Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.2015, Side 41

Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.2015, Side 41
Skrýtið Sakamál 41Helgarblað 20.–23. febrúar 2015 Tryggið ykkur miða 565 5900 midi.is www.gaaraleikhusid.is Það er alltaf gaman í Gaaraleikhúsinu þrjár leiksýningar = þrjú hlátursköst Farsi fyrir alla ölskylduna Svo..fyndið og svo..satt Frumsýning 21. febrúar Sunnudagur 22. febrúar kl 13.00 Sunnudagur 1. mars kl. 13.00 Sunnudagur 8. mars kl 13.00 Sunnudagur 22. febrúar kl 20.00 Aukasýning Fimmtudagur 26. febrúar kl. 20.00 Uppselt Fimmtudagur 12.mars kl 20.00 Laugardagur 14. mars kl 20.00 Uppselt Föstudagur 27. febrúar kl 20.00 Föstudagur 6. mars kl 20.00 Föstudagur 13.mars kl 20.00 Laugardagur 14. mars Uppselt Stórt læk ..ógeðslega fyndin Víkingastræti 2 Hafnarörður Umferðarofsi kostar konU lífið í las vegas Í spilavítaborginni Las Veg- as í Bandaríkjunum fékk ýkt myndbirting umferðarofsa hörmulegar málalyktir. Upp- haf málsins má rekja til kvölds fimmtudagsins 12. febrúar. Þá var Tammy Meyers, 44 ára móðir og hjúkrunarfræðingur, á leið með 15 ára dóttur sína í ökukennslu. Á leið í ökuskólann ók fram úr þeim mæðgum óþekktur náungi og gerði það, að sögn, með helst til frekjulegum og ónærgætnum hætti. Dóttir Tammy brást við með því að þeyta flautuna. Kom til orðaskipta Samkvæmt umfjöllun Los Angeles Times var það eins og við mann- inn mælt að umræddur ökuþór stöðvaði bifreið sína á punktinum, eins og stundum er sagt. Upp hófst rifrildi og ljóst frá upphafi að í því stæði enginn uppi sem sigurvegari. Sennilega varð Tammy það ljóst – í það minnsta völdu mæðgurnar þann kost að aka á brott. En ekki voru öll kurl komin til grafar eins og síðar kom í ljós. Leitaði bílstjórans Leiða má líkur að því að Tammy hafi ekki verið sátt við málalok því þegar heim var komið sendi hún dóttur sína inn í hús og kallaði son sinn út í bíl. Sér til halds og trausts greip son- urinn, að sjálfsögðu mundu sumir segja, skammbyssu sína og saman fóru mæðginin á rúntinn í von um að finna hinn arga ökuþór. Heppnin var ekki með Tammy og syni hennar, í það minnsta ekki fyrr en þau stöðv- uðu bílinn fyrir framan heimili sitt að mislukkaðri leit lokinni. Hafði einnig leitað Tammy og sonur hennar voru ekki þau einu sem fóru í leitir því það hafði hinn bráði bílstjóri einnig gert. Í nán- ast sömu andrá og mæðginin stöðv- uðu fyrir framan heimili sitt renndi bílstjórinn í hlað. Hafði hann greini- lega verið jafn ósáttur og Tammy og hugsað henni þegjandi þörfina. Hann beið ekki boðanna og sendi kúlnahríð í átt að móður og syni og sonurinn svaraði í sömu mynt. Tammy fékk skot í höfuðið og um síðustu helgi tók fjölskylda hennar þá ákvörðun að slökkva á öndunar- vélinni sem hún var tengd við. Ófundinn byssubrandur „Ég myndi aldrei segja að einhver hafi beðið um þetta,“ hafði L.A. Times eftir Ray Steiber, lögreglu- stjóra í Los Angeles, „en því miður get ég ekki spurt Tammy hvað hún var að hugsa.“ Hvort hinn bílstjórinn varð fyrir skotum fylgir ekki sögunni en þegar þetta er skrifað leitar lögreglan hans logandi ljósi. n „Því miður get ég ekki spurt Tammy hvað hún var að hugsa n Tammy sinnaðist við annan bílstjóra n Leituðu hvort að öðru Skyssa af þeim grunaða Málið sýnir að fólk á það til að gera úlfalda úr mýflugu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.