Morgunblaðið - 29.10.2016, Síða 81
MINNINGAR 81
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2016
✝ Ólöf LáraÁgústsdóttir
fæddist 16. janúar
1935 í Hafnarfirði.
Hún lést á heimili
sínu 6. október
2016.
Foreldrar henn-
ar voru Ágúst Eyj-
ólfsson bakara-
meistari, f. 28.9.
1912, d. 27.11. 2001,
og Þórheiður Jó-
hannsdóttir húsfreyja, f. 7.7.
1914, d. 30.8. 1935. Ólöf Lára átti
eina systur, Hönnu Þórey
Ágústsdóttur, f. 31.5. 1936, gift
Gunnlaugi Lárussyni, f. 15.5.
1936, og eiga þau fjögur börn,
þau eru Eyjólfur, Elfar, Þórheið-
ur og Gunnhildur. Árið 1955 gift-
ist Ólöf Lára Sigurði Helgasyni,
f. 2.3. 1930, d. 23.10. 2008. Þau
skildu. Sonur þeirra er Ágúst
mæðraskólanum að Staðarfelli
1953 til 1954. Ólöf var við ýmis
störf í Stykkishólmi eftir það.
Hún fluttist 1964 í Laugagerðis-
skóla og var þar til 1970 þegar
fjölskyldan flytur til Reykjavíkur.
Í Reykjavík starfaði hún meðal
annars hjá Námsgagnastofnun.
Lengst af starfaði Ólöf Lára þó
hjá ríkisskattstjóra, eða allt þar
til hún lét af störfum 2005, þá 69
ára að aldri. Ólöf Lára hafði mik-
inn áhuga á íþróttum og keppti
hún meðal annars í badminton og
stundaði dans lengi vel. Hún
hafði einnig mikinn áhuga á að
fylgjast með íþróttum. Það virtist
ekki skipta máli hvaða íþrótta-
grein hún fylgdist með en hún
sýndi frjálsum íþróttum ein-
stakan áhuga. Ólöf Lára helgaði
barnabörnum sínum líf sitt og
hafði mikla unun af því að um-
gangast þau og styðja þau í öllum
þeim verkefnum sem þau tóku
sér fyrir hendur. Þau voru ómiss-
andi hluti af lífi hennar og hún
þeirra allt til síðasta dags.
Útför Ólafar Láru fór fram í
kyrrþey 14. október 2016 að
hennar ósk.
Heiðar, f. 27.6. 1954,
kvæntur Margréti
Haraldsdóttur, f.
26.9. 1955. Börn: a)
Ólöf Lára, f. 7.8.
1981, sambýlis-
maður Árni Jóhann-
es Hallgrímsson og
eiga þau soninn
Ágúst Viðar, f.
24.10. 2008; b) Guð-
björg, f. 21.9. 1984,
sambýlismaður Ey-
þór Ingi Ólafsson og eiga þau
dæturnar Elísubeth Ólöfu, f. 2.10.
2012 og Móeiði Söru, f. 29.12.
2015 og c) Ágúst Örn, f. 9.9. 1992,
unnusta Erna Björk Einarsdóttir.
Ólöf Lára bjó í Reykjavík til
þrettán ára aldurs og flutti þá til
Stykkishólms og hóf strax störf í
bakaríinu hjá föður sínum og var
Stykkishólmur henni ætíð hjart-
fólginn. Hún stundaði nám í hús-
Elsku amma, besta vinkona
mín.
Oft hef ég leyft huga mínum að
fara að þeim degi sem ég myndi
missa þig úr mínu lífi og var til-
hugsunin ein afar erfið. Ekki
grunaði mig að tilfinningin við að
missa þig yrði svona sár og erfið.
Ég á erfitt með að trúa að ég
muni ekki hitta þig aftur, að ég fái
ekki símtal frá þér oft í viku, að ég
muni ekki kíkja til þín í kaffi og
spjall og allt sem við vorum vanar
að gera.
Ég á ótalmargar og góðar
minningar frá okkar stundum.
Allt frá því að ég fæddist helgaðir
þú líf þitt okkur barnabörnunum.
Við vorum líf þitt og yndi og þú
sömuleiðis okkar. Helgarnar
heima hjá þér eru mér afar minn-
isstæðar, þá fékk ég að gista og
vera í ömmudekri. Þú fórst með
okkur á kaffihús, í bæjarrölt,
sóttir okkur á æfingar, í vinnu og,
já, í miðbæinn um helgar. Já,
amma, þú gerðir allt fyrir okkur
alveg sama hver beiðnin var og
fyrir það er ég þér þakklát, þakk-
látari en orð fá lýst. Á fullorðins-
árum breyttist samband okkar,
ég fór að leita til þín með ýmis
vandamál sem þú aðstoðaðir mig
við að leysa. Ég gat leitað til þín
með allt, gat treyst þér fyrir öllu,
þú varst besta vinkona mín. Þú
varst alltaf með allt á hreinu, viss-
ir allt um vini mína og hafðir mik-
inn áhuga á þeim og þótti þeim
mjög vænt um þig. Ég hef alltaf
talið mig einstaklega heppna að
fengið að hafa þig svona náið í lífi
mínu og er þakklát fyrir allar
okkar stundir. Ég er þakklát fyrir
að við heyrðumst í síma og hitt-
umst oft í viku. Þú varst alltaf svo
stolt af öllu sem við barnabörnin
þín gerðum og fundum við vel fyr-
ir því. Eftir að ég eignaðist Ágúst
Viðar hélst þú áfram þínu striki
og gerðir hvað þú gast fyrir hann.
Fyrir honum ertu ekki bara
langamma, heldur vinur sem
hann mun aldrei gleyma. Þú hafð-
ir einstaka unun af því að gefa og
gleðja aðra og voru jólin í miklu
uppáhaldi hjá þér. Eins komst þú
fram við maka okkar systkinanna
eins og þína eigin og varst góður
vinur þeirra og eru þau þér afa
þakklát fyrir.
Í veikindum þínum undanfarna
mánuði gátum við systkinin sýnt
þakklæti okkar með því að hugsa
um þig. Ég er þakklát fyrir að
hafa getað aðstoðað þig með allt
sem þú þurftir á að halda, ég er
þakklát fyrir að hafa verið svona
mikið hjá þér undanfarna mánuði
og ég kann svo sannarlega að
meta þann tíma sem við áttum,
hann var notalegur og einlægur.
Ég er þakklát fyrir að þú þáðir
hjálpina og sóttist eftir henni.
Með þessu gátum við sýnt þér
hverju uppeldi þitt, stuðningur
þinn í gegnum árin og ást þín á
okkur hefur skilað. Ég er sú sem
ég er að miklu leyti vegna þín.
Þér voru falin afar erfið verkefni í
lífinu en þau leystir þú af mikilli
hetjudáð án þess að kvarta. Þú
ert hetjan mín.
Margar af mínum bestu stund-
um eru með þér og það sem situr
mér efst í huga er þakklæti til þín,
þú ert mín fyrirmynd og ég vona
að ég fái þann heiður að verða
eins amma og þú, það er mitt
markmið. Ég veit þú heldur
áfram að fylgjast með mér og
leiða mig áfram í gegnum lífið.
Ég kveð þig með miklum sökn-
uði og mun varðveita minningu
þína.
Ég elska þig og mun þér aldrei
gleyma.
Þín
Ólöf Lára.
Elsku amma mín.
Það er ótrúlega erfitt að þurfa
að kveðja sínu bestu vinkonu. Þú
varst mér svo mikið, við gengum í
gegnum allt, sama hvað á bjátaði.
Ég leitaði til þín með allt í mínu
lífi, bæði í gleði og sorg. Það er
erfitt fyrir mig að hugsa fram á
við að manneskja sem ég talaði
við á hverjum degi, oft þrisvar á
dag, sé farin en ég veit að þú ert á
góðum stað. Þú varst með
stærsta hjarta sem ég veit um,
betri manneskju er vart að finna.
Þú hugsaðir svo mikið og vel um
okkur systkinin og helgaðir líf
þitt okkur. Svo komu langömmu-
börnin og ekki hugsaðir þú síður
um þau, ég er svo þakklát og glöð
yfir að þau fengu að hitta þig og
kynnast þér. Ég man þau ófáu
skipti sem við fórum á kaffihús og
þá sérstaklega þegar ég var í fæð-
ingarorlofi. Elísabeth Ólöf talaði
alltaf um að fara á kaffihús með
ömmu Ólöfu og henni Móeiði
fannst það sko ekki leiðinlegt,
hún ljómaði öll. Við munum alltaf
varðveita þann tíma sem við átt-
um með þér, elsku amma mín, og
það góða sem þú færðir okkur.
Ég á svo margar minningar
með þér, bæði frá því að ég var
lítil og síðustu dagarnir þínir hjá
okkur. Þegar ég var lítil kom ég
til þín nánast hverja helgi og gisti
hjá þér, við stoppuðum alltaf og
keyptum nammi svo við gætum
haft það huggulegt um kvöldið.
Þegar ég var heima hjá þér þá
fékk ég oftar en ekki að klæða
mig upp í fötin þín og setja á mig
varalit og halda fyrir þig tísku-
sýningu, það sem mér fannst það
gaman. Sú minning sem situr of-
arlega í huga mér á okkar ófáu
huggulegu kvöldum er sú þegar
ég fékk að heyra söguna af Rauð-
hettu og úlfinum fyrir svefninn,
hana mun ég varðveita alla mína
ævi og mun ég segja mínum
stelpum söguna af Rauðhettu.
Ekki get ég gleymt þeim morgn-
um þegar við vöknuðum og mitt
fyrsta verk var að hlaupa niður í
bakarí til að ná í heitar skonsur.
Sú minning sem ristir djúpt
eru ferðirnar okkar út fyrir
Reykjavík, þær ferðir fer ég enn
þá þann dag í dag. Á sumrin man
ég eftir nestisferðunum, dagur-
inn byrjaði í búðinni og keyptum
við nesti svo keyrðum við út fyrir
bæinn, fundum góða laut og feng-
um okkur smá bita og spjölluðum
um lífið og tilveruna. Oftast voru
Þingvellir fyrir valinu og er sá
staður mér alltaf ofarlega í huga,
elsku amma mín.
Erfiðast finnst mér að hugsa
um jólin. Þú hélst svo mikið upp á
jólin og þau voru svo yndisleg
með þér. Um leið og desember
kom voru alltaf tíðar ferðir í búðir
og á kaffihús, þér fannst það svo
gaman og varst alltaf til. Það er
erfitt að hugsa til þess að vera án
þín öll ókomin jól.
Elsku amma mín, ég er svo
þakklát fyrir að hafa haft þig í
mínu lífi og eiga allar þessar
minningar um þig, þetta er svo
lítill hluti af þeim. Þú varst mér
svo mikið og þetta er svo erfitt, ég
mun varðveita minningu þína svo
lengi sem ég lifi.
Elsku fallega og góðhjartaða
amma mín, góða nótt og sofðu
rótt. Guð geymi þig. Elska þig
alltaf
Þín
Guðbjörg.
Elsku amma og langamma,
okkur langar að kveðja þig með
þessu fallega ljóði sem lýsir þér á
allan hátt.
Þú varst okkur amma svo undur góð
og eftirlétst okkur dýran sjóð,
með bænum og blessun þinni.
Í barnsins hjarta var sæði sáð,
er síðan blómgast af Drottins náð,
sá ávöxtur geymist inni.
Við allt viljum þakka amma mín,
indælu og blíðu faðmlög þín,
þú vafðir oss vina armi.
Hjá vanga þínum var frið að fá
þá féllu tárin af votri brá,
við brostum hjá þínum barmi.
Við kveðjum þig elsku amma mín,
í upphæðum blessuð sólin skín,
þar englar þér vaka yfir.
Með kærleika ert þú kvödd í dag,
því komið er undir sólarlag,
en minninga ljós þitt lifir.
Leiddu svo ömmu góði guð
í gleðinnar sælu lífsfögnuð,
við minningu munum geyma.
Sofðu svo amma sætt og rótt,
við segjum af hjarta góða nótt.
Það harma þig allir heima.
(Halldór Jónsson frá Gili)
Ólöf Lára, Guðbjörg, Ágúst
Örn, Ágúst Viðar, Elísabeth
Ólöf og Móeiður Sara.
Með nokkrum orðum viljum
við minnast vinkonu okkar, Ólaf-
ar Láru Ágústsdóttur. Ólöf kom
inn í tilveru stórfjölskyldunnar
fyrir 40 árum þegar einkasonur
hennar, Ágúst Heiðar, Gústi
stýrimaður, varpaði akkerum hjá
Grétu okkar og þau fallegu hjón
hófu sambúð. Öll okkar kynni af
Ólöfu Láru voru indæl. Ólöf var
óaðskiljanlegur hluti allra fjöl-
skylduboða, stórra og smárra, og
var þar til staðar með sinni hóg-
væru framkomu. Börnin okkar
kölluðu hana „Ólöfu ömmu“ og lét
hún sér það vel líka. Ólöf hafði
næmt auga fyrir spaugilegum
hliðum lífsins og var stutt í
skemmtisögurnar og hláturinn.
Það var gaman að sjá hvað andlit-
ið ljómaði þegar talið barst að
Stykkishólmi, Hólminum, og því
sem á þeim fallega stað gerðist.
Hún var Hólmari þótt fædd væri í
Reykjavík.
Ekki fór á milli mála að um-
hyggja Ólafar fyrir sínu fólki var
endalaus og án skilyrða. Engin
veikindi hennar komu í veg fyrir
það. Samband hennar og Gústa
bar með sér fallega móðurum-
hyggju. Ást hennar á barna-
börnunum og síðar langömmu-
börnunum var augljós.
Það var svo aðdáunarvert að
sjá æðruleysi Ólafar og baráttu-
vilja þegar hún tókst á við illvígan
sjúkdóm og sigraðist á honum. Á
vinnustað sínum í hringiðu og erli
skattkerfisins var Ólöf vel liðin
bæði af vinnufélögum og þeim
sem nutu þjónustu hennar. Hún
var trú sínum vinnustað og svo
sannarlega „company minded“ og
jákvæð í garð verkefna sinna.
Hún var góð kona, sönn og heil-
steypt.
Ólöf Lára var stór hluti af okk-
ar lífi og við minnumst hennar
með söknuði.
Guðríður H. Haraldsdóttir
og Steinþór Haraldsson.
Ólöf Lára
Ágústsdóttir
HINSTA KVEÐJA
Elsku langamma. Þú
varst besti vinur minn. Mér
fannst rosalega gaman að
vera alltaf með þér. Þú
varst alltaf svo góð við mig
og mér fannst svo gaman
að fá gjafir frá þér. Þú varst
mjög falleg og ég elska þig
og sakna mjög mikið.
Takk fyrir allt sem þú
hefur gert fyrir mig, ég
mun aldrei gleyma þér.
Þinn
Ágúst Viðar.
FALLEGIR LEGSTEINAR
Auðbrekku 4, 200 Kópavogi, sími: 537-1029, www.bergsteinar.is
KYNNINGAR
VERÐ
Verið
velkomin
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
EINBJARGAR HÖNNU JÓNASDÓTTUR,
Jörfa.
Sérstakar þakkir til kirkjukórs Kolbeins-
staðakirkju og félaga úr Samkór Mýramanna.
.
Kristín Jóhannesdóttir, Sigurður Kr. Sigurðsson,
Jónas Jóhannesson, Margrét S. Ragnarsdóttir,
Guðbjörg Jóhannesdóttir,
Guðmundur Jóhannesson, Halla Eygló Sveinsdóttir,
Anna Jóhannesdóttir, Birgir F. Erlendsson,
ömmubörn og langömmubörn.
Hjartans þakkir fyrir samúð, hlýhug og
vináttu vegna andláts og útfarar ástkærs
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður
og afa,
SIGURBERGS BALDURSSONAR,
Helluvaði 11,
110 Reykjavík.
.
Lára Leósdóttir,
Ástvaldur Leó Sigurbergsson, Carla Foran,
Sandra Sigurbergsdóttir, Reynir Þ. Viðarsson,
Oddný Ósk Sigurbergsdóttir, Sigurður Björnsson
og barnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför ástkærs
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður
og afa,
ÓLAFS HAUKS BALDVINSSONAR,
Sólgarði, Fnjóskadal,
Bestu þakkir fær starfsfólk Sjúkrahússins á
Akureyri og Kristnesspítala fyrir hlýja og
góða umönnun.
.
Sigrún Jónsdóttir,
Sólrún María Ólafsdóttir, Qussay Odeh,
Hafdís Ólafsdóttir, Jóhann Hansen,
Dagný Ólafsdóttir
og barnabörn.
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar endurgjaldslaust
alla útgáfudaga.
Lengd | Minningargreinar sem
birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt
að senda lengri grein. Lengri
greinar eru eingöngu birtar á
vefnum. Hægt er að senda ör-
stutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er
unnt að tengja viðhengi við síð-
una.
Formáli | Minningargreinum
fylgir formáli sem nánustu að-
standendur senda inn. Þar koma
fram upplýsingar um hvar og hve-
nær sá sem fjallað er um fæddist,
hvar og hvenær hann lést og loks
hvaðan og klukkan hvað útförin
fer fram. Þar mega einnig koma
fram upplýsingar um foreldra,
systkini, maka og börn. Ætlast er
til að þetta komi aðeins fram í for-
málanum, sem er feitletraður, en
ekki í minningargreinunum.
Undirskrift | Minningargreina-
höfundar eru beðnir að hafa
skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni
undir greinunum.
Myndir | Hafi mynd birst í til-
kynningu er hún sjálfkrafa notuð
með minningargrein nema beðið
sé um annað. Ef nota á nýja mynd
skal senda hana með æviágripi í
innsendikerfinu. Hafi æviágrip
þegar verið sent er ráðlegt að
senda myndina á netfangið minn-
ing@mbl.is og láta umsjón-
armenn minningargreina vita.
Minningargreinar