkrunarheimilinu Eiri þriðjudaginn 18. október. Jarðarförin hefur farið fram. . Jens, Tómas og Áslaug. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, RAGNHILDUR ÁSGEIRSDÓTTIR, andaðist laugardaginn 22. október á hjúkrunarheimilinu Skjóli. Útför hennar fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði þriðju- daginn 1. nóvember kl. 15. . Ásgeir Einarsson, Bryndís Hrafnkelsdóttir, Ingólfur Einarsson, Karólína Hreiðarsdóttir og barnabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, EIRÍKUR SVAVAR EIRÍKSSON, fv. flugumsjónarmaður, Boðahlein 5, Garðabæ, lést 22. október 2016 á Vífilsstöðum. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 3. nóvember 2016 kl. 13. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Gigtarfélag Íslands. . Guðbjörg Kristín Eiríksdóttir, Jens Dirk Lubker, Steinunn Eiríksdóttir, Þorsteinn Lárusson, Þóra Eiríksdóttir, Jan Steen Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegs föður okkar, INGÓLFS LÁRUSSONAR, fv. bónda, Gröf, Eyjafjarðarsveit. Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunar- og dvalarheimilisins Hlíðar á Akureyri. . Synir hins látna og fjölskyldur. Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs föður míns og afa, RAGNARS ÁRNASONAR mælingaverkfræðings, Æsufelli 4. . Guðný Ragnarsdóttir, Ragnar Árni Ólafsson.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.