Morgunblaðið - 29.10.2016, Page 94

Morgunblaðið - 29.10.2016, Page 94
94 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. OKTÓBER 2016 Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Þorgrímur Andri Einarsson er óvenjulegur listamaður fyrir margra hluta sakir. Hann er 36 ára gamall en hafði varla snert pensil fyrr en um þrítugt. Hann er með tónlistar- gráðu frá Konunglega tónlistarhá- skólanum í Haag, eftir stutt stopp í hljóðverkfræðinámi í London, en hefur aldrei lært myndlist með form- legum hætti. Hann lifir í dag af myndlistinni, og það án þess að fá krónu í styrk úr listasjóðum. Í dag verður opnuð í Gallerí Fold þriðja einkasýning Þorgríms. Sýn- ingin ber yfirskriftina Land og loft og stendur í tvær vikur. Vinur rétti honum pensil „Maður lærir ýmsilegt upp úr bókum og á netinu og á því að stúd- era aðra listamenn,“ segir Þor- grímur þegar hann er spurður hvernig honum tókst að ná svona góðu valdi á listforminu. Hann minn- ist þess ekki að hafa þótt sérstaklega hæfileikaríkt barn í myndmennt- artímum eða haft mikið gaman af að teikna. Segir Þorgrímur að það hafi verið fyrir fullkomna slysni að hann uppgötvaði myndlistaráhugann. „Í háskólanáminu umgekkst ég marga listamenn úr ýmsum áttum og svo gerðist það að einn listmálarinn fé- lagi minn bókstaflega ýtti mér að striga, rétti mér pensil og sagði mér að prufa. Þarna kviknaði á einhverri peru, og mér fannst útkoman af þessari frumraun minni ákaflega góð – þó hún hafi auðvitað verið allt ann- að en falleg þegar ég lít til baka í dag.“ Eitt af því sem hreif Þorgrím við málaralistina er að hann fann þar leið til að rækta tengingu sína við náttúruna. „Mér hefur alltaf liðið best úti í náttúrunni og fæ þar mik- inn innblástur. Með því að mála gat ég fengið nýja útrás fyrir þessar til- finningar,“ segir Þorgrímur sem málar, ásamt öðru, mikið af dýra- og landslagsmyndum. „Ef ég mögulega get mála ég á vettvangi til að fanga ljósið eins og ég sé það með eigin augum.“ Fyrir tveimur árum tók Þor- grímur af skarið og gerði málara- listina að sínu aðalstarfi. „Fram að því hafði ég getað sinnt listinni með- fram öðrum störfum, enda var ég í þannig vinnu að ég gat stýrt tíma mínum mikið sjálfur. Þetta hefur gengið afskaplega vel og ég er svo heppinn að fólk virðist hrifið af því sem ég er að gera.“ Sýnir Þorgrímur 19 olíuverk í Gallerí Fold og eru þau afrakstur vinnu þessa árs. „Verkin eru af smærri gerðinni, ólíkt síðustu sýn- ingu minni í Fold þar sem stór og veigamikil verk voru ráðandi,“ segir Þorgrímur og kveðst vera nokkuð af- kastamikill fyrir framan strigann. „Ég myndi ekki segja að ég dæli málverkunum út en ég reyni að vinna hratt, enda er ég mjög gagn- rýninn á það sem ég geri og margar myndir enda í ruslinu.“ Margt endar í ruslinu Þorgrímur segir að þegar hann máli sé markmiðið að koma viðfangs- efninu til skila til áhorfandans á eins áhrifaríkan hátt og listmálarinn upp- lifir það sjálfur, en margt getur orðið til þess að verk endar í ruslafötunni frekar en uppi á vegg í galleríi. „Ég tel mig hafa ágætis tilfinningu fyrir því hvenær hlutir virka og hvenær ekki. Stundum vantar einfaldlega þetta „touch“ sem gerir verkið gott, eða myndbyggingin gengur ekki upp, eða litapallettan er ekki að gera neitt fyrir mig,“ segir hann og syrgir ekki strigann og olíuna sem fer í súg- inn. „Það er gott að henda mynd og hreinsandi. Maður lærir af mistök- unum og reynir að endurtaka þau ekki.“ „Það er gott að henda mynd“  Sýning á verkum Þorgríms Andra Einarssonar verður opnuð í dag í Gallerí Fold  Segist mjög gagnrýninn á eigin verk og mörg endi í ruslinu  Kemur viðfangsefninu til skila á áhrifaríkan hátt Tenging „Ef ég get mála ég á vettvangi til að fanga ljósið eins og ég sé það með eigin augum,“ segir Þorgrímur. Metnaður Eitt verkanna á sýningunni. Þar verða 19 verk til sýnis, einkum landslags- og dýramyndir. Svanur Verkin á sýningunni hefur Þorgrímur málað á þessu ári. Fyrstu einleikstónleikar af þrenn- um, hjá Hlíf Sigurjónsdóttur, í Há- teigskirkju fara fram á morgun, sunnudaginn 30. október, klukk- an 20:00 en í vetur flytur Hlíf allar sónötur og partítur fyrir einleiks- fiðlu eftir J.S. Bach á þrennum tón- leikum í Háteigskirkju í Reykjavík og í Vorfrúarkirkju í Svendborg á Fjóni. Á hverjum tónleikanna má ennfremur hlýða á nútímaverk fyr- ir einleiksfiðlu sem samið hefur verið fyrir Hlíf. Á þessum fyrstu tónleikum verð- ur leikin Sónata númer 1 í g-moll og Partíta númer 1 í h-moll eftir Bach og þeim lýkur með einleiks- verkinu Vetrartré eftir Jónas Tóm- asson, en hann verður sjötugur þann 21. nóvember. Þessi efnisskrá verður endurtekin í Vorfrúarkirkj- unni í Svendborg á Fjóni mánudag- inn 21. nóvember. Næstu tónleikar í röðinni verða á næsta ári, sunnudaginn 26. febrúar, í Háteigskirkju og 13. mars í Vorfrúarkirkju og verða þá leiknar Sónata númer 2 í a-moll og Partíta númer 2 í d-moll eftir Bach og frumflutt tónverk sem danska tón- skáldið Matti Borg er að semja fyrir Hlíf. Á síðustu tónleikum í röðinni, í Háteigskirkju 30. apríl og Vorfrú- arkirkju 8. maí, leikur Hlíf Sónötu númer 3 í C-dúr og Partítu númer 3 í E-dúr ásamt nýju verki eftir Povl Christian Balslev, organista Vorfrúarkirkjunnar. Tónlist Hlíf verður með þrenna einleikstónleika frá hausti fram á vor. Einleikstónleikaröð Hlífar Sigurjónsdóttur í vetur SPORTÍS MÖRK IN 6 - 108 REYK JAV ÍK - S : 520 -1000 - S PORT I S . I S Norsk ullarnærföt úr einstaklega mjúkri og teygjanlegri 100% merino ull

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.