Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.2015, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.2015, Qupperneq 12
12 Fréttir S tjórnendum Byggingafélags námsmanna, BN, hefur ekki tekist að selja eignarhlut félagsins í baðstaðnum Laugarvatni Fontana en tæp þrjú ár eru síðan formlegt sölu- ferli hófst. Vorið 2012 átti BN 23 pró- senta hlut í baðstaðnum en síðustu ár hefur eignin þynnst niður í rúm fjórtán prósent. Byggingafélagið á í viðræðum við lánardrottna um lækk- un á skuldum sem nema samtals ellefu milljörðum króna en hlutur- inn í Fontana er metinn á rúmar 30 milljónir. „Það hefur ekki mikið gerst í þessu síðan við auglýstum hlutinn til sölu á sínum tíma en þá settum við einnig 26 íbúðir á Laugarvatni í sölu og þær seldust frekar fljótt,“ segir Böðvar Jónsson, framkvæmdastjóri BN. Aðrir svari fyrir fjárfestinguna Laugarvatn Fontana var opnað í júlí 2011 en um er að ræða baðstað sem var byggður í kringum náttúrulegt gufubað sem er á lóð fyrirtækisins. Á þeim tíma átti BN 26 íbúðir í þremur fjölbýlishúsum á Laugarvatni sem voru upphaflega byggðar fyrir nem- endur í íþróttafræði við Háskóla Ís- lands. Byggingafélagið átti þá einnig 23 prósenta hlut í Gufu ehf. sem er móðurfélag Laugarvatns Fontana ehf. Í maí 2012 var Fjármálaráðgjöf Deloitte falið að annast sölu á eign- um félagsins í þorpinu. „Þetta er ekki okkar kjarnastarf- semi og því höfum við viljað fara út úr þessu félagi. Það er ekki markmið okkar að reka ferðaþjónustustað,“ segir Böðvar. BN á og leigir út 469 námsmanna- íbúðir á höfuðborgarsvæðinu. DV greindi frá því á þriðjudag að byggingafélagið stendur að óbreyttu ekki undir skuldum sínum en eigið fé þess, heildareignir að frádregnum skuldum, var í árslok 2013 neikvætt um 3,3 milljarða króna. Böðvar segist ekki geta svarað því af hverju þáver- andi stjórnendur félagsins ákváðu að fjárfesta í uppbyggingu baðstaðar á Laugarvatni. „Þetta var gert löngu fyrir mína tíð. En mér finnst líklegt að menn hafi verið í uppbyggingu á Laugarvatni og horft til þess að bæta nýtingu íbúð- anna með því að byggja upp frekari starfsemi á svæðinu. En það verða aðrir að svara fyrir það en ég.“ Hlutaféð aukið tvisvar Baðstaðurinn var rekinn með tapi frá opnun og til ársins 2013 en þá var afkoman neikvæð um 57 milljónir króna. Það ár var hlutafé Gufu aukið um 22 milljónir króna í kjölfar 86 milljóna taps árið 2012. Stjórnendur Gufu hafa ráðist í tvær hlutafjáraukn- ingar en byggingafélagið hefur ekki tekið þátt í þeim. „Þess vegna hefur eignarhlutur BN minnkað með árunum. Við þynnumst út við hverja hlutafjár- aukningu sem við tökum ekki þátt í,“ segir Böðvar og heldur áfram: „Fontana hefur hins vegar vaxið mikið og er orðið flott félag og er búið að fara í gegnum uppbyggingarferli síðustu þrjú ár, sem er oft sá tími sem þarf til að koma félögum á gott flug. Nú er sá tími liðinn og því bjart fram undan hjá félaginu.“ n Helgarblað 20.–23. febrúar 2015 VIÐ ELSKUM KONUR KONUDAGURINN – 22. FEBRÚAR 4ra RÉTTA REMEDÍA Forleikur – Codorníu Cava Túnfiskur Bleikja á saltblokk frá Himalaya Nautalund 200 g Súkkulaðirós 7.590 kr. Austurstræti 16 Sími 551 0011 apotek.is SÆTUR GLAÐNINGUR Komdu við milli kl. 12–20 og taktu með súkkulaðirós í fallegri g jafaöskju – 690 kr. Hefur ekki tekiSt að Selja Hlut í fontana n Hlutur Byggingafélags námsmanna í baðstaðnum til sölu í þrjú ár n eignin þynnist út Haraldur Guðmundsson haraldur@dv.is Framkvæmdastjóri BN Böðvar Jónsson segir fyrrverandi stjórnendur byggginga­ félagsins þurfa að svara fyrir það af hverju ákveðið var að fjárfesta í uppbyggingu baðstaðar á Laugarvatni. Laugarvatn Fontana Hópbílafyrirtækið Reykjavík Ex­ cursions og Flugleiðahótel ehf., sem er í eigu Icelandair Group, eru stórir hluthafar í Fontana. MyNd VIGFUS BIRGISSON / LISTASAFN ISLANdS
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.