Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.2015, Side 6
6 Fréttir Helgarblað 20.–23. febrúar 2015
Hólmaslóð 2 . 101 Reykjavík . www.tolli.is
Opið þriðjudaga til laugardaga frá kl. 13-17
Meirihlutinn gegn
Geir Haarde fallinn
B
irkir Jón Jónsson, fyrrver-
andi þingmaður og varafor-
maður Framsóknarflokks-
ins, hefur sett sig í samband
við Geir H. Haarde og beðið
hann afsökunar á sínum hlut í lands-
dómsmálinu svokallaða. Birkir Jón
er einn þeirra sem greiddu atkvæði
með þingsályktunartillögu um að
höfða sakamál fyrir landsdómi gegn
Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætis-
ráðherra, á sínum tíma. Fyrir hafði
að minnsta kosti einn þingmaður,
Ögmundur Jónasson, þingmaður
Vinstri grænna, beðið Geir persónu-
lega og opinberlega afsökunar vegna
málsins. Afar mjótt var á munum
þegar atkvæðagreiðsla vegna máls-
ins fór fram en 33 þingmenn greiddu
atkvæði með tillögunni en þrjátíu
voru á móti. Því má segja að með
kúvendingu Birkis Jóns og Ögmund-
ar sé meirihlutinn í málinu fallinn.
Pólitísk aðför
Eins og kunnugt er lyktaði málinu
með þeim hætti að Geir var dæmdur
sekur um einn ákærulið í málinu –
hann hefði átt að halda fleiri ráð-
herrafundi um mikilvæg stjórnar-
málefni fyrstu mánuði ársins 2008
þegar bankahrun blasti við. Hann
hefur nú kært málið til mann-
réttindadómstóls Evrópu. Ekki náð-
ist í Geir við vinnslu þessarar fréttar.
Geir fór hins vegar hörðum orð-
um um þá sem áttu þátt í að leiða
hann fyrir landsdóm í sjónvarps-
þættinum Eyjunni á Stöð 2 í lok síð-
asta árs. „Þetta mál er náttúrlega
ömur legt frá upphafi til enda og er
þeim til skammar sem að því stóðu.
Þetta var pólitísk aðför að mér,“ sagði
hann meðal annars. Hann sagði
málið frá upphafi til enda hafa verið
skipulagt innan Vinstri grænna með
stuðningi bæði innan úr Samfylk-
ingunni og Framsóknarflokki, en
málið vakti ekki síður athygli á sínum
tíma fyrir þær sakir að fyrrnefndir
stjórnmálaflokkar klofnuðu í afstöðu
sinni til málsins. Þá sagðist Geir vita
til þess að margir hefðu slæma sam-
visku vegna þessa máls og að þeir
hafi möguleika á að gera hreint fyrir
sínum dyrum opinberlega.
Afgreiðsla þingsins ekki rétt
„Ég setti mig í samband við Geir nú
fyrir nokkru þar sem við fórum yfir
landsdómsmálið,“ segir Birkir Jón í
samtali við DV. Hann segir samtalið
hafa verið mjög gott en vill að öðru
leyti ekki tjá sig efnislega um inni-
hald þess. „Ég hef sagt það áður við
fólk sem mér stendur nærri að það
mál þróaðist með ákaflega dapurleg-
um hætti og sjálfur þurfti ég að taka
ákvörðun um hvort setja ætti fólk fyr-
ir rétt. Mín niðurstaða er sú að það
hafi verið rangt að Geir H. Haarde
ætti að sitja einn á þeim bekk og
þótti miður að horfa upp á hvern-
ig menn greiddu atkvæði með
mun mismunandi hætti í þeirri at-
kvæðagreiðslu í þinginu. Enda var
niðurstaða landsdóms á endanum
sú að Geir var sýknaður í flestum
aðalatriðum málsins.“
En kaus Birkir Jón þá
samkvæmt eigin
sannfæringu á
sínum tíma eða
lét hann und-
an utanað-
komandi
þrýstingi?
„Ég tók
ákvörðun
sjálfur út
frá þeim
upplýs-
ingum
sem ég hafði aðgang að á þeim tíma,“
svarar hann. „En þegar maður horfir
yfir allt málið að nokkrum tíma liðn-
um þá tel ég að afgreiðsla þingsins,
eins og hún varð á endanum, hafi
ekki verið rétt.“
Birkir Jón segist enn fremur vilja
afnema lög um landsdóm. „Ég tel að
það yrði þjóðþrifaverk ef það þing
sem nú situr myndi afnema þessi
lög og setja málin í einhvern annan
farveg en þann sem þingmenn voru
settir í á sínum tíma,“ segir hann að
lokum. n
n Birkir Jón bað Geir afsökunar n Vill að ríkisstjórnin afnemi lög um landsdóm„Það yrði þjóð-
þrifaverk ef það
þing sem nú situr myndi
afnema þessi lög.
Áslaug Karen Jóhannsdóttir
aslaug@dv.is
Biðst afsök-
unar Birkir
Jón Jónsson,
fyrrverandi vara-
formaður Fram-
sóknarflokksins,
hefur beðið Geir
H. Haarde afsök-
unar á sínum hlut í
landsdómsmálinu.
Pólitísk
aðför Geir H.
Haarde ásamt
verjendum
sínum fyrir
landsdómi.
Hann segir
málið hafa
verið pólitíska
aðför að sér.Færri afbrot til-
kynnt lögreglu
Segja má að árið 2015 hafi farið
betur af stað en síðastliðin þrjú ár
hvað fjölda afbrota varðar. Lög-
reglunni á höfuðborgarsvæðinu
bárust 590 tilkynningar um hegn-
ingarlagabrot sem áttu sér stað í
janúar 2015. Er það um 11 pró-
sentum færri tilkynningar sam-
anborið við sama tímabil síðustu
þriggja ára. Þetta kemur fram á
vef lögreglunnar.
Þar kemur einnig fram að til-
kynntum þjófnuðum hafi einnig
fækkað, en tilkynnt var um 258
þjófnaði í janúar sem eru um 18
prósentum færri tilkynningar
en janúarmeðaltal síðastliðinna
þriggja ára. Að sama skapi bárust
lögreglunni á höfuðborgarsvæð-
inu um níu prósentum færri til-
kynningar um ofbeldisbrot í jan-
úar 2015 miðað við sama tímabil
síðastliðin þrjú ár. Einnig fækkar
þeim sem grunaðir voru fyrir
akstur undir áhrifum áfengis eða
annarra ávana- og fíkniefna.
Vilja að gögnin
verði keypt
Um 75 prósent svarenda í nýrri
könnun MMR vilja að skattrann-
sóknarstjóri ríkisins kaupi gögn
um meint skattaundanskot Ís-
lendinga erlendis. Aðeins 9,3 pró-
sent sögðust vera því andvíg. Sam-
kvæmt niðurstöðunum er yngra
fólk ólíklegra til að segjast fylgj-
andi því að skattrannsóknarstjóri
kaupi gögn um meint skattaund-
anskot en þeir sem eldri eru. Þeir
sem sögðust styðja ríkisstjórnina
voru síður fylgjandi því að kaupa
gögn um meint skattaundanskot
Íslendinga erlendis en þeir sem
ekki sögðust styðja ríkisstjórnina.
Fjögur morð á sex árum
„Það er ekki skrítið að maður staldri við,“ segir Helgi Gunnlaugsson afbrotafræðingur
R
eiknað er með að gæsluvarð-
hald yfir konu á sextugsaldri
sem er grunuð um að hafa
stungið sambýlismann sinn
til bana í Hafnarfirði fyrir viku síðan
verði framlengt. Gæsluvarðahaldið
rennur út á mánudaginn.
Að sögn Kristjáns Inga Kristjáns-
sonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæðinu, er
rannsókn málsins á frumstigi og gat
hann ekki svarað því hvers konar egg-
vopni var beitt við verknaðinn.
Samanlagt hafa fjögur morðmál
komið upp í Hafnarfirði á síðustu
sex árum, sem hlýtur að teljast mik-
ið fyrir eitt og sama bæjarfélagið. Árið
2009 var Bragi Friðþjófsson myrtur í
Dalshrauni, ári síðar var Hannes Þór
Helgason stunginn til bana í Háabergi
og árið 2012 var Þóra Eyjalín Gísla-
dóttir sömuleiðis stungin til bana í
Skúlaskeiði.
„Það er ekki skrítið að maður
staldri við. Fjögur manndráp á síðustu
sex árum er eitthvað sem maður tek-
ur eftir, án þess að vera með einhverj-
ar stórar ályktanir út frá því á þessum
stað,“ segir Helgi Gunnlaugsson, af-
brotafræðingur og prófessor í félags-
fræði við Háskóla Íslands. „Að öðru
leyti er Hafnarfjörður frekar rólegur
bær. Miðað við önnur ofbeldisbrot og
félagsleg vandamál held ég að bærinn
standi ekki út úr.“
Sú sem er grunuð um morðið er
pólskur ríkisborgari, fædd árið 1959.
Hinn látni var einnig pólskur ríkis-
borgari, fæddur 1974. Hann fannst
látinn að heimili þeirra með eitt
stungusár vinstra megin á brjóstholi.
„Þetta virðast vera einstaklingar á
jaðrinum en ég hef ekki séð nein gögn
um að þessi hópur sé fjölmennari í
Hafnarfirði en annars staðar,“ segir
Helgi.
Það að tvö morð hafi verið framin
í sömu götu í Hafnarfirði segir hann
mjög sérstakt. „Íbúar í þessari sömu
götu hljóta að spyrja sig hvort þetta
lækki ekki fasteignaverðið en það á
ekkert að þurfa að vera þannig. Þetta
hefur bara atvikast svona,“ bætir Helgi
við. n freyr@dv.is
Helgi Gunnlaugsson Afbrotafræðingur-
inn og prófessorinn staldrar við varðandi
fjölda morða í Hafnarfirði undanfarin ár.