Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.2015, Blaðsíða 51

Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.2015, Blaðsíða 51
Helgarblað 20.–23. febrúar 2015 Menning 51 Tveggja borga raf Raftónlistarhátíðin Berlin x Reykjavík Festival fer fram í borg- unum tveimur á næstu vikum: í Reykjavík frá 26. til 28. febrúar og á tónleikastaðnum Neu Heimat í Berlín frá 5. til 7. mars. Það eru Exteme Chill Festival og Berlin XJAZZ sem standa fyrir hátiðinni. Sami miðinn gildir og nokr- ir sömu listamenn munu koma fram í báðum borgunum. Reykja- víkurhluti hátíðarinnar fer fram á KEX hostel og Húrra en meðal listamanna sem koma fram eru Emilíana Torrini ásamt Ensemble X frá Berlín, Claudio Puntin, Skúli Sverrisson, Jazzanova, Christi- an Prommer, Studnitzky Trio & Strings, Epic Rain, Qeaux Qeaux Joans og fleiri. Ein skærasta stjarna Svíþjóðar n Sverrir Guðnason leikur aðalhlutverkið í Flugparken sem var frumsýnd á Stockfish festival n Hlaut kvikmyndaverðlaun Svíþjóðar annað árið í röð Á lfareiðin, sýning Lárus- ar H. List, verður opnuð í vestursal Listasafnsins á Akureyri á laugardag, 21. febrúar klukkan 15. Lárus hefur haldið yfir 20 einkasýningar og tekið þátt í fjölmörgum samsýn- ingum á Íslandi og erlendis. Lár- us vinnur aðallega með olíu og akríl á striga en líka önnur form eins og ljósmyndir, ritlist, víd- eólist og hljóðlist. Hann hefur einnig samið klassískar tónsmíð- ar og gefið út skáldsögur. Eins og nafnið gefur til kynna eru sam- skipti manna við álfa og huldu- fólk í brennidepli á sýningunni sem er hluti af röð 8 vikulangra sýninga sem hófst 10. janúar og mun standa til 8. mars. n kristjan@dv.is Álfareið á Akureyri Lárus H. List sýnir í Listasafni Akureyrar Starf Jónasar Hallgrímssonar í ritlist Sigurður Pálsson, rithöfund- ur og þýðandi, verður fyrstur til að gegna starfi kenndu við Jónas Hallgrímsson við hugvísinda- svið Háskóla Íslands. Starfið er ætlað rithöfundum sem taka að sér að vinna með nemum í ritlist eitt eða tvö misseri í senn. Sam- kvæmt fréttatilkynningu frá hug- vísindasviði er tilgangurinn með stöðunni að heiðra minningu Jónasar Hallgrímssonar og að efla ritlistarnám við Háskóla Íslands. Ritlist hefur verið kennd við Háskóla Íslands frá 1987 en varð fyrst að fullgildri aðalgrein árið 2008. Ritlist er nú boðin sem meistaranám og sem aukagrein í grunnnámi. Sigurður hefur um árabil komið að kennslu í rit- list við Háskóla Íslands, einkum ljóðagerð. bjölluna fyrir frammistöðuna heldur einnig verðlaun sem besti leikarinn á kvikmyndahátíðinni í Thessaloniki í Grikklandi fyrir leik sinn. „Ég hitti leikstjórann, Jens Öst- berg, yfir kaffibolla en í staðinn fyr- ir að láta mig fá handrit og segja mér að fara heim og lesa, sat hann og sagði mér alla myndina eins og sögu, senu fyrir senu og setningu fyrir setn- ingu. Þegar hann hafði sagt mér alla söguna var ég búinn að drekka mitt kaffi en hann hafði ekki fengið sér sopa af sínu og drakk það bara kalt. Þetta gerði það að verkum að við vor- um alveg á sömu línu með hvern- ig við vildum gera þetta, ég vissi hver sýn hans var á myndina. Við ræddum líka um þær myndir sem okkur fannst góðar, það var til dæmis Gerry, sem hann fílar mjög vel. Ég fann bara ein- hvern veginn að við vorum á sömu línu.“ Taxi Driver, eftir Martin Scorcese, er önnur mynd sem kemur upp í hugann, en þar er það sálrænt óstöð- ugi leigubílstjórinn og fyrrverandi hermaðurinn Travis Bickle sem of- býður spilling og úrkynjun samfé- lagsins og ákveður að grípa til of- beldis. „Það er líklega ein þeirra mynda sem hefur haft áhrif á Jens. En kannski ekki beint hjá mér, þetta var meira skrifað inn í handritinu. En margt í myndinni unnum við saman og byggðum karakterinn upp í sam- einingu. Það gerðist að stórum hluta eftir að tökur hófust.“ Leikstjórinn Jens Östberg hóf fer- ilinn sem ballettdansari og danshöf- undur. Hann vann aðalverðlaunin á einum helstu danshöfundaverð- launum heims, Rencontres choré- graphiques internationales de Seine- Saint-Denis, aðeins 23 ára gamall. Sverrir segir þetta hafa nokkur áhrif á það hvernig hann nálgast leik- stjórnina. „Ekki þannig að við séum að dansa einhver spor, en það hef- ur auðvitað áhrif að hann kemur úr dansheiminum og líka að áður en hann varð dansari þá var hann raun- ar í fótbolta og var kominn langt með það að verða atvinnumaður. Þú þarft að vera sérstök týpa til að meika það. Maður finnur það þegar hann er að vinna í handritinu og myndinni, þá hefur hann rosalega orku til að halda áfram. Hann er algjör hestur og það hlýtur að vera þetta hugarfar sem kemur úr þessum tveimur heimum sem hefur áhrif.“ ABBA og mamma Svarthöfða Sverrir er þriggja barna faðir, af- kvæmin eru tíu, átta og tveggja ára. Hann segir það ganga vel að sam- tvinna ferilinn og fjölskyldulífið. „Þegar ég er í leikhúsinu er þetta eiginlega erfiðara. Þá er maður svo rosalega lengi að vinna á daginn og kvöldin. Það er eiginlega þess vegna sem ég hef valið að vera meira í kvik- myndum. Þá ert þú „intensíft“ í tök- um í nokkrar vikur og alveg brjálað að gera en svo er maður í fríi á milli. En fólk heldur náttúrlega að ég sé rosalega mikið að vinna af því að það komu út þrjár myndir á síðasta ári,“ segir Sverrir. Og það eru enn fleiri verkefni í pípunum hjá Sverri. „Á mánudag var frumsýning á Cirkeln, mynd byggðri á sænskri unglingafantasíubók eft- ir Mats Strandberg. Hún er fram- leidd af Benny Anderson sem var í ABBA. Ég er svo byrjaður á næstu mynd sem byggð er á bókinni Alvar- legi leikurinn, Den allvarsamma leken, en það er Pernilla August – sem lék mömmu Anakin Skywalker, Svarthöfða – sem leikstýrir.“ n Einhyrningar og loftfimleikar Sló í gegn á Gullbjöllunni Sverrir hlaut viðurkenningu sem besti karlleikarinn í aðalhlutverki á sænsku kvikmyndaverðlaunahátíðinni, Gullbjöllunni, í janúar. Það sem vakti þó ekki minni hrifningu gesta á verðlaunaafhendingunni var þátttaka hans í óvæntu atriði ásamt kynni verðlaunanna, sjónvarpskonunni og grínistanum Petru Mede. Petra spjallaði við Sverri í beinni útsendingu þar sem hann sat úti í sal. Hann reyndist tregur til að svara spurningum Petru um drauma sína en varpaði spurningunni til baka. Eftir að hún hafði upplýst um ævintýralega drauma sína stóð Sverrir upp og hvatti hana til að láta þá rætast núna. Því næst brast hann í söng og inn á sviðið töltu einhyrningar og strengjahljóðfæraleikarar og Sverrir klifraði upp í rólu og sýndi óvænta hæfileika í loftfimleikum. „Nú er þetta far- ið að breytast og miklu fleiri farnir að vita hver ég er LEIKURINN OKKAR P OT T U R I N N S T E F N I R Í 6 5 M I L L J Ó N I R L A U GA R DA G I N N 2 1 . F E B R Ú A R E N N E M M / S ÍA / N M 6 7 4 8 2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.