Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.2015, Blaðsíða 40
40 Skrýtið Helgarblað 20.–23. febrúar 2015
Nokkuð nákvæm
eftirlíking – Hallstat
Hvar: Kína
Einhverjir þekkja eflaust bæinn
Hallstat í Austurríki sem er á
heimsminjaskrá UNESCO. Færri þekkja
þó að líkindum bæinn Hallstat í
Guangdong-héraði í Kína sem er allt að
því nákvæm eftirlíking af austurríska
bænum. Það var vellauðugur eigandi
námuvinnslufyrirtækis í Kína sem
hafði veg og vanda að framkvæmdun-
um sem kostuðu tæplega einn milljarð
Bandaríkjadala. Sem fyrr segir svipar
bænum mjög til austurríska bæjarins;
vegir eru eins, kirkjan er eins og þá er
byggingarstíll húsanna alveg eins. Það
eina sem Kínverjunum tókst ekki að
líkja vel eftir var stórbrotið umhverfið
sem umlykur austurríska bæinn.
Furðulegir bæir
um víða veröld
n Ungt fólk bannað í einum n Stærsta draugaborgin er í Kína n Aðeins einn bæjarbúi
Ungt fólk bannað – The Villages
Hvar: Flórída, Bandaríkjunum
The Villages, eða Þorpin á íslensku, er bær í Flórída í Bandaríkjunum sem hugsaður var fyrir
eftirlaunaþega. Talið er að um hundrað þúsund manns búi í The Villages og eru allir sem ekki eru
orðnir nítján ára bannaðir. Reyndar mega ungmenni, til dæmis barnabörn íbúa, sem ekki hafa náð
þessum aldri dvelja í bænum, en þó ekki meira en í 30 daga á hverju almanaksári. Bærinn er um
margt sérstakur eins og að framan greinir. Þannig fara flestir íbúar allra sinna ferða í golfbílum.
Þá er svartamarkaðsbrask með viagra sagt algengt, þar sem hver tafla getur kostað allt að tólf
Bandaríkjadölum, 1.500 krónum. Vefritið Slate greindi svo frá því árið 2006 að kynsjúkdómar væru
býsna algengir í bænum.
Allir í einni blokk – Whittier
Hvar: Alaska, Bandaríkjunum
DV fjallaði fyrir skömmu um bæinn Whittier í Alaska. Bærinn er um margt sérstakur, en þó einna
helst fyrir þær sakir að nánast allir íbúar búa undir sama þaki í stórri blokk í bænum. Byggingin,
sem heitir Begich Towers, er 14 hæðir og var hún reist árið 1956. Tilgangur hennar var að hýsa
hermenn sem höfðu aðsetur á svæðinu. Byggingin er ekki aðeins heimili hér um bil allra íbúa svæð-
isins heldur er þar einnig lögreglustöð, heilsugæsla, kirkja og kaffihús. Raunar þurfa íbúar staðarins
aldrei að fara út úr húsi þar sem alla nauðsynlega þjónustu er að finna í húsinu.
Fleiri látnir
en lifandi –
Colma
Hvar: Kaliforníu,
Bandaríkjunum
Við fyrstu sýn virðist bærinn
Colma í Kaliforníu vera ósköp
venjulegur smábær. Íbúar þar
eru fimmtán hundruð sem er
býsna lítið miðað við það sem
gengur og gerist í Kaliforníu.
Staðreyndin er sú að í bænum
er ógnarstór kirkjugarður þar
sem ein og hálf milljón manna
hvílir. Þegar gullæðið stóð
sem hæst í Bandaríkjunum um
miðja 19. öld fluttu hundruð
þúsunda íbúa til nágranna-
borgarinnar San Francisco. Á
níunda áratug 19. aldar voru
allir kirkjugarðar borgarinnar
orðnir stútfullir og var þá
brugðið á það ráð að finna
greftrunarstaði í Colma. Í mars
árið 1900 ákváðu yfirvöld í San
Francisco að ekki yrðu fleiri
kirkjugarðar teknir í notkun í
borginni þar sem landið þótti
of verðmætt og árið 1914 var
ákveðið að flytja kirkjugarða
borgarinnar til Colma – og
að sjálfsögðu fylgdu hinir
framliðnu með. Enn þann dag í
dag er fólk grafið í Colma.
Aðeins einn íbúi – Monowi
Hvar: Nebraska, Bandaríkjunum
Bærinn Monowi í Nebraska var upphaflega stofnaður af tékkneskum innflytjendum í byrjun 20. aldar. Í kringum árið 1930 var íbúafjöldi í
kringum 150 en íbúum fór ört fækkandi eftir það. Í dag er bærinn helst þekktur fyrir það að vera fámennasti bær Bandaríkjanna. Aðeins
einn íbúi býr í Monowi, 77 ára kona, Elsie Eller. Að sjálfsögðu fer hún með öll völd í bænum en í honum er meðal annars að finna bókasafn
með um fimm þúsund bókum.
Stærsta drauga -
borgin – Ordos
Hvar: Kína
Borgin Ordos í Innri-Mongólíu í Kína hefur stundum
verið kölluð stærsta draugaborg Kína. Áætlanir
gerðu ráð fyrir að um ein milljón manna gæti búið í
borginni, en talið er að aðeins sé búið í um tveimur
prósentum íbúða í borginni. Fyrir um tuttugu árum
var ráðist í byggingu borgarinnar en hún átti að
verða eins konar miðstöð fyrir fólk í kolavinnslu-
iðnaðinum. Fjárfestar byggðu hverja íbúðina á
fætur annarri en eftirspurnin eftir íbúðum reyndist
margfalt minni en framboðið. Þetta gerði að
verkum að verktakar og fjárfestar töpuðu stórum
fjárhæðum og standa nú fjölmargar hálfkláraðar
byggingar í Ordos. Nýlega hófst átak til að efla
áhuga almennings, þá sérstaklega ungs fólks,
á kostum þess að búa í Ordos. Þannig fá ungir
frumkvöðlar skrifstofuaðstöðu án endurgjalds og
fría nettengingu heim til sín.