Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.2015, Blaðsíða 23
Fréttir Erlent 23Helgarblað 20.–23. febrúar 2015
Í Kaupmannahöfn gengu menn til friðar og til varnar
tjáningarfrelsinu eftir hryðjuverk ungs manns á
laugardagskvöldið og hjálparstarfsmaður í Mjanmar
varð fyrir skoti þegar hann var við hjálparstörf.
Í Palestínu lenti ísraelskum lögreglumönnum saman
við borgara. Hlaupagarpar í Toronto virðast vera
í skýjunum. Óvenjulegur draumur Renatos Garcia
rættist eftir andlát hans. astasigrun@dv.is
Á hlaupum í skýjunum
Gengið til friðar Samhugur og samstaða gegn ofbeldi og fyrir tjáningar-
frelsi var fólki efst í huga á samstöðufundi á mánudag í Kaupmannahöfn. Talið er að yfir 20
þúsund manns hafi verið samankomnir á Gunnar Nu Hansens-torgi í Kaupmannahöfn til að
minnast þeirra sem féllu í skotárás 22 ára manns sem var einnig skotinn til bana aðfaranótt
sunnudags. Myndir reuters
Brúðkaupsdagur Azim Liumankov og brúður hans, Fikrie Bindzheva,
sitja fyrir á mynd fyrir utan heimili þeira í Ribnovo í Búlgaríu. Myndin er tekin á brúðkaups-
degi þeirra á sunnudag, en múslimar í suðvesturhluta Búlgaríu hafa viðhaldið íburðar-
miklum brúðkaupshefðum sínum í áranna rás. Hápunktur athafnarinnar er þegar andlit
brúðarinnar er málað af konum úr fjölskyldu brúðgumans með þykkri kalkmálningu og
skreytt með litríkum semalíusteinum.
Skotið á þá sem hjálpa Moe Kyaw Than, er sjálfboðaliði hjá
Rauða krossinum í Mjanmar. Á þriðjudag gerðu uppreisnarmenn árás á sjálfboðaliðana. Að
undanförnu hafa þúsundir flúið átök í Mjanmar vegna harðra átaka milli stjórn ar hers ins og
Kokang-upp reisn ar manna.
Átök Palestínskur maður í átökum við ísraelska landamæraverði þegar þeir síð-
arnefndu reyndu að leysa upp mótmæli. Palestínumenn mótmæltu á landi sem þeir segja
Ísraelsmenn hafa tekið traustataki en var áður byggð Palestínumanna við Abu Dis nálægt
Jerúsalem. Vinur mannsins reynir að toga hann til sín.
Hinsta óskin Hinsta
ósk Renatos Garcia var að fá að klæðast
búningi ofurhetjunnar Grænu luktarinnar,
(e. Green Lantern) í kistunni. Útfararstofa
sem sérhæfir sig í óhefðbundnum útförum
var fengin sérstaklega til þess að verða við
óskum hans. Renato lést fyrir rúmri viku en
hefur verið komið fyrir í sérstökum helgi-
dómi á heimili sínu eftir líksmurningu.
Garpar í skýjunum Hlaupagarpar láta til sín taka á Humber Bay-
brúnni í miklum kulda í Toronto. Fæst okkar myndu eflaust reima á okkur hlaupaskóna í 25
gráða frosti, en þessir létu kuldabola ekki á sig fá.
Myrtir Mennirnir í appelsínugulu
fangabúningunum eru kristnir Egyptar,
mennirnir í svörtu fötunum eru hermenn
Íslamska ríkisins, ISIS. Egypski herinn gerði á
mánudag loftárásir á bækistöðvar Íslamska
ríkisins í Líbíu, nokkrum klukkustundum
eftir að þessi mynd og myndband birtist af
liðsmönnum samtakanna afhöfða tuttugu
og einn kristinn Egypta. Mennirnir voru
neyddir niður á hnén og svo myrtir.