Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.2015, Blaðsíða 2
2 Fréttir Helgarblað 20.–23. febrúar 2015
Lífrænt
Ríkt af Nitric Oxide og Sulforaphane
Rauðrófu-
og brokkolíduft
ásamt spínati, gulrótum, steinselju og káli
Fyrir eða eftir æfingar
Mikil orka og næring
Bragðgóð blanda
40 skammtar
Ein teskeið hrist í vatn eða safa
Fæst í apótekum, heilsubúðum, Krónunni,
Hagkaup og Nettó. Umboð: Celsus.
Frábært í kúrinn!5:2
Milljón á heimili
Meðalyfirdráttarheimild íslensks
heimilis er um 1,1 milljón króna.
Þetta kemur fram í Fréttablaðinu
en þar kemur fram að heildar-
upphæð yfirdráttarlána lands-
manna hefði í fyrra verið 85,9
milljarðar króna. Miðað við hefð-
bundna vexti greiða Íslendingar
því árlega 11 milljarða króna í
vexti af þessum yfirdráttarlánum.
Yfirdráttarlán Íslendinga hafa
smám saman farið hækkandi
undanfarin ár, en þau voru 800 til
900 þúsund krónur á heimili að
jafnaði árið 2011.
Gosið á loka-
metrum
Magnús Tumi Guðmundsson
jarðeðlisfræðingur segir að gos-
inu í Holuhrauni gæti lokið á
nokkrum vikum eða mánuð-
um. Ekki sé um stórgos að ræða
lengur. Þetta er haft eftir Magn-
úsi í Morgunblaðinu. Stöðugt
hefur dregið úr gosinu í febrúar
og kvikuflæðið er mun minna en
áður, auk þess sem jarðskjálftar
eru minni og færri. Ljóst var að úr
krafti þess dró í janúar en hrað-
ar hefur dregið úr virkni þess en
spáð var.
Sambandi komið á
Hervé Falciani og skattrannsóknarstjóri ná saman
E
va Joly, sérfræðingur í rann-
sóknum fjármálaglæpa og fyrr-
verandi ráðgjafi sérstaks sak-
sóknara, segir að sambandi hafi
verið komið á á milli Bryndísar Krist-
jánsdóttur skattrannsóknarstjóra og
uppljóstrarans Hervés Falciani.
„Hervé Falciani mun hafa sam-
band við hana,“ sagði Joly, sem í dag
er rannsóknardómari og þingmað-
ur á Evrópuþinginu, í samtali við DV.
Falciani er fransk/ítalskur uppljóstrari
sem lak gögnum um skattaundanskot
tengd svissneska bankanum HSBC.
Hann hefur boðist til að útvega
íslenskum skattayfirvöldum ókeypis
upplýsingar frá HSBC sem snúa að
eigendum reikninga sem tengjast
Íslandi.
Aðspurð segist Joly ekki vita
hvenær von sé á því að almenning-
ur fái að vita hvers konar upplýsingar
um er að ræða. „Við verðum að gefa
þeim smá tíma til að gera það sem
þau þurfa að gera.“
Um er að ræða vel á annan tug
reikninga og voru um sjö milljónir
dollara, rúmlega níu hundruð millj-
ónir króna á núverandi gengi, á ein-
um þeirra. n freyr@dv.is
Eva Joly Segir að sambandi hafi verið komið
á á milli skattrannsóknarstjóra og Falcianis.
„Væri gaman ef
myndin fyndist“
n Stærsti listaverkaþjófnaður Íslandssögunnar enn óupplýstur
E
kki löngu áður en pabbi
dó var hann að segja hvað
það væri nú gaman að vita
hvað hafi orðið um Manet-
myndina. Vegna þess að
hún gufaði algjörlega upp,“ segir
Hanna Gunnarsdóttir, sem var 22
ára þegar verðmætasta málverki
landsins, lítilli mynd eftir franska
listmálarann Edouard Manet, var
stolið af heimili foreldra henn-
ar við Smáragötu í Reykjavík í apr-
íl 1964. „Það væri nú bara gaman
ef myndin fyndist,“ segir Hanna og
hlær, „en ég er ansi hrædd um að
það gerist ekki.“
Í grein á síðu 26 í helgarblaði
DV rifjar Björn Jón Bragason sagn-
fræðingur upp þjófnað á málverk-
inu sem faðir Hönnu, Gunnar Guð-
jónsson skipamiðlari, hafði keypt
í Hamborg í Þýskalandi árið 1947.
Hanna segir myndina hafa ver-
ið metna á 25 þúsund dollara, en
það eru að minnsta kosti 25 millj-
ónir íslenskra króna á núverandi
verðgildi. Hins vegar hefur verð á
listaverkum hækkað umtalsvert
á undanförnum 50 árum og því
mögulegt að enn meira fengist fyrir
myndina í dag. Verk eftir Manet eru
með dýrustu málverkum í heimin-
um í dag og hafa einstök verk selst
fyrir milljarða króna.
Sögusagnir um brjálað partí
Myndin hvarf af stofuvegg heim-
ilisins á meðan Hanna var í skíða-
ferðalagi með foreldrum sínum
í Noregi. Hún kom heim á und-
an foreldrunum því hún þurfti að
mæta í vinnu á mánudagsmorgun.
„Ég kom heim seint á sunnudegi,
herbergið mitt var uppi á lofti
þannig að ég fór bara þangað upp
og svo beint í vinnuna morguninn
eftir – ekki inn í stofuna. Kvöldið
eftir bauð ég tveimur vinum í mat.
Við vorum eitthvað að tala um
myndina og uppgötvuðum þá að
hún var horfin,“ en myndin hafði
hangið á vegg í stofunni við hliðina
á borðstofunni.
„Það voru ýmsar getgátur um
hver hefði stolið henni,“ segir
Hanna og sögur spruttu upp um
að myndin hafi horfið í stóru lista-
mannapartíi sem hún átti að hafa
haldið. „Ég er myndlistarmaður.
Það þótti svolítið sérstakt á þess-
um árum og myndlistarfólk litið
hornauga. Þannig að ég átti að
hafa verið með brjálað partí þarna
á Smáragötunni. Þar átti allt að
hafa verið vitlaust og einhver átti
að hafa gengið út með myndina.
Þetta var nú allt saman tóm vit-
lausa, húsið var mannlaust.“
Engin fingraför
Svarthvít mynd af málverkinu
hafði birst framan á listtímaritinu
Líf og list árið 1951 og var þá til-
tekið hver eigandinn væri og hvar
hann ætti heima. Þar að auki voru
engar öryggisráðstafanir gerðar
til að vernda verkið. „Húsin voru
meira og minna opin í gamla daga.
Það hefur bara verið einhver sem
hefur vitað af myndinni og far-
ið inn.“ Þótt það hafi ekki verið
erfitt að brjótast inn rannsakaði
lögreglan húsið: „Það var farið í
fingrafaraleit en ekkert fannst.“
Evrópska lögreglan Interpol
var í kjölfarið upplýst um málið
en talið var líklegt að verkið hefði
verið selt á svörtum markaði
erlendis. „Ég er ansi hrædd um
að ef myndin er einhvers staðar sé
hún í einhverju hólfi úti í heimi.
Þetta er lítil mynd og auðvelt að
skera hana úr rammanum og
skella henni í einhverja ferðatösku.
En manni verður ansi oft hugsað
til þessa atburðar.“
Hún segir föður sinn þó hafa tek-
ið þjófnaðinum af rólyndi: „Hann
var bisnessmaður og hann græddi
og tapaði. Þannig að hann sagði
bara „easy come, easy go“. Þetta var
nú bara mynd eins og hann sagði.
Ef við lentum í árekstri, börnin,
þá sagði hann, „bíllinn ónýtur en
barnið heilt“. Svona hugsaði hann,“
segir Hanna. n
Lítil en verðmæt „Hún var í mjög djúpum litum. Þetta er stúlka sem heldur á blómum og
mig minnir að hún hafi verið í purpurarauðri skikkju eða kjól. Þetta var mjög dökk mynd – djúp-
ir fallegir litir,“ segir Hanna um verkið sem var mjög lítið, 15 sentimetrar á breidd og 25 á lengd.
Kristján Guðjónsson
kristjan@dv.is „Það voru ýmsar getgátur um hver
hefði stolið henni.